Framhaldsskólar
Mánudaginn 12. desember 1988

     Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara út í efnisumræðu um framhaldsskólana heldur aðeins segja nokkur orð varðandi það frv. sem hér er lagt fram og hefur verið til umræðu.
    Ég get að vissu leyti fallist á að fresta gildistöku þessara tveggja kafla í frv. um framhaldsskóla á þeim rökum sem hæstv. menntmrh. rakti áðan, en hins vegar langar mig að spyrja hæstv. menntmrh. hvernig á því standi að fresta eigi ákvæði 7. og 8. gr. laganna. Það má vera að hann hafi svarað því hér áðan, en um þau ákvæði hefur verið að undanförnu nokkuð rætt og þá sérstaklega ráðherrann sjálfur þegar fyrrv. menntmrh. skipaði í þær skólanefndir sem lögin gera ráð fyrir. Mig langar einnig að spyrja hæstv. menntmrh. hvort hann hyggist á þessu eina ári sem er gert ráð fyrir að frv. verði frestað breyta eða endurskoða lögin og einnig skipan í þær nefndir sem þarna er rætt um.
    Ég á sæti í hv. menntmn. þessarar deildar og mun að sjálfsögðu taka þátt í starfi hennar og umræðu um frv. og ætla þess vegna ekki að hafa orð mín lengri að sinni.