Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Það kom engum á óvart sem hlustaði á hæstv. forsrh. að hann fór rangt með. Þetta er ekki í fyrsta skipti og ekki það síðasta sem hann gerir það, þessi hæstv. ráðherra, enda er auðvelt að sýna fram á það, ef maður gerir úttekt á því sem hann segir frá einum degi til annars, að þar stangast ýmislegt á og auðvelt að rifja t.d. upp hvernig hann talaði um þann mann sem var í embættinu á undan í ágústmánuði m.a. Efast ég um að hann mundi með sama hætti tala um ferðalag forsrh. nú þó svo ástandið í atvinnumálum sé ólíkt alvarlegra nú en það var á þeim tíma. Það væri mjög fróðlegt að gera svolitla athugun á því hvernig þessum hæstv. ráðherra hafa farist orð frá einum tíma til annars.
Það sem ég sagði áðan var það sem auðvitað er mikið fagnaðarefni: Ef það hefur komið upp sá skilningur og sá trúnaður milli ríkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinnar að óhætt sé að fella niður allan þennan kafla sem fjallar um kjaramálin er það mikið fagnaðarefni. Það sem ég lagði áherslu á var að eðlilegt hefði verið að hæstv. forsrh. hefði talað um þetta í dag. Því miður virðist koma í ljós lítill áhugi formanns þingflokks Framsfl. á því að draga umræðurnar til morguns í staðinn fyrir að einhver annar þingmaður færi út úr deildinni í staðinn fyrir Stefán Guðmundsson, einhver þingmaður Sjálfstfl. tæki ekki þátt í atkvæðagreiðslu til að atkvæðagreiðsla gæti farið fram í dag. Það virðist m.ö.o. hafa verið farið á bak við okkur í þessari beiðni. Það er það sem mér þykir verst. Það er ómögulegt að skilja orð hæstv. forsrh. öðruvísi. Hann gat ekki tekið þátt í umræðunum í dag vegna þess að hann átti eftir að fá stuðning hinna stjórnarflokkanna við það að 2. mgr. 4. gr. félli niður. Af þeim sökum vorum við beðnir um það, stjórnarandstæðingar, að fresta atkvæðagreiðslunni til morguns og svo var það haft að yfirvarpi að einn af þingmönnum Framsfl. var að fara norður í land. Þetta er mjög dapurleg niðurstaða og síður en svo til þess fallin að það auki eitthvað á samstarf eða samvinnu milli stjórnar og stjórnarandstöðu.
Þegar maður leggur svo saman við þann tón sem var í ræðu formanns fjh.- og viðskn. í dag þegar hann var að finna að því að það skyldi rætt um efnahagsmál í fjh.- og viðskn. þegar frv. um efnahagsráðstafanir var til umræðu og þegar hann var að amast við því að fulltrúar atvinnuveganna voru kallaðir á fund nefndarinnar, þá sér maður hvernig andar til stjórnarandstöðunnar. Þetta er mjög mikið umhugsunarefni fyrir stjórnarandstöðuna og hvernig eftirleiðis eigi að bregðast við þegar komið er til okkar og við beðnir að greiða fyrir þingstörfum eins og gerðist hér í dag.