Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Það sem hv. 8. þm. Reykv. hefur haldið hér fram er skoðun hans eða Sjálfstfl., ekki mín og ekki Borgfl. síðast þegar ég vissi.
Hv. 7. þm. Reykn. lýsti hér fyrr í dag skoðun Borgfl. til þessa frv. og tek ég undir það í einu og öllu. Það er ekki í samræmi við það sem hv. 8. þm. Reykv. lagði áherslu á áðan og hlýt ég að harma það að hann hafi misskilið svo orð hv. 7. þm. Reykn.
Þessi dagur hefur verið merkilegur fyrir margar sakir og þá sérstaklega þá yfirlýsingu sem hæstv. forsrh. gaf hér áðan, rétt fyrir kvöldmat, að nú skuli gerð breyting á bráðabirgðalögunum þess efnis að verkalýðshreyfingin skuli fá aftur verkfallsvopnið. En það er svolítið einkennilegt að afhenda verkalýðshreyfingunni verkfallsvopnið þegar henni er bannað að nota það.
Þær brtt. sem við þm. Borgfl. hér í Ed. höfum lagt fram byggjast á því m.a. að við gildistöku þessara bráðabirgðalaga fái verkalýðshreyfingin samningsréttinn aftur og óhjákvæmilegt var þegar um það var að ræða að verkalýðshreyfingin fengi samningsréttinn að fella þetta ákveðna ákvæði úr lögunum. En að sjálfsögðu fagna ég því að ríkisstjórnin skuli fara svo vel yfir brtt. Borgfl. að hún telji ástæðu til að taka eitthvað af þeim upp þótt þær séu ekki teknar í heild.
Umræðan hér í dag hefur farið út um víðan völl og einkum hefur hún einkennst af orrahríð á milli þingmanna Sjálfstfl. og Alþfl. og svo einstakra ráðherra, þar sem reynt hefur verið að fá fram eitthvert uppgjör á milli þessara þriggja flokka um hvernig þessi ríkisstjórn er, hvernig sú ríkisstjórn var sem hvarf af vettvangi fyrir tveimur mánuðum síðan og hver ástæðan var fyrir brotthvarfi hennar. Þá hefur einnig verið rætt um það hvort þessi ríkisstjórn sé betri en hin og sitthvað fleira í þeim dúr. Minna hefur farið fyrir því að minnst hafi verið á hvert stefna skal og hvaða ákvarðanir skuli teknar nú þegar erfiðleikar steðja að íslensku þjóðfélagi.
Ég hef ekki haldið því fram að gengisfelling sé rétta úrræðið. Ég tel að til gengisfellingar eigi ekki að grípa nema allar aðrar leiðir séu þrautkannaðar. Hvort nú er komin upp sú staða að allar leiðir hafi verið kannaðar áður dreg ég mjög í efa. Ég tel að ýmislegt sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera sé rétt og verð að taka undir ýmislegt sem hún hefur komið í framkvæmd. Hins vegar finnst mér staða mála hér á þingi vera þannig að þessi ríkisstjórn sé ekki starfhæf, henni getur reynst erfitt að koma öllum þeim skattalagafrumvörpum í gegn sem hún hefur lagt fram.
Tilefni þessara laga sem hér eru til umræðu er bráðabirgðalagasetning sem ég lýsti hér á sínum tíma sem einræðislegum vinnubrögðum, sem ekki ætti að grípa til nema í algerri neyð og þá að tryggur meiri hluti væri að baki þeirri ríkisstjórn sem gripi til slíkra laga. Því er ekki að heilsa hér.
Ég ætlaði hér aðallega að mæla fyrir brtt. sem ég einn stend að og koma fram á þskj. 212. Þær eru á þessa leið:
Í fyrsta lagi að í stað 3.--5. gr. komi þrjár nýjar greinar svohljóðandi:
Við 3. gr.:
,,Stofna skal sjóð er nefnist Atvinnutryggingarsjóður. Sjóðurinn skal vera sjálfstæð deild við Byggðastofnun. Sérstakur forstöðumaður skal ráðinn til að veita deildinni forstöðu. Hlutverk sjóðsins er að treysta eiginfjárstöðu og veita lán til endurskipulagningar, hagræðingar og framleiðniaukningar hjá útflutningsfyrirtækjum og fyrirtækjum í samkeppnisiðnaði. Jafnframt skal sjóðurinn hafa forgöngu um að breyta lausaskuldum útflutningsfyrirtækja og fyrirtækja í samkeppnisiðnaði í föst lán til langs tíma.``
Við 4. gr.:
,,Stjórn Byggðastofnunar ákveður lánveitingar úr Atvinnutryggingarsjóði að fengnum tillögum sérstakrar samstarfsnefndar lánastofnana og banka. Ríkisendurskoðun fylgist með starfsemi sjóðsins og endurskoðar reikninga hans. Hún gefur Alþingi reglulega skýrslu um starfsemi sjóðsins.``
Við 5. gr.:
,,Stofnfé Atvinnutryggingarsjóðs skal vera 1200 millj. kr. Þar af greiðast 600 millj. kr. úr ríkissjóði á árunum 1989--1991. Að auki skal ríkissjóður leggja sjóðnum til 600 millj. kr. sem ríkissjóður tekur að láni hjá Atvinnuleysistryggingasjóði á árunum 1988--1990.
Ríkissjóður endurgreiðir lánið samkvæmt sérstöku samkomulagi milli stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs og fjármálaráðherra.
Stjórn Byggðastofnunar er heimilt fyrir hönd Atvinnutryggingarsjóðs að taka lán hjá Seðlabanka Íslands eða fyrir milligöngu hans að fjárhæð allt að 1200 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt. Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að takast á hendur sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu lánsins.``
Uppistaðan í þessari 1. gr. brtt. minnar, sem eru upphaflega tillögur Borgfl. í þeirri nefnd sem skipuð var meðal stjórnarandstöðuflokkanna til að gera sameiginlega tillögur við bráðabirgðalögin, er sú að Atvinnutryggingarsjóður skal vera sérstök deild innan Byggðastofnunar en ekki
eins og er samkvæmt bráðabirgðalögunum að það skuli vera sérstakur sjóður sem hlíti ákveðinni stjórn.
Hér er einnig lagt til að stofnfé Atvinnutryggingarsjóðs skuli vera 1200 millj. kr. í staðinn fyrir einn milljarður. Þá er enn fremur í brtt. lagt til að í stað 400 millj. kr. sem greiðist úr ríkissjóði komi talan 600 millj. kr. og þá er hugsunin sú að á hverju ári árin 1989--1991 greiðist úr ríkissjóði 200 millj. kr. Þá er einnig lagt til í brtt. að ríkissjóður taki 600 millj. kr. að láni hjá Atvinnuleysistryggingasjóði í stað þess að ríkið ákveði einhliða að fjármagn sem átti að fara í Atvinnuleysistryggingasjóð komi í þennan Atvinnutryggingarsjóð.
Hugsunin á bak við að hækka upphæðina úr einum milljarði í 1,2 milljarða byggist á því að með því er hægt í fyrsta lagi að ráðstafa ákveðnum hluta til
beinnar hagræðingar í rekstri, en samkvæmt þeim grunnplöggum sem liggja fyrir hjá núverandi sjóðsstjórn Atvinnutryggingarsjóðs er ætlað að 1,2 milljarðar fari í skuldbreytingar og afgangurinn fari til hagræðingar. En eins og ég sagði er áætlað að 200--250 millj. kr. fari samkvæmt mínum tillögum til hagræðingar og 500 millj. kr. til styrktar eiginfjárstöðu.
Í öðru lagi eru gerðar eftirtaldar brtt. við frv.:
Við 6. gr.
,,a. Á eftir orðinu ,,útflutningsfyrirtækja`` í 1. málsl. komi: og fyrirtækja í samkeppnisiðnaði.``
Gengið er út frá því að þetta nái ekki aðeins til útflutningsfyrirtækja heldur njóti samkeppnisiðnaðurinn einnig fyrirgreiðslu úr þessum sjóði.
,,b. Á eftir orðinu ,,útflutningsgreinum`` í 2. málsl. komi: og í samkeppnisiðnaði`` --- og er það í samræmi við lögin.
,,c. Við bætist nýr málsl. sem orðist svo: Sjóðnum skal heimilt að taka lán til að koma í veg fyrir neikvætt greiðsluflæði.``
Hugsunin þarna að baki er sú að innkoma í sjóðinn verður minni á næstu árum en það sem greitt verður úr honum og tel ég nauðsynlegt að hafa ákvæði í lögunum sem heimili sjóðnum að taka lán til þess að mæta þessu neikvæða greiðsluflæði.
Í þriðja lagi er gerð breyting við 7. gr. um það að greinin falli niður, en hún er um skipan þessa Atvinnutryggingarsjóðs.
Í fjórða lagi er gerð breyting við 9. gr., um það að við hana bætist nýr málsliður er orðist svo: ,,Þar skal kveða nánar á um hvaða atvinnustarfsemi skuli falla undir verksvið sjóðsins.``
Þarna er hugsunin sú að Atvinnutryggingarsjóður sem stofnaður verður fái það verksvið að meta hvaða starfsemi í samkeppnisiðnaði skuli falla undir þá fyrirgreiðslu sem sjóðurinn veitir.
Í fimmta lagi er gerð breyting við 9. gr.
,,a. Í stað ,,til 15. febrúar 1989`` í 1. málsl. komi: fram til gildistöku laga þessara.
b. Í stað ,,15. febrúar 1989`` í 2. málsl. komi: gildistöku laga þessara.``
Þarna er átt við gildistöku kjarasamninga.
Þessar brtt. eru eins og ég lýsti áðan tillögur Borgfl. við þessi bráðabirgðalög eða þessar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. Þær brtt. sem við stöndum að með Samtökum um kvennalista og Sjálfstfl. eru að hluta til úr þessum tillögum og að öðru leyti sem málamiðlun við hina stjórnarandstöðuflokkana.
Ég hef hér gert grein fyrir þeim breytingum sem ég legg til að gerðar verði á þessum bráðabirgðalögum og vonast eftir að hv. þm. og ríkisstjórn taki þær til gaumgæfilegrar athugunar.