Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 13. desember 1988

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Það er mjög áberandi hér í umræðum undanfarna daga að hér er stunduð áköf leit. Menn leita í senn að syndaselum og samherjum. Það er ljóst að við stöndum hér frammi fyrir miklum vanda og það var ljóst þegar í haust þegar slitnaði upp úr samstarfi síðustu hæstv. ríkisstjórnar. Þau vandamál hafa ekki minnkað við myndun nýrrar ríkisstjórnar og eftir því sem ég fæ heyrt á máli manna hér --- en hér er, eins og ég sagði áðan, leitað í allar áttir eftir samherjum og syndaselum. Ég vil minna á að auðvitað vorum við kvennalistakonur tilbúnar til þess að taka þátt í að leysa þessi mál í haust. Við lögðum fram okkar eigin tillögu um að til bráðabirgða yrði mynduð hér stjórn allra flokka --- og ég get ekki betur heyrt á andrúmsloftinu hér en að það hefði einmitt verið rétta lausnin við þær aðstæður sem nú ríkja. En við töldum, eins og menn eflaust muna, óviðunandi að ganga inn í þá ríkisstjórn sem nú situr fyrst og fremst vegna kjaraskerðingar hennar og afnáms samningsréttar. Það hefði verið öllu lýðræðislegri bragur á því að menn hefðu hér sameinast um málin í bili og efnt síðan til kosninga svo fljótt sem verða mátti eins og við lögðum til.
    Eins og menn sjálfsagt muna komu ýmsar athugasemdir fram þegar við 1. umr. þessara bráðabirgðalaga sem við fjöllum um nú. Þar á meðal komu fram miklar efasemdir allra stjórnarandstæðinga um nauðsyn þess að setja á stofn nýjan og sérstakan sjóð til þess að taka á málum útflutningsatvinnuveganna. Reyndar voru allir sammála um, ég vil ítreka það, og við líka að það þyrfti að grípa til sérstakra aðgerða miðað við þá stöðu sem málin voru komin í.
    Spurningar okkar og gagnrýni beindust bæði að stofnun Atvinnutryggingarsjóðsins svo og skipun stjórnar hans. Ég þarf vart að verja tíma mínum hér til að rifja það upp en ég ítreka að við kvennalistakonur teljum að með stofnun sjóðsins sé verið að færa ósköp venjulega aðgerð í íslensku efnahagslífi í nokkurs konar grímubúning. Við getum ekki annað en gagnrýnt það að enn einu sinni skuli stjórnvöld skipa sína menn eingöngu í áhrifastöður þar sem ákvarðanir eru teknar um útdeilingu þeirra fjármuna sem hér um ræðir. En fyrst sú ákvörðun var tekin að stofna nýjan og sérstakan sjóð hefðum við talið eðlilegt að stjórn hans væri skipuð á annan veg, t.d. hefðu einhverjir fulltrúar þeirra atvinnugreina sem sjóðurinn á að fjalla um átt þar sæti.
    Eins og fram kom í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. flytjum við sameiginlega brtt. að hluta til. Í þeim brtt. sem við flytjum kemur fram að við teljum að þau verkefni sem hinum nýja Atvinnutryggingarsjóði útflutningsgreina eru ætluð hefði mátt fela Byggðastofnun sem hefur sinnt verkefnum sem þessum í gegnum tíðina. Það má svo auðvitað deila um það hvernig stjórn Byggðastofnunar er skipuð og höfum við kvennalistakonur oft gagnrýnt það að pólitísk ráð og nefndir skuli stjórna svo víða í þjóðfélaginu. En það má þó a.m.k. segja um

Byggðastofnun að hún er stofnun sem starfar samkvæmt lögum sem Alþingi hefur samþykkt, þar sitja lýðræðislega kjörnir fulltrúar og þar eiga þingflokkar fulltrúa samkvæmt þingstyrk. Ég tel reyndar ekki ástæðu til að ræða þennan þátt málsins frekar hér og nú því að ég tel að meginhugmyndir okkar hafi komið fram í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. Hann kynnti þessar hugmyndir rækilega hér áðan þegar hann mælti fyrir þeim brtt. sem við flytjum. En ég mun snúa mér að brtt. sem ég flyt fyrir hönd okkar fulltrúa Kvennalistans í þessari deild ásamt hv. þm. Halldóri Blöndal og Eyjólfi Konráð Jónssyni.
    Brtt. þessar er að finna á þskj. 209. Þar leggjum við til að á eftir 9. gr. í brbl. komi tvær nýjar greinar um stofnun sérstaks hlutafjársjóðs og hljóðar hin nýja 10. gr. okkar þannig, með leyfi forseta:
    ,,Stofna skal hlutafjársjóð við Byggðastofnun. Skal hann afla tekna með sölu aðildarbréfa og skal ríkissjóður tryggja verðbætt nafnvirði þeirra án vaxta fyrir allt að 600 millj. kr.
    Hlutafjársjóður skal hafa sjálfstæðan fjárhag.``
    Hugmynd okkar með flutningi þessarar brtt. er annars vegar sú að styrkja eiginfjárstöðu fyrirtækja en hins vegar að gefa fólki tækifæri til að fjárfesta í þessari undirstöðuatvinnugrein án þess þó að taka of stóra áhættu. Hlutafjáraukning skilar sér margfalt betur en lán og eykur heildarstyrk fyrirtækisins. Fleiri lán eru alls ekki til þess fallin að bjarga þeim fyrirtækjum sem eru að komast í þrot. Til þess að fjármagna þennan sjóð gerum við ráð fyrir 600 millj. kr. innlendri lántöku.
    Í bráðabirgðalögum hæstv. ríkisstjórnar er gert ráð fyrir að skerða lögbundin framlög ríkissjóðs til Atvinnuleysistryggingasjóðs um 600 millj. kr. Við kvennalistakonur teljum með öllu óviðunandi að ríkið gangi með þessum hætti í sjóð launafólks og rjúfi þannig einhliða samkomulag sem gert var milli ríkissjóðs, ASÍ og VSÍ. Af þeim 2000 millj. kr. sem fara eiga í Atvinnutryggingarsjóð er ætlunin að taka 600 millj. kr. úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Burtséð frá grundvallarspurningunni um það hvort ríkissjóður eigi undir nokkrum kringumstæðum að skerða á þennan hátt lögbundin framlög sín í þennan mikilvæga sjóð, þá hlýtur þetta einkum nú í ljósi
ríkjandi aðstæðna að vera sérlega vafasöm ráðstöfun. Daglega berast fréttir um uppsagnir starfsmannahópa hjá ýmsum fyrirtækjum um land allt.
    Þó að atvinnuleysi mælist ekki umtalsvert yfir heildina vitum við hvernig ástandið er í mörgum byggðarlögum. Víða býr fólk við mikið öryggisleysi um afkomu sína og framtíð. Milli mánaðanna september og október var 37% aukning á atvinnuleysi á landinu öllu. Samkvæmt upplýsingum frá félmrn. hefur tilkynningum um uppsagnir starfsfólks fjölgað stórlega. Þannig bárust tilkynningar um á milli 500 og 600 uppsagnir í októbermánuði en stór hluti þeirra kemur til framkvæmda nú um áramótin eða eftir u.þ.b. þrjár vikur. Og hverjir skyldu fara verst út úr þeim uppsögnum? Jú, það eru auðvitað konurnar eins og alltaf. Meðalfjöldi atvinnulausra í október var 706 og

af þeim voru 472 konur. Nú er jafnvel spáð 4--6% atvinnuleysi þegar í vetur en samkvæmt upplýsingum stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs leyfir staða hans nú 5% atvinnuleysi í eitt ár. Það er því mikið í húfi að þessi sjóður launafólks verði ekki skertur. Það ætti öllum að vera ljóst, ekki síst nú er við stöndum frammi fyrir miklum erfiðleikum sem að hluta til stafa af því að okkur láðist að leggja fyrir í góðærinu. Ef einhvern tíma er hægt að læra af reynslunni og mistökum þá ætti það einmitt að vera nú.
    Í 11. gr., sem við nefnum svo í brtt. okkar á þskj. 209, er kveðið á um kaup og sölu hlutafjársjóðs á hlutabréfum og hljóðar greinin svo, með leyfi forseta:
    ,,Hlutafjársjóður skal kaupa hlutabréf í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Hlutabréfin skulu boðin til sölu eigi síðar en fjórum árum eftir að þau eru keypt og skal starfsfólk fyrirtækis eða fyrirtækið njóta forkaupsréttar.
    Aðildarbréf skulu ætíð skráð á nafn og geta gengið kaupum og sölum.
    Hlutafjársjóði skal tilkynnt um eigendaskipti aðildarbréfa.
    Hlutafjársjóður gefur reglulega út gengi á aðildarbréfum.``
    Sú sérfræðiþekking sem er í Byggðastofnun nú þegar ætti að nýtast vel til að velja þau fyrirtæki sem hlutafjársjóður telur rétt að kaupa hlutabréf í og ætti að tryggja fullt verðgildi bréfanna. Með sölu bréfanna að fjórum árum liðnum er tryggð ákveðin dreifing og með því að veita starfsfólki fyrirtækjanna eða fyrirtækjunum sjálfum forkaupsrétt má betur tryggja en nú er að eignarhald fyrirtækjanna haldist heima í héraði. Á þeim tímum sem við nú lifum á getur það verið spurning um líf eða dauða einstakra byggðarlaga hvort þau geta haldið þeirri atvinnu sem nú þegar er fyrir úti í héruðunum.
    Síðasta brtt. sem við flytjum sameiginlega á þskj. 209 fjallar um atvinnumálanefndir og hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Í hverju kjördæmi landsins skal starfa atvinnumálanefnd. Hver atvinnumálanefnd skal skipuð fimm fulltrúum, tveimur tilnefndum af Alþýðusambandi Íslands, tveimur af Vinnuveitendasambandi Íslands og formanni tilnefndum af ríkisstjórninni. Atvinnumálanefndir skulu fylgjast með atvinnuástandi og þróun atvinnumála á starfssviði sínu og vera stjórn Byggðastofnunar til ráðuneytis um verkefni sjóðsins.``
    Við teljum nauðsynlegt og eðlilegt að fólkið úti í byggðarlögunum hafi einhvern vettvang þar sem það getur haft áhrif á þá endurreisn atvinnulífsins sem nú er þörf fyrir. Það er mikilvægt í þeirri uppstokkun sem nú verður að fara fram að stjórnvöld tryggi sér að þekking heimamanna á sínum eigin byggðarlögum nýtist, því framtíð atvinnulífsins um land allt hlýtur að byggjast á því sérstaka sem hvert byggðarlag hefur upp á að bjóða. Þannig verði byggðarlögunum gert kleift að blómstra á sínum eigin forsendum. Það er mikilvægur hornsteinn byggðastefnunnar að leitað sé eftir hinu sérstaka á hverjum stað. Ég tel að með því

að tryggja aðild heimamanna að uppbyggingu atvinnulífsins sé frekar hægt að gera sér vonir um að ríkisstjórnin nái fram þeim markmiðum sem hún setur sér í stjórnarsáttmálanum, en þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Mörkuð verður ný atvinnustefna sem stuðlar að hagvexti og skynsamlegri nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Tekið verður fyllsta tillit til byggðasjónarmiða. Athafnafrelsi einstaklinga og félaga verður meginreglan í atvinnumálum og frjálsræði í milliríkjaviðskiptum. Ríkisstjórnin mun með framkvæmd efnahagsstefnu sinnar móta almenna umgjörð um atvinnustarfsemi sem hvetur til ábyrgðar eigenda þannig að arðsemissjónarmið ráði ákvörðunum.``
    Það kemur reyndar fram í II. kafla stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að sérstakt átak muni vera fyrirhugað til þess að auka fjölbreytni í atvinnu kvenna á landsbyggðinni, og hafa reyndar verið fluttar tvær tillögur þar að lútandi af stjórnarliðum hér inni á þingi.
    Loks flyt ég ásamt hv. þingkonu Guðrúnu Agnarsdóttur brtt. við 19. gr., en hana er að finna á þskj. 206. Ég tel óþarfa að lesa þá till., en hún er í sama anda og þær brtt., sem við fluttum varðandi launa- og kjaramálin, við hin bráðabirgðalögin, þ.e. 20. mál þingsins, sem við fjölluðum um á föstudaginn og fyrr á þessum fundi í dag.
    Við kvennalistakonur höfum margoft lýst því yfir að við lítum á
launafrystingu og afnám samningsréttar sem skýlaust mannréttindabrot sem ekki er hægt að bæta upp með neinu öðru. En í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar segir einmitt, með leyfi forseta:
    ,,Ríkisstjórnin æskir vinsamlegra samskipta við aðila vinnumarkaðarins og mun hafa við þá samráð um stefnuna í kjaramálum.``
    Nú háttar svo til að sl. laugardag minntist launafólk hér á Reykjavíkursvæðinu mannréttindadags Sameinuðu þjóðanna með því að efna til fjölmenns fundar þar sem greinilega kom fram hugur launafólks í garð þeirrar ríkisstjórnar sem nú hefur skert kjör þeirra svo mjög og tekið af þeim þann heilaga rétt sem launafólk telur samningsréttinn vera.
    Vil ég því að lokum skora á hæstv. ríkisstjórn og alla hv. þm. stjórnarinnar að rifja vel upp þessa setningu, og reyndar margar fleiri í stjórnarsáttmálanum, og endurskoða hug sinn, a.m.k. að því er varðar samningsréttinn og launafrystinguna. Reyndar kom það fram í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. að hann mæltist til þess að hæstv. forsrh. tæki einnig tillit til tillagna okkar um rekstrardeild Byggðastofnunar. Eins og ég gat um í upphafi máls míns þá vil ég ljúka máli mínu með því að segja: Það ber allt að sama brunni, það er leitað hér eftir samstöðu um mál og ef við ætlum að koma þessu áfram þá er mjög greinilegt að það þarf að taka tillit til þeirra tillagna sem fram koma og gaumgæfa þær mjög vel áður en málin verða afgreidd.