Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 13. desember 1988

     Skúli Alexandersson:
    Herra forseti. Ég tel ástæðu til að þakka hæstv. forsrh. fyrir frumkvæði hans í þessu máli. Ég lít svo á að með þeirri yfirlýsingu sem hann hefur gefið hér sé hann að lagfæra það frv., sem við erum hér um að fjalla, mjög mikið og þar með að styrkja þá ríkisstjórn sem hann veitir forustu.