Áfengislög
Mánudaginn 12. desember 1988

     Stefán Valgeirsson:
    Herra forseti. Ég get ekki betur séð en þetta frv. sé nauðsynlegt og þær breytingar, sem í því felast og hæstv. dómsmrh. hefur kynnt, séu eðlilegar. En í sambandi við þetta mál hefur komið fram hjá talsmönnum lögreglunnar í Reykjavík að vegna manneklu og lélegs tækjakosts geti lögreglan ekki annað skyldustörfum sínum. Þetta hlýtur að leiða hugann að því hvernig umferðin t.d. er hér innan bæjar og í grenndinni. Maður þykist góður ef maður kemst klakklaust á leiðarenda og manni virðist að það sé mjög slælegt eftirlit með þessari umferð.
    Í annan stað er það vitað að samkvæmt lögum sem voru samþykkt á síðasta þingi verður heimilt að selja bjór frá 1. mars nk. Í öllum umræðum um þessi mál sem maður heyrir er gert ráð fyrir því að bjórinn verði viðbótarneysla við það áfengi sem nú þegar er neytt. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. dómsmrh.: Verða gerðar ráðstafanir til að tryggja að lögreglan fái nægan mannafla og tækjakost til þess að það sé forsvaranlegt að láta lögin um heimild til bjórsölu 1. mars taka gildi? Eða ætlar hæstv. ráðherra, ef aðstæður eru þannig að hann treysti sér ekki til að tryggja það, að gera ráðstafanir til þess að gildistöku laganna verði breytt?