Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Ég leyfi mér að fagna því að þessi tillaga er komin hér fram og tel ástæðu til að lýsa yfir fylgi við þessi mál sem auðvitað hafa verið afgreidd áður í samningum á milli Norðurlandaríkjanna.
Í fyrsta lagi kemur þetta til með að styrkja stöðu okkar í þróunarhjálpinni sem slíkri og er það vel. Það er til fyrirmyndar að veita slík mjúk lán með sama hætti og IDA gerir. Enn fremur, og það er kannski þess vegna fyrst og fremst sem ég kem hér upp, held ég að þessi sjóður geti verið tæki fyrir Íslendinga sem hafa átt í nokkrum erfiðleikum með útflutning á hugviti og tækni sem hér er til staðar en hægt er að gera með hjálp úr þessum norræna þróunarsjóði ef um samstarf okkar og annarra Norðurlandaríkja er að ræða.
Ég tel þess vegna ástæðu til þess að koma upp við fyrri umr. málsins og fagna því að nú stendur til að staðfesta þennan samning sem gerður hefur verið á milli norrænu ríkisstjórnanna um stofnun sérstaks norræns þróunarsjóðs.