Áfengislög
Mánudaginn 12. desember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég vil minna á það að frv. um bjórinn var flutt af þingmönnum hér á Alþingi eins og jafnan áður, það hefur aldrei verið ríkisstjórnarfrv. En ef hv. þm. vilja breyta þeirri löggjöf, þá er að sjálfsögðu einfalt að setja aftan í þetta frv. ákvæði til bráðabirgða, sem frestar gildistöku þess máls og er ekkert athugavert við það að hv. deild taki afstöðu til þess þegar þetta mál kemur frá nefnd.