Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 13. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
    Herra forseti. Þá er komið að því að við ræðum seinni þátt þessa máls, þ.e. að forminu til þau bráðabirgðalög sem út voru gefin hinn 28. sept. þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við völdum. Þetta frv. til laga um efnahagsaðgerðir er 8. mál þingsins og hér liggur fyrir á þskj. 202 nál. frá meiri hl. fjh.- og viðskn.
    Ég ætla ekki, herra forseti, að þreyta þingheim á því að endurtaka það sem ég sagði um uppbyggingu og aðdraganda málsins. Ég ætla einungis að gera grein fyrir nefndarstörfunum, áliti meiri hl. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar, þeim brtt. sem meiri hl. flytur og fara síðan nokkrum orðum um efni málsins og aðdraganda almennt. Það má vera að það taki nokkurn tíma að gera þessu skil án þess að ég muni þó fjalla hér ítarlega um brtt. sem þm. stjórnarandstöðunnar hafa flutt og þeirra nál. Þó vil ég, herra forseti, segja þetta í upphafi míns máls: Það hefur verið gert úr því mál og lögð á það áhersla, m.a. í grein eftir hv. 2. þm. Norðurl. e. í Morgunblaðinu í morgun þar sem hann fjallar um tillögur stjórnarandstöðunnar og segir hér: ,,Stjórnarandstaðan hefur sýnt fulla ábyrgð með sínum tillöguflutningi á þessu þingi og vitna ég m.a. til sameiginlegs nefndarálits hennar um bráðabirgðalögin í því sambandi. Sú sameiginlega niðurstaða hlýtur að teljast fréttnæm.`` --- Það er og. Það er nú svo að stjórnarandstaðan hefur skilað sameiginlegu nál. en séu tillögur stjórnarandstöðunnar skoðaðar ganga þær hreint ekki í sömu átt, heldur eru allar á tvist og bast og hver í sína áttina og mér sýnist raunar að það sé ekki einu sinni að samflokksmenn geti þar verið samferða. Og það er kannski líka fréttnæmt.
    Á þskj. 202 liggur fyrir nál. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Nefndin hefur fjallað um þetta mál á mörgum fundum, löngum fundum, á stundum erfiðum fundum og oftar en ekki heldur leiðinlegum fundum, leyfi ég mér að segja og veit ég að margir hv. nefndarmanna geta tekið undir það með mér. Ég segi þetta vegna þess að kallað hefur verið á marga fulltrúa félaga og fyrirtækja og satt best að segja hefur það ekki alltaf verið mjög ánægjulegt að þurfa að sitja þar í forsæti undir þeim samtölum sem þar hafa átt sér stað vegna þess að það hefur því miður á stundum verið leitast við að drepa umræðunni á dreif og hefja almennar efnahagsmálaumræður þegar gestir hafa verið kvaddir til að svara spurningum um sérstök og afmörkuð viðfangsefni. Mér hefur a.m.k. ekki alltaf fundist það ánægjulegt.
    Á átta fundum hefur verið fjallað um þessi mál og til viðtals við nefndina komu, því að rétt er að frá því sé greint hér, Gunnar Hilmarsson frá Atvinnutryggingarsjóði, Guðmundur Malmquist frá samráðsnefnd lánastofnana atvinnuveganna, Eyjólfur Jónsson, Guðmundur Þ. Jónsson og Daði Ólafsson frá Atvinnuleysistryggingasjóði, Ágúst Einarsson og Ágúst V. Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Árni Benediktsson frá Félagi Sambandsfiskframleiðenda,

Ólafur B. Ólafsson frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Lárus Jónsson frá Félagi rækju- og hörpudisksframleiðenda, Eiríkur Valsson frá Sölustofnun lagmetis, Kristján Ragnarsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Árni Kolbeinsson frá Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, Haraldur Sumarliðason og Þórleifur Jónsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, Ólafur Davíðsson og Víglundur Þorsteinsson frá Félagi íslenskra iðnrekenda, Halla Holton frá Hildu, Aðalsteinn Helgason frá Álafossi, Ágúst Eiríksson frá Árbliki, Jón Ragnar Björnsson, fulltrúi loðdýraræktenda, Þórarinn V. Þórarinsson og Hannes Sigurðsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Sigurgeir Sigurðsson og Magnús E. Guðjónsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Hákon Sigurgrímsson, Haukur Halldórsson og Gunnlaugur Júlíusson frá Stéttarsambandi bænda, Guðjón Kristjánsson og Helgi Laxdal frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Óskar Vigfússon og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Haraldur Hannesson og Ragnhildur Guðmundsdóttir frá BSRB, Ari Skúlason, Örn Friðriksson og Ragna Bergmann frá ASÍ, Eiríkur Guðnason frá Seðlabanka Íslands, Halldór Árnason frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Lárus Ögmundsson og Snorri Olsen frá fjármálaráðuneyti og Þórður Ólafsson frá bankaeftirliti. Með nefndinni starfaði, eins og ég hef áður greint frá, Sveinn Agnarsson, starfsmaður Ríkisendurskoðunar.
    Frv. er til staðfestingar bráðabirgðalögum sem út voru gefin 28. sept. sl. er ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók við völdum.
    Þá fylgdi þessum bráðabirgðalögum svohljóðandi rökstuðningur, með leyfi forseta:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt: Forsrh. hefir tjáð mér að brýna nauðsyn beri til að ákveða þegar aðgerðir til að koma í veg fyrir stöðvun mikilvægra útflutningsfyrirtækja, styrkja afkomu atvinnuvega, draga úr verðbólgu og lækka vexti, og koma þannig í veg fyrir yfirvofandi atvinnuleysi og leggja grunn að atvinnuöryggi og stöðugleika í efnahagslífinu.``
    Meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar þessarar hv. deildar telur að útgáfa bráðabirgðalaganna í lok september hafi verið nauðsynleg og óhjákvæmileg eins og sakir þá stóðu og lítur á útgáfu laganna sem mikilvægt
skref í þeirri viðleitni að halda atvinnulífinu gangandi, lækka vexti og minnka verðbólgu. Ýmsum markmiðum hefur þegar verið náð, svo sem lækkun verðbólgu og lækkun vaxta. Ljóst er þó að á ýmsum sviðum í efnahagslífinu, bæði hjá fyrirtækjum og í ríkisfjármálum var ástandið sýnu lakara en upplýsingar lágu fyrir um þegar lögin voru sett.
    Það hefur komið fram í fyrri umræðu um 20. og 21. mál að við teljum eðlilegast að fella þessi mál saman þannig að aðgengilegt sé í Stjórnartíðindum og þeim sem lögin lesa og eftir koma, hvaða lög séu í gildi. Því er þetta í rauninni nauðsynleg lagahreinsun.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með brtt. sem eru fluttar á sérstöku

þingskjali, þ.e. þskj. 203, og mun ég nú gera grein fyrir þeim.
    Fyrsta brtt. er við 3. gr., að við hana bætist nýr málsliður sem svo hljóði: ,,Þegar sérstaklega stendur á er sjóðnum heimilt að leysa til sín húseignir og búnað fyrirtækja sem lið í fjárhagslegri endurskipulagningu þeirra.`` Þessi brtt. er flutt af þeirri einföldu ástæðu að í reglugerð um sjóðinn er að finna ákvæði þessa efnis. Lögfróðum mönnum þótti hins vegar ekki alveg tvímælalaust að í lögunum væri heimild til að gera þetta. Þessi brtt. er því flutt til að taka af tvímæli um þennan efnisþátt.
    Í öðru lagi er flutt brtt. um að 12.--16. gr. laganna falli brott, þ.e. meginhluti kaflans um verðlags- og kjaramál. Svo sem áður hefur komið fram er ætlunin að þessi kafli verður felldur inn í hin fyrri lög þannig að þarna sé fullt samræmi og við séum ekki að samþykkja lög sem búið er í rauninni að breyta með öðrum lögum.
    Þá er í þriðja lagi sú brtt. við 20. gr. laganna sem fjallar um vaxtaákvarðanir, þ.e. að dráttarvextir skuli reiknast sem dagvextir, mikilvæg breyting, að hún verði orðuð með þeim hætti sem hér segir, með leyfi forseta: ,,Dráttarvextir skulu ætíð reiknast sem dagvextir. Þó skulu haldast óbreytt til 1. júlí 1989 ákvæði um útreikning dráttarvaxta í lögum um innheimtu opinberra gjalda til ríkissjóðs og sveitarsjóða.``
    Það var talið nauðsynlegt að gefa þarna nokkurn umþóttunartíma til að breyta reiknikerfum hjá opinberum aðilum þannig að þetta væri í rauninni framkvæmanlegt. Fulltrúar Sambands ísl. sveitarfélaga fóru fram á breytingu á þessari grein sem gekk í rauninni lengra, en hér er ætlaður allrúmur aðlögunartími, þannig að menn geti aðlagað sínar reiknivélar og tölvur þessari breytingu.
    Þetta eru þær breytingar sem meiri hl. fjh.- og viðskn. flytur við frv. Ég vildi hins vegar, herra forseti, geta eins að lokum varðandi þetta: Mér hefur verið bent á að í 25. gr. laganna segir: ,,Lög þessi öðlast þegar gildi.`` Síðan segir: ,,Ákvæði 20. gr. öðlast þó ekki gildi fyrr en 1. nóv. 1988. Gjald skv. 10. gr. skal innheimt vegna landana erlendis sem eiga sér stað eftir 30. sept. 1988.`` Síðan kemur 26. gr. sem segir: ,,Lög þessi öðlast þegar gildi.``
    Þar sem í 25. gr. er þegar búið að segja ,,Lög þessi öðlast þegar gildi`` sé ég ekki, virðulegi forseti, að nauðsynlegt sé að bera 26. gr. upp. Því megi einfaldlega sleppa.
    Það mætti spyrja sem svo: Hver er munurinn á þeirri löggjöf sem við nú ræðum og þeirri löggjöf eða þeim lögum sem við ræddum áðan, þ.e. hver er munurinn á lögunum sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar gaf út og lögunum sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar gaf út.
    Í grundvallaratriðum stefna þessi lög að sama marki, þ.e. að bæta stöðu fyrirtækja, koma í veg fyrir lokun fyrirtækja, koma í veg fyrir atvinnuleysi, koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og launa, draga úr verðbólgu og lækka vexti. Það eru í

grundvallaratriðum sömu markmið sem liggja að baki þessari lagasetningu. Hins vegar eru lögin frá 28. sept. miklum mun flóknari, taka til fleiri atriða en hin fyrri. Lögin frá 28. sept. skiptast í fjóra kafla. Fyrsti kaflinn fjallar um Atvinnutryggingarsjóð, annar kafli um breytingar á bráðabirgðalögum Þorsteins Pálssonar, um kaupfestingu, og hér er gert ráð fyrir verðstöðvun til 15. febr. Í þriðja kafla er fjallað um vaxtamál og dráttarvexti sem ég vék að hér áðan og í fjórða kafla eru ýmis ákvæði.
    Hér hefur verið mikil umræða og hv. þm. Sjálfstfl. hafa haft mjög hátt þegar við höfum verið að ræða bráðabirgðalög Þorsteins Pálssonar. Þá liggur auðvitað fyrir að spyrja: Hafði hæstv. forsrh. Þorsteinn Pálsson ekki stuðning sinna þingmanna þegar hann var að gefa þau lög út? Svo er að heyra nú sem nokkur vafi kunni á því að leika. Út af hverju er allur þessi hamagangur sem hér hefur verið uppi? Hann er fyrst og fremst út af ákvæðunum í I. kafla laganna, um Atvinnutryggingarsjóð. Hann er fyrst og fremst vegna þeirra. Hvað segja hv. þm. Sjálfstfl.? Þeir segja: Það á að grípa til almennra aðgerða, ekki sértækra aðgerða --- og finna þessum sjóði flest til foráttu.
    Það má auðvitað segja sem svo að engin mannanna verk eru fullkomin og allt þolir og þarf gagnrýni. Þessi sjóður var settur á laggirnar til þess að bregðast við neyðarástandi í fiskiðnaðinum og hjá fiskvinnslunni, neyðarástandi sem hafði skapast í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar þar
sem stöðugt hafði sigið á ógæfuhliðina án þess að að væri gert, og ástandið varð miklu verra en menn uggði og menn gerðu sér grein fyrir. Það var ljóst að fyrirtæki í sjávarútvegi, í fiskvinnslu, fiskiðnaði, stóðu ákaflega misjafnlega. Það var því ekki eðlileg og rétt aðgerð að grípa til björgunaraðgerða sem fælust í einhverjum jöfnunaraðgerðum sem væru jafnt fyrir alla aðila. Það var alveg ljóst að að meta þyrfti stöðu fyrirtækjanna og koma þeim til aðstoðar með ýmsum og ólíkum hætti. Það hefur þegar verið gert að nokkru leyti. Það hefur verið gagnrýnt hvernig staðið er að skipan þessa sjóðs. Auðvitað má að því finna eins og öllu öðru, öllum slíkum fyrirkomulagsreglum. Auðvitað má gera aðrar tillögur. Ég sé t.d. ekki betur en að hv. þm. Halldór Blöndal, sem situr í stjórn Byggðastofnunar, hafi gert tillögur um að öll þessi mál færist þangað. Hann leiðréttir mig ef þetta er rangt. Ég er ekki viss um að þessum málum væri betur komið ef það væri stjórn einhverrar stofnunar, þar sem þingmenn, hv. alþingismenn, með fullri virðingu fyrir þeim, eiga sæti, ætti að sjá um þetta. Ég held að fagleg sjónarmið hafi ráðið að verulegu leyti og að langmestu leyti um skipan þessa sjóðs. Ég ætla ekkert að dæma hvernig þar hefur til tekist um lánveitingar. Þetta eru mjög erfið mál, eins og fram hefur komið, í byggðarlögum þar sem allt atvinnulíf bókstaflega hangir á einum þræði, þar sem er kannski eitt meginfyrirtæki á staðnum eins og við þekkjum dæmi um. Ætluðu menn að horfa þegjandi upp á það að slíkt stöðvaðist allt og færi allt í rúst? Svo er stundum að heyra.

    Ástandið var einfaldlega þannig að það varð að grípa til aðgerða svipaðra þessum. Auðvitað mátti fara ýmsar aðrar leiðir um einhver atriði, það er alveg rétt, en það varð eitthvað að gera og staðreyndin var sú að ekkert hafði verið gert. Ég og minn flokkur berum auðvitað fulla ábyrgð á því líka sem aðilar að síðustu ríkisstjórn að ekki var brugðist nægilega skjótt við. Það er undarlegt að heyra þá sjálfstæðismenn tala núna sem fullkomlega ábyrgðarlausan flokk, fullkomlega ábyrgðarlausan, sem raunar sagði ekki neitt á þeim tíma þegar vandinn steðjaði að en hefur núna ráð undir rifi hverju að heyra má á þeim hv. þm. flokksins.
    Ég gæti, virðulegi forseti, lesið hér langt mál úr fundargerðum fjh.- og viðskn. sem Sveinn Agnarsson viðskiptafræðingur hefur skrifað. Það hefur verið mikið rætt um skuldabréfin sem þessi sjóður getur gefið út til skuldbreytinga. Það hefur verið mikið rætt um hugsanleg afföll af þeim. Þetta eru vandamál sem öllum eru ljós en vonandi tekst að yfirstíga.
    Á fund fjh.- og viðskn. 10. nóv. komu formaður stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs, Gunnar Hilmarsson, og Guðmundur Malmqvist, sem er formaður samráðsnefndar. Þar kom m.a. fram að þá höfðu engin skuldabréf verið gefin út. Þar var líka rætt um hlutverk þessarar svokölluðu samráðsnefndar stjórnar sjóðsins og lánastofnana, en hlutverk þeirrar nefndar er að gera tillögur um meðferð einstakra umsókna. Starfsmenn Byggðastofnunar sjá um skráningu umsóknanna og láta þær síðan ganga til samstarfsnefndarinnar sem leggur þær síðan fyrir Atvinnutryggingarsjóð.
    Ég tel að það sé nauðsynlegt að greina í nokkrum atriðum frá því hvernig þetta fer fram. Umsóknirnar geta verið af tvennum toga, annars vegar lán til hagræðingar og framleiðniaukningar og hins vegar lán til skuldbreytinga. Fyrir mánuði voru 35 umsóknir komnar og þeim hefur fjölgað verulega síðan. Og sumar eru mjög háar, ein upp á 206 millj. kr., önnur upp á 300 millj. kr. Þrír fjórðu hlutar þessara umsókna hafa komið frá fyrirtækjum í sjávarútvegi. Flestar eru frá frystihúsum og rækjuframleiðendum.
    Það kom fram í máli Gunnars Hilmarssonar, stjórnarformanns sjóðsins, á þessum fundi að markmiðið með Atvinnutryggingarsjóði sé að aðstoða þau útflutningsfyrirtæki sem ætla megi að hægt sé að skapa viðunandi rekstrargrundvöll með hagræðingu og skuldbreytingu. Það var fjallað mjög ítarlega um þetta á þessum fundi nefndarinnar. Það var einnig fjallað um stöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs, lagalegan grunn hans og veittar ítarlegar upplýsingar um það mál.
    Á fjórða fund nefndarinnar komu fulltrúar samtaka fiskvinnslunnar. Það kom mjög skýrt fram í nefndinni að ýmsir þeirra fulltrúa höfðu efasemdir um þetta fyrirkomulag. Það kom fram að að mati samtaka fiskvinnslustöðva er frystingin núna rekin með 5--6% halla. Það kom líka fram að hallinn ætti e.t.v. eftir að aukast í 10--11% þegar greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði þrýtur. Ef þar að auki er tekið tillit til aukinnar vaxtabyrðar vegna tapreksturs í ár og aflasamdráttar

sem búist er við að verði næsta ár, þá telja forustumenn samtaka fiskvinnslustöðva að hallinn á frystingunni næsta vor geti verið kominn í 16--20% verði ekkert að gert.
    Það er líka best að skýra frá því hér hvaða aðgerðir Ágúst Einarsson, formaður samtaka fiskvinnslustöðva, taldi á fundi nefndarinnar að þyrftu til að koma til þess að bjarga stöðu fiskvinnslunnar. Hann sagði: Í fyrsta lagi gengissig. Í öðru lagi 10--15% kaupmáttarrýrnun. Í þriðja lagi hærri skattar. Í fjórða lagi hallalaus ríkissjóður. Í fimmta lagi minni fjárfestingar. Í sjötta lagi var nefnt að það kynni að koma til aukið atvinnuleysi. ( Gripið fram í: Í sjötta lagi atvinnuleysi, eins og það er bókað.)
    Það kom fram þarna að verð á íslenskum sjávarafurðum hefur lækkað mjög mikið bæði í Evrópu og Bandaríkjunum á seinni hluta þessa árs. Hins vegar væri ekki útlit fyrir frekari lækkanir og það hefur raunar verið staðfest í fréttum nú að undanförnu.
    Það kom sem sagt mjög glöggt fram hjá þessum fulltrúum Sambands fiskvinnslustöðvanna hversu slæmt ástandið er. Og ég er sannfærður um að þeir hafa ekkert dregið úr. Ég er hins vegar ekki sannfærður um að það sé alveg nákvæmlega jafnslæmt og þeir gerðu grein fyrir.
    Á fundum nefndarinnar var líka rætt mjög um stöðu Verðjöfnunarsjóðs. Formaður stjórnar Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins kom á fund nefndarinnar og í máli hans kom fram að stuðningsmönnum Verðjöfnunarsjóðs hefði fækkað nokkuð undanfarin missiri, en hann lagði áherslu á að það væri ekkert í bráðabirgðalögunum sem bryti í bága við grundvallarreglurnar um Verðjöfnunarsjóð. Meginreglur sjóðsins væru tvær: Að útgreiðslur kæmu fram sem uppbætur á afurðaverð, ekki sem greiðslur til sérstakra aðila, og að ekki mætti færa fjármagn milli deilda sjóðsins.
    Á fund nefndarinnar komu líka fulltrúar Landssambands iðnaðarmanna og Félags íslenskra iðnrekenda. Þeir röktu þann vanda sem þessar atvinnugreinar ættu við að stríða og voru ekki bjartsýnir á framtíðina. Og þeir höfðu ekki mikla trú á Atvinnutryggingarsjóði, það skal segjast eins og er, og lögðu áherslu á það að hraði samdráttarins í efnahagslífinu væri meiri en menn hefðu gert sér grein fyrir. Þeir létu satt að segja ýmis þung orð falla um þennan sjóð og töldu hann til lítils.
    Á fund nefndarinnar komu einnig fulltrúar Vinnuveitendasambands Íslands og að sjálfsögðu komu fulltrúar launþegasamtakanna líka. Það er búið að lesa þeirra ályktanir og greinargerðir hér einu sinni úr þessum ræðustól og ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það. Það var rætt við fulltrúa vinnuveitenda um það hátterni banka og lánastofnana að taka erlend lán á lágum vöxtum og endurlána til innlendra fyrirtækja á miklu hærri vöxtum. Það var gagnrýnt harðlega og hefur raunar verið til umræðu í nefndinni í tengslum við ýmis önnur mál.
    Mér er líka skylt að geta þess að framkvæmdastjóri

Vinnuveitendasambands Íslands lýsti því sem óþolandi ástandi að lög frá fjórða áratugnum skyldu enn vera hér við lýði, þ.e. lög um verkalýðsfélög og vinnudeilur, og taldi tímabært að endurskoða það fyrirkomulag. Það er mat Vinnuveitendasambandsins að atvinnuleysi geti farið upp í 3% í janúar--febrúar á næsta ári.
    Ég gæti auðvitað, virðulegi forseti, rakið býsna margt fleira úr þessum umræðum í nefndinni. Raunar var það nú svo að umræðan fór oft mjög á víð og dreif og var miklu frekar verið að ræða almenn efnahagsmál, vaxtastefnu og ýmislegt fleira, heldur en þessi sérstöku bráðabirgðalög.
    Fulltrúar BSRB sem komu á fundi nefndarinnar lýstu mikilli andstöðu við lögin og sögðust vilja nota tækifærið til að mótmæla því harkalega þegar enn væri í sama knérunn vegið að launþegum. Á þeim fundi var líka rætt töluvert mikið um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna og fleira því skylt.
    Á sama fund nefndarinnar komu fulltrúar Alþýðusambands Íslands, þau Ari Skúlason, Örn Friðriksson og Ragna Bergmann. Þau lögðu fyrir nefndina þrjár ályktanir sem samþykktar voru á þingi Alþýðusambands Íslands sem fjallaði um samningsrétt, atvinnumál og kjaramál og hafa raunar þegar verið kynntar hér úr þessum ræðustóli. Hjá fulltrúum Alþýðusambandsins kom fram að lög á borð við bráðabirgðalögin fældu félög frá því að gera ábyrga samninga. Slík löggjöf hefði slæm áhrif fram í tímann og skerti ekki aðeins hag launþega á þeirri stundu sem lögin væru sett. En í ályktun Alþýðusambandsins um kjara- og efnahagsmál kemur fram að vaxtakostnaðurinn sé mesti bölvaldurinn í íslensku efnahagslífi en ekki launin. Fulltrúar Alþýðusambandsins töldu jafnframt að lækkun vaxta ein mundi ekki leysa vandann sem nú blasti við og að launahækkanir á þessu ári væru ekki til komnar vegna samninga heldur fyrst og fremst vegna launaskriðs. Þá kom fram að Alþýðusamband Íslands gerði kröfu um að annaðhvort yrðu bæði lán og laun bundin vísitölu eða hvorugt. Og Ari Skúlason benti á að þótt lánskjaravísitala yrði afnumin mætti í raun halda áfram verðbindingu lána með því að hafa nafnvexti háa.
    Fulltrúar Alþýðusambands Íslands lýstu einnig andstöðu við söluskatt á matvæli og ítrekuðu að nauðsynjavörur ættu að vera á sem lægstu verði vegna þess hve þær vægju þungt í framfærslu launafólks. Þau sögðu að verð á nauðsynjavöru væri mun hærra hér en í helstu nágrannalöndunum og þetta hefði slæm áhrif á uppbyggingu ferðamannaiðnaðar í landinu. Síðan var nokkuð rætt um uppsagnarákvæði samninga og fulltrúar Alþýðusambandsins, sem komu á fund nefndarinnar, bentu á að margir kjarasamningar sem rynnu út í upphafi næsta árs væru án uppsagnarákvæða og hlytu því að verða lausir 15. febrúar.
    Á fund nefndarinnar 2. þ.m. kom formaður stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs, Gunnar Hilmarsson. Það var nú að vísu svo að formaður átti ekki kost á því að sitja þann fund vegna skyldustarfa annars staðar. Á

þeim fundi var spurt hvort
útgerðarfyrirtæki mundu ekki fá aðstoð frá Atvinnutryggingarsjóðnum vegna þess að þau væru ekki útflutningsfyrirtæki eins og kveðið væri á um í lögunum. Formaður stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs sagði að ekki hefði verið auglýst að útgerðarfyrirtæki fengju enga aðstoð og taldi eðlilegt að þau legðu inn umsóknir. Sömu aðilar rækju oft bæði útgerð og fiskvinnslu og við afgreiðslu yrði að taka tillit til þess. Hinn 2. þ.m. voru 100 umsóknir komnar til sjóðsins. Þar af höfðu tíu verið afgreiddar og af þeim voru þrjár komnar í endurskoðun.
    Í reglugerð um sjóðinn er tekið fram að einungis þau fyrirtæki komi til álita við lánveitingu eða skuldbreytingu þar sem grundvöllur telst vera fyrir rekstri að loknum skipulagsbreytingum á fjárhag og rekstri. Spurt var á fundinum hvaða meðhöndlun fyrirtæki fengju sem hefðu fengið greiðslustöðvun eða þurft hefðu að ganga til nauðungarsamninga. Formaður stjórnar sjóðsins svaraði því til að hjá sjóðnum væru nú umsóknir frá tveim fyrirtækjum sem hefðu fengið greiðslustöðvun en ekki væri búið að afgreiða þau mál. Þá var og spurt um afföll af skuldabréfum Atvinnutryggingarsjóðs og formaður svaraði því að það væri erfitt að segja til um það, enda hefðu engin bréf verið seld. Eitt dæmi þekkti formaðurinn þar sem lánardrottinn fór fram á tæplega 42% ofan á bréfin. Formaður stjórnar sjóðsins taldi að þessi umræða um afföll af bréfunum væri komin frá fjárfestingarfélögunum sem ætluðu sér að ná fram hagnaði með því að kaupa þessi bréf með mjög miklum afföllum.
    Ég held ekki, virðulegi forseti, að ástæða sé til að rekja mikið frekar úr fundargerðum nefndarinnar. Það er hægt ef ástæða er til og spurt er um einstök atriði. Mun ég því ekki gera það frekar að svo komnu máli nema sérstakt tilefni gefist til. Það er vissulega margt í þessu sem ástæða væri til að nefna. Enda þótt umræðan hafi oft verið mjög almenns eðlis í nefndinni og tekið langan tíma, þá hefur verið orðið við öllum óskum sem fram hafa komið frá stjórnarandstöðunni um að kalla menn til fundar og allra þeirra gagna verið aflað sem um hefur verið beðið. Þess vegna hafa þessir fundir tekið langan tíma og umfjöllun málsins kannski verið tímafrekari en við í nefndinni reiknuðum með. En það er þá eingöngu vegna þess að reynt hefur verið að koma til móts við allar óskir sem fram hafa komið.
    Nú er það ljóst að hér er við mikinn og margvíslegan vanda að etja. Það hefur verið gagnrýnt mjög af hálfu stjórnarandstöðunnar, sérstaklega af þm. Sjálfstfl., það sem gert hefur verið. Ég hef hins vegar ekki heyrt tillögur þeirra til lausnar þessum vanda. Ég heyrði hv. þm. Guðmund H. Garðarsson segja hér áðan: ,,Enga nýja skatta. Óbreytt útgjöld frá í fyrra.`` En ég spyr hann: Gengur það dæmi upp? Hann getur svarað því þegar hann kemur hér í ræðustól aftur á eftir. ( GHG: Svo til. Svo til, sagði ég.) Enga nýja skatta, engan niðurskurð. ( GHG: Svo til óbreytta.) Þetta er bara eins og venjulega. Sjálfstfl. hefur ekkert

fram að færa.
    Við sem vorum í stjórn með Sjálfstfl. í þrettán mánuði erum reynslunni ríkari. Það er búið að reyna Sjálfstfl. í stjórn og hann brást. Hann brást sjálfum sér, hann brást samstarfsaðilunum og hann brást þjóðinni. Það er íhugunarefni fyrir þennan flokk sem einu sinni var stór og einu sinni var samstilltur og sterkur undir styrkri forustu. (Gripið fram í.) Undir styrkri forustu. ( GHG: Lengi lifi heiðursfylkingin í Alþfl.) Nú er illa komið. Nú er illa komið á þeim bæ hjá Sjálfstfl. ( Gripið fram í: Brugðust engir aðrir?) Formaður Sjálfstfl. þagði í þrettán mánuði á meðan hann var forsrh., en hann hefur fengið málið núna. Það hefur sagt við mig fólk sem fylgist með stjórnmálaumræðunni: Hvar var þessi maður? Hvar var þessi Þorsteinn Pálsson þegar hann átti að leiða ríkisstjórn? Formaður Sjálfstfl. fékk ekki málið fyrr en hann kom í stjórnarandstöðu. Það er sorglegt en satt. Og kannski er það svo að formanni Sjálfstfl. og Sjálfstfl. í heild lætur miklu betur að vera í óábyrgri stjórnarandstöðu heldur en að axla þá ábyrgð sem fylgir því að stjórna landinu og taka þær óþægilegu ákvarðanir sem þar þarf á stundum að taka.
    Ég held að það sé að koma í ljós þessa dagana að Sjálfstfl. lætur miklu betur að vera í stjórnarandstöðu. Það eru einhver alveg ný hressileikamerki á formanni Sjálfstfl. eftir að hann losnaði undan þeirri þungu ábyrgð og því þrúgandi fargi sem það virðist hafa verið á honum að sitja í stól forsrh. Hann hefur lifnað við, hv. þm. Þorsteinn Pálsson. Ég vildi bara að hann hefði gert það meðan við vorum með honum í stjórn. Það var lítið um málsvörn og varnir fyrir þá ríkisstjórn. Það urðu aðrir að annast það en hæstv. þáv. forsrh. Þorsteinn Pálsson. Hann kom ekki mikið nálægt þeim verkum. Þetta finnst mér vera sorgarsaga. Forustan týnd og tröllum sýnd. En það er að vissu leyti ánægjuefni fyrir þá sjálfstæðismenn að formaðurinn hefur nú vaknað af þyrnirósarsvefni. Ég segi ekki að Eyjólfur hafi hresst því að hv. þm. Eyjólfur, sem við höfum í þessari deild, er ákaflega hress og allt í lagi með hann. Hann er að vísu í minni hluta í Sjálfstfl. með sínar skoðanir á efnahagsmálum, en hann sættir sig vel við það.
    Ég held að þjóðin hafi öðlast mjög merkilega reynslu að upplifa þetta sem
gerðist með Sjálfstfl., er hann tók að sér ábyrgð á stjórn landsins. Það var að vísu mynduð fyrir hann ríkisstjórn. Formaður Sjálfstfl. tók við verkstjórninni í stjórnarmyndunarviðræðum þegar búið var að mynda ríkisstjórnina. En það er ekkert ný bóla hjá Sjálfstfl. Það hefur verið regla hin seinni árin að ríkisstjórnir eru myndaðar fyrir Sjálfstfl. Það gerði formaður Alþfl. sumarið 1987, það gerði formaður Framsfl., Ólafur heitinn Jóhannesson, á sínum tíma. Sjálfstfl. hefur ekki getað myndað ríkisstjórn upp á eigin spýtur svo lengi sem elstu menn muna og það er nokkuð langt síðan. Og mikið lifandi skelfing hlýtur það að vera erfitt að sofa við það allar nætur.
    Sjálfstfl. hefur ekki gert neinar tillögur um úrlausn þess vanda sem við er að etja. Í september sl., þegar

við alþýðuflokksmenn áttum enn samstarf við Sjálfstfl., gerðum við ítarlegar tillögur um tafarlausar ráðstafanir í efnahagsmálum 8. sept. og það var lagt fram í ríkisstjórn, en þá var ráðleysið og verkstjórnin með þeim hætti að það gerðist ekkert fyrr en hæstv. þáv. forsrh. Þorsteinn Pálsson fór að hlýða ráðum hv. þm. Halldórs Blöndals og sprengdi stjórnina. ( Gripið fram í: Og Guðmundar H. Garðarssonar.) Já, það hafa sjálfsagt fleiri góðir menn lagt á ráðin um þetta, ég efast ekkert um það. Það er stundum svo að ráð manna gefast ekki betur eftir því sem þeir koma fleiri saman. Það er nú gömul regla. ( HBl: Hver sagði það?) Ég er að segja það að stundum gefast ráð manna ekki betur eftir því sem þeir koma fleiri saman. Ég hef ekkert sagt annað. ( HBl: Er þetta ekki haft eftir Ólafi pá? Er það vitleysa?) Ég hef ekkert sagt um það, hv. þm. Halldór Blöndal.
    En auðvitað var ástæða til að rifja upp þessa sorgarsögu með Sjálfstfl., afdrif hans og afstöðu. Það hefur eiginlega verið með ólíkindum að fylgjast með þessari niðurlægingu stærsta stjórnmálaflokks þjóðarinnar.
    Nú blasir vandi við á hinu háa Alþingi. Það tók ný ríkisstjórn við 28. sept. Þá voru tólf dagar þar til Alþingi skyldi koma saman. Ég segi það sem mína skoðun: Það væri ekkert óeðlilegt við það þó að þessi ríkisstjórn hefði tekið sér meiri tíma til að ganga frá fjárlögum og tekjuöflunarfrv. en hefur verið til umráða hér og nú. Það hefði ekkert verið óeðlilegt við það og ég ítreka þá skoðun mína að ég sé heldur ekkert óeðlilegt við það þó auðvitað væri æskilegt að afgreiða fjárlög fyrir áramót. En það er ekki hundrað í hættunni þó það dragist fram yfir áramót og menn gefi sér örlítið betri tíma til að átta sig á hlutunum. Það er hins vegar mjög nauðsynlegt að koma tekjuöflunarfrumvörpum af ýmsu tagi fram þannig að þau geti tekið gildi um áramót. Og ég tek undir það með hv. þm. stjórnarandstöðunnar að það er líka alveg nauðsynlegt að láta á það reyna að þessi frv. hafi stuðning í Nd. Ég tek undir það. Við verðum og eigum að láta á það reyna. Mér finnast það hins vegar ekki góð vinnubrögð hjá stjórnarandstöðunni að reyna, eins og gert er í nefndum og gert er víðar, að gera mál eins seinunnin og torunnin og mögulegt er. Ég hef satt að segja kynnst vinnubrögðum í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar sem ég hef aldrei upplifað á ævinni og aldrei hér á hinu háa Alþingi og ég er sannfærður um að það geta fleiri tekið undir það með mér. Við sjáum það í þinginu að stjórnarandstaðan er ekkert að greiða fyrir málum eða hefur ekki áhuga á því að flýta málum til afgreiðslu. Það eru eilífar umræður um þingsköp hér fram og til baka, að vísu ekki mjög mikið í þessari deild, kemur þó fyrir, en miklu meira í Nd. þar sem formaður Sjálfstfl. talar um þingsköp daginn inn og daginn út, næstum því hvenær sem maður kemur í gættina. ( Gripið fram í: Hvað á þingmaðurinn við með stjórnarandstöðu?) Jú, það er rétt að taka það fram að þingmenn Sjálfstfl. ganga harðast fram í þessu og ég skal með ánægju undanskilja þingmenn Borgfl. Þeir hafa ekki tekið þátt

í þessum leik.
    Það er engu líkara en hv. þm. Sjálfstfl. vilji beinlínis stefna öllu í verra efni en ástæða er til. Ég heyri það í hv. Nd. aftur og aftur. Það er engu líkara. Hvað varðar mig um þjóðarhag? var einu sinni sagt. ( GHG: Stjórnarandstæðingar mega bara ekki taka til máls.) Hverjum í ósköpunum ætti að detta það í hug, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, en þegar menn leggja sig í líma og framkróka um að tefja mál, um að gera erfitt fyrir með nefndarstörf hugsar maður sitt. Auðvitað vill stjórnarandstaðan afla glöggra upplýsinga, ekki skal haft á móti því. En það verður líka að gera þá kröfu að menn geti unnið saman af sanngirni og taki eðlilegt tillit hver til annars. Ég þykist í þessu máli hafa tekið fullt tillit til allra óska stjórnarandstöðunnar. Ég get ekki sagt að allir þingmenn stjórnarandstöðunnar í nefndinni hafi tekið fullt tillit til þess sem formaður eða meiri hl. hafa farið fram á. En nú er bara sá tími kominn í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar að þar verður að vinna svolítið hraðar en gert hefur verið og þar verður að halda tíðari fundi en gert hefur verið og kannski á tímum sem ekki eru öllum einstökum þingmönnum þóknanlegir. Þá verða þeir hv. þm. að tilnefna menn fyrir sig í nefndina eins og oft og ævinlega er gert, en auðvitað verður reynt eftir fremsta megni eftir sem áður að taka tillit til eðlilegra óska.
    Það er mikið rætt um það, og það ætla ég að segja svona undir lokin, áður en ég lýk máli mínu að Sjálfstfl. ber fulla ábyrgð á því ástandi sem hér ríkir núna, enda þótt hann hafi ekki verið í stjórn í tvo mánuði. Hann ber fulla
ábyrgð á því ástandi sem hefur skapast og við gerum það líka, það skal hvergi undan skorast. En mér þykir það ekki háreistur málflutningur sem þingmenn þess flokks hafa haft uppi hér að undanförnu, sumir hverjir. Sumir hverjir. Til eru þeir sem taka sinn hluta ábyrgðarinnar, en það eru líka til þeir sem tala hér í þingsal og í nefndum eins og þeir hafi aldrei komið nálægt stjórn landsins og séu nú ekki að afgreiða og vinna sömu verkin og þeir voru að gera í stjórn í fyrra. Það er satt að segja einkennileg reynsla að upplifa það allt saman með öfugum formerkjum.
    Það er talað um það að lífskjör séu slæm á Íslandi og hér hafi fólk það upp til hópa afskaplega skítt og bágt. Ég held að þetta sé mikið ofsagt. Vissulega er til fólk í þessu þjóðfélagi sem á erfitt og á um sárt að binda, hefur orðið fyrir áföllum eða skakkaföllum af einhverju tagi og vissulega er til fólk sem hefur lág laun. En það fullyrði ég að þessi þjóð í heild, þegnarnir upp til hópa, holt og bolt svo notað sé vont mál, hafa aldrei búið við betri lífskjör en núna.
    Á sl. ári fluttum við inn 25 þús. bíla. Bílafloti þessarar 250 þús. manna þjóðar telur 140 þús. bíla. Við höfum slegið öll met í þeim efnum. Árið 1968 áttum við 40 þús. bíla. Síðan 1968 hefur bílum Íslendinga fjölgað um 100 þús. á sama tíma og þjóðinni hefur fjölgað um 40 eða 50 þús. ( HBl: En ef við förum 50 ár aftur í tímann? Hvernig lítur það þá út?) Það gæti verið fróðlegt að athuga það, hv. þm.

Halldór Blöndal, en ég hygg að á þessum 20 árum síðan 1968 hafi orðið hér stórt stökk, lífskjarabylting, og ég held að það sé leitun að landi þar sem lífskjör eru jafngóð. Að vísu með mikilli vinnu.
    Því skal ekki neitað að hinir háu vextir undanfarin missiri hafa komið illa við marga. En hvernig skyldi það nú vera? Skyldi það ekki vera í nokkuð mörgum tilvikum svo að þar er um hrein eyðslulán að ræða? Það ber ekki vott um sérstaklega lök lífskjör að næstum því dag eftir dag skuli fara héðan fullar flugvélar af fólki með tómar ferðatöskur sem fer ýmist til Amsterdam, Hamborgar, Glasgow eða þeirra borga þar sem ódýrt er talið að versla til þess að gera innkaup. Þetta er engin sérstök yfirstétt í landinu. Þetta er bara ósköp venjulegt fólk og þegar auglýstar eru meira að segja dagsferðir til útlanda til að versla í tvo, þrjá tíma, fjóra tíma kannski, farið að morgni og komið að kveldi, þá selst upp á svipstundu. Er þetta vottur um sérstaklega léleg lífskjör? Ég held að það sé ekkert frekar hálaunafólk sem fer þessar ferðir. Mér sýndist það ekki þegar ein sjónvarpsstöðin tók viðtal í einni af þessum flugvélum sem var að fara með fólk í svona dagsferð til að gera innkaup á Írlandi. Og ég segi bara: Það má kaupa talsvert til þess að það borgi sig þó ferðin sé ódýr. Svona hefur þetta verið. En það skal líka viðurkennt og á það lögð áhersla að það bendir allt til þess að nú séu aðrir tímar fram undan og þessu tímabili sé kannski lokið eða að ljúka um sinn. Samdrátturinn hefur orðið harðari, meiri og sneggri en nokkurn óraði fyrir. Það kemur víða í ljós og það á eftir að koma í ljós og áreiðanlega eiga eftir að verða miklu meiri erfiðleikar en okkur kannski órar fyrir núna. Þá held ég að þeir erfiðleikar sem menn hafa verið að tala um undanfarin missiri verði kannski hverfandi og litlir, því miður. Það er ástæða til að óttast að það sé erfitt ástand fram undan og við því þarf að bregðast.
    Hér eru ráðstafanir sem eru ekki allar af þeim toga að menn styðji þær með glöðu geði, en það er nú einu sinni svo í stjórnmálum, og það þekkja hv. þm. Sjálfstfl. t.d. úr síðustu ríkisstjórn þar sem Sjálfstfl. átti aðild þegar hún var að gefa út bráðabirgðalög, að það fylgir því að vera í ríkisstjórn að gera stundum fleira en gott þykir og þurfa að kyngja því sem maður ella vildi ekki kyngja. Þetta þekkjum við öll, en það er ekki stórmannlegt þegar menn hafa hrökklast úr stjórn við lítinn orðstír að snúa þá við blaðinu og segja: Nú þarf ekkert að gera. Enga nýja skatta, engan niðurskurð. Það væri mennilegra hjá hv. þm. Sjálfstfl. að segja: Okkur er ljóst að það þarf að gera ráðstafanir til bjargar fyrirtækjum og fólki og atvinnu fólks og við erum reiðubúnir til að taka þátt í því að vissu marki. Þeir gera það ekki, hv. þm. Þeir eru hér ólmir á öllum sviðum, sjá svart í öllum áttum. Það er allt vont sem ríkisstjórnin er að gera. Ég held að það sé mikill misskilningur ef hv. þm. Sjálfstfl. halda að svona málflutningur falli almenningi vel í geð. Þar held ég að þeir séu á hreinum villigötum. En það er svo sem auðvitað að Sjálfstfl. vildi ekki taka ábyrgð meðan hann var í ríkisstjórn og það þarf enginn að

vonast eftir því að hann axli ábyrgð þegar hann er kominn í stjórnarandstöðu. Það er hins vegar von til þess kannski með einhverja aðra úr stjórnarandstöðunni að þeir sjái hvað hér þarf að gera.
    Þetta eru að vissu leyti neyðartímar. Þessar ráðstafanir eru að vissu leyti neyðarbrauð. Verða menn þá ekki á neyðartímum að borða neyðarbrauð? Við erum auðvitað að kyngja ýmsu sem okkur fellur ekki í geð. (Gripið fram í.) Ég viðurkenni það hiklaust. --- Skonrok þótti nú ekki alls staðar neyðarbrauð, hv. þm., hér á árum áður meðan það fékkst. ( KP: Var eftirsótt.) Það var bara nokkuð góður matur og einkanlega bleytt í kaffi.
    En auðvitað eru menn að gera hér hluti sem þeim eru ekki ljúfir og það
eiga menn bara að viðurkenna. Við alþýðuflokksmenn eigum aðild að þessari ríkisstjórn. Við erum að gera hér ýmislegt fleira en okkur gott þykir og við getum með glöðu geði gert. En hver er valkosturinn? Hver er valkosturinn? spyr ég. Hvað á að gera annað? Það hafa engar raunhæfar tillögur komið hér í þá átt, ekki nokkrar, og allra síst frá Sjálfstfl. Menn verða að geta bent á eitthvað annað ef þeir vilja láta taka mark á sér í pólitík. En það er nú svo komið með Sjálfstfl. eftir þessa 13 mánaða reynslu af honum í ríkisstjórn og eftir þetta gaspur hans núna í stjórnarandstöðu að ég efast um að menn taki mikið mark á honum og taki þann flokk alvarlega. Hver er valkosturinn? Valkosturinn er ekki Sjálfstfl. Það er alveg öruggt mál.
    Ég skal nú ljúka máli mínu, herra forseti, og það er tillaga meiri hl. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar að þetta frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem fluttar eru á þskj. 203.
    Ég get að vísu ekki stillt mig um í lokin, án þess að gera það kannski að sérstöku umtalsefni, að benda mönnum á mjög athyglisverða grein í Morgunblaðinu í dag og Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins sl. sunnudag þar sem ritari Reykjavíkurbréfs er í rauninni, eins og hér hefur verið sagt, að hirta þingmenn Sjálfstfl., og ég held að það sé alveg sérstakt umhugsunarefni fyrir þá ágætu þingmenn.
    Í rauninni verður kannski ástæða til þess síðar í þessum umræðum að ræða nánar um þessa einstöku grein hv. þm. Halldórs Blöndals þegar komið er í ljós að höfundur Reykjavíkurbréfs --- og fer þá eggið að kenna hænunni, eins og hann sagði sjálfur hér áðan, þegar hann fer að vanda um við Morgunblaðið. En hv. þm. segir í þessari grein sinni, með leyfi forseta: ,,Ég hygg að óhjákvæmilegt sé fyrir ritstjóra Morgunblaðsins að gera ítarlega grein fyrir stefnu þess í þjóðmálum.`` Við höfum heyrt þetta í fjh.- og viðskn. stundum að það sé óhjákvæmilegt að gera ítarlega grein fyrir hinu og þessu. ,,Ég hygg að óhjákvæmilegt sé fyrir ritstjóra Morgunblaðsins að gera ítarlega grein fyrir stefnu þess í þjóðmálum því að ekki fer fram hjá neinum að áherslur blaðsins eru aðrar en áður í veigamiklum atriðum.`` Síðan segir hv. þm., með leyfi forseta: ,,Það er ekkert við það að athuga að Morgunblaðið sé sjálfstæður og óháður

fjölmiðill.`` En það er nú lóðið, það er einmitt það sem þingmaðurinn hefur við að athuga, að Morgunblaðið er með aðrar skoðanir á þeirri ríkisstjórn sem nú situr og stjórnarandstöðunni og hvernig eigi að vinna og hvort ríkisstjórnin eigi að fá einhvern starfsfrið kannski núna þessar fyrstu vikur. Þetta er hins vegar mjög athyglisvert, að nú er nauðsynlegt að Morgunblaðið geri ítarlega grein fyrir afstöðu sinni til þjóðmála. Ég veit ekki betur en að ritstjórar Morgunblaðsins séu að því á hverjum einasta degi og þá sérstaklega á sunnudögum í Reykjavíkurbréfi, en þegar hv. þm. Halldóri Blöndal fellur ekki alveg í geð hvernig ritstjórar Morgunblaðsins túlka hina pólitísku stöðu er brugðist svona við. Þá eru gerðar athugasemdir við það að Morgunblaðið sé sjálfstæður og óháður fjölmiðill, enda þótt annað sé sagt í þessari grein. Ég skal hins vegar viðurkenna það að þetta er svolítið klókindalega að orði komist hjá hv. þm. Og læt ég nú máli mínu lokið, herra forseti.