Júlíus Sólnes:
Virðulegur forseti. Ég rifja það upp að við umræður um virðisaukaskattslögin í þinginu í fyrra lýstum við þm. Borgfl. einnig yfir miklum efasemdum okkar til þess að taka upp virðisaukaskatt á Íslandi, í svo fámennu þjóðfélagi sem Ísland er, einkum og sér í lagi með tilliti til þess hve atvinnufyrirtæki eru lítil með hliðsjón af því hvað virðisaukaskattur er flókið skattkerfi.
Við fögnum því að sjálfsögðu að ríkisstjórnin skuli ætla að fresta gildistöku virðisaukaskattsins þannig að betra tækifæri fáist til að grandskoða afleiðingar þess að taka upp og innleiða virðisaukaskatt á Íslandi og munum síður en svo leggjast gegn því að gildistöku laganna verði frestað um hálft ár eins og frv. sem hér liggur fyrir gerir ráð fyrir.