Aðgerðir í efnahagsmálum
Þriðjudaginn 13. desember 1988

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Herra forseti. Ég vil í upphafi benda á að mál það sem hér er rætt er kannski meira tæknimál en það meginmál sem við ætlum hér að ræða, þ.e. bráðabirgðalögin sjálf. Þetta er meira um afgreiðslu málsins og þingskapalega meðferð. Það væri því kannski eðlilegt að ljúka umræðu um þetta mál og snúa sér að því að ræða aðalmálið og hygg ég þá að heppilegt væri og æskilegt og fer fram á það við hæstv. forseta ef hann telur að þetta séu rétt og heppileg vinnubrögð að atkvæðagreiðslu um þetta mál yrði frestað þar til lyki umræðu um hitt. Málin eru auðvitað tengd og þess vegna ekkert hægt við því að segja að þau séu rædd í samhengi eins og gert hefur verið. Ég er ekkert að álasa einum eða neinum fyrir það. En hitt finnst mér þó eðlilegra að við snúum okkur að því að ræða efnislega það mál sem er meginmál dagsins og hefur verið meginmál þjóðarinnar allrar í margar vikur, hvernig því muni reiða af.
    En úr því að ég er hér kominn er eðlilegt að ég svari aðeins beinum og óbeinum spurningum hæstv. menntmrh. um hvort Sjálfstfl. vilji frekari kjaraskerðingu og hvort við viljum gengisfellingu og hvernig við því muni brugðist. Það getur varla hafa farið fram hjá hæstv. menntmrh., jafnvanur maður og hann er eins og þeir kalla sig, þessir sem tóku völdin svona skyndilega og þurftu lítinn umhugsunarfrest til að setja saman ríkisstjórn, að í nál. á þskj. 207 er að þessu vikið. Og það er ekki bara Sjálfstfl. sem skrifar undir það nál. Það er öll stjórnarandstaðan eins og hún leggur sig sem skrifar undir það. Þar er skýrt tekið fram að verði gengið fellt sé nauðsynlegt að mæta því með lækkun söluskatts á helstu nauðsynjar heimilanna. Það er alveg ljóst að þarna er við það átt. Það er líka sagt í næstu málsgr. á undan að nauðsynlegt sé að fella gengið og það er við það átt að gengisfellingunni sé mætt með því að lækka skatta á helstu nauðsynjar heimilanna til að vega upp verðlagsáhrif gengisfellingar.
    Hér er stefna sem er í algerri andstöðu við stefnu ríkisstjórnarinnar, algerri í einu og öllu að því er efnahagsmál varðar. Við viljum lækka neysluskatta til að mæta nauðsynlegri gengisfellingu. Ríkisstjórnin vill hækka skatta gífurlega til að hella ofan á eld gengisfellingarinnar sem er óhjákvæmileg, og fara ekkert dult með það, til að draga úr þessari þenslu, til að fá atvinnuleysi. Þeir fara ekki dult með að. Þeir telja að gífurlegur árangur hafi áunnist síðustu vikurnar í því að stöðva þensluna, þ.e. koma í veg fyrir að menn hafi fulla atvinnu, koma í veg fyrir framfarir, koma í veg fyrir að fólkið geti haft sæmileg lífskjör. Nú hefur allur minni hlutinn í þessari hv. deild skrifað undir þveröfuga stefnu, þ.e. að lækka söluskatta þegar nauðsynlegt verður að fella gengið sem það er auðvitað orðið.
    Og ég hef nefnt tölur. Auðvitað eru það ekki heilagar tölur. Ég hef talað um það og látið reikna það út af reiknispekingum og reyndar reiknað það út sjálfur þótt ég sé ekki mikill spekingur, en öllum

kemur saman um að verði gengið fellt um 13% mundi 5% lækkun söluskatts vega þá verðlagshækkun upp að fullu og vel það vegna þess að söluskatturinn leggst á alla þjónustu í landinu, allar innlendar vörur og allt það, eins og menn vita. Það er þessi hugsun sem er núna sameiginleg hugsun allrar stjórnarandstöðunnar, bókfært í þessu nál. Hver sú tala svo verður ef einhverjir úr stjórnarliðinu féllust nú á að þetta væri rétt hugsun, og kannski mundu menn þar mætast á miðri leið eins og talað er um, en ef svo fer að þessi ríkisstjórn færi frá út af því að þetta yrði samþykkt yrði þetta þó alla vega grundvöllur þriggja flokka í viðræðum um efnahagsmál og peningamál.
    En þetta ætla ég frekar að ræða um þegar talað verður um málefnið sjálft, en tilefnið var að ég var spurður í þessari umræðu. Ég tek þá kannski til máls aftur, því að ég má a.m.k. tala tvisvar um þetta mál, ef það heldur áfram þessi umræða nú. En hitt tel ég, eins og ég sagði áðan, miklu eðlilegra, að meginmálið verði rætt undir þeim dagskrárlið sem það heyrir til, og legg það þess vegna í vald forseta hvort ég tek til máls aftur á eftir þegar tilefni gefst til eða við ræðum meginmál undir þeim lið sem það á að ræða.