Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er sjálfsagt að verða við beiðni hv. þm. Halldórs Blöndals og svara hans fyrirspurn. Fyrirvari okkar hv. þm. Karls Steinars var bókaður á þingflokksfundi hjá Alþfl. og ráðherrum sem sátu fundinn gerð grein fyrir honum. ( HBl: Og í hverju var fyrirvarinn fólginn?) Það var fyrirvari um þessa grein, niðurlag þessarar greinar, stuðning við hana. ( GHG: Það voru sem sagt þrír þingmenn.) Ja, það er gott að það upplýsist nú að það var einvörðungu einn þingmanna í þingflokki Sjálfstfl., kallaði úr sæti sínu, sem hafði fyrirvara. Þá kemur í ljós að hinir allir eru hlaupnir frá hinum fyrri áformum, allir upp til hópa. ( GHG: Hvernig kemur það fram?) Það kemur fram í því að þingmenn Sjálfstfl. hafa hér talað gegn þessum þætti bráðabirgðalaganna sem Þorsteinn setti. ( SalÞ: Þessir 18?) Svo segir hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. ( GHG: Ég sagði það ekki.) Aðeins þrír, sagði hann, tveir úr Alþfl. og einn úr Sjálfstfl.
Ég skal ekki lengja þessar umræður. Það er ljóst hvernig mál standa og ég fagna því að þessi niðurstaða hefur orðið. Ég hygg að það kunni góðri lukku að stýra fyrir áframhaldið.