Lögreglumenn
Þriðjudaginn 13. desember 1988

     Flm. (Árni Gunnarsson):
    Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni, Kristínu Halldórsdóttur, Geir Gunnarssyni og Inga Birni Albertssyni að flytja á þskj. 176 frv. til l. um breytingu á lögum nr. 56/1972, um lögreglumenn, með síðari breytingum.
    Mig langar með nokkrum orðum, herra forseti, að gera grein fyrir tilurð þessa frv. og fara yfir það í sem skemmstu máli, en ég hefði talið æskilegt að hæstv. dómsmrh. hefði verið viðstaddur þessa umræðu því að hann hefur á undanförnum dögum og vikum orðið að fjalla talsvert um málefni lögreglumanna. Ef þess væri nokkur kostur að ráðherra væri hér í salnum mundi ég meta það mikils en geri það ekki að úrslitaatriði. ( Forseti: Það verða gerðar ráðstafanir til að leita eftir því við hæstv. dómsmrh.) Ég mun þá lesa þær brtt. sem koma fram í frv.
    Þar er gert ráð fyrir að 1. gr. verði á eftirfarandi veg:
    ,,Í stað 1. mgr. 5. gr. laganna koma þrjár málsgreinar svohljóðandi:
    Lögreglumenn, hvort sem þeir eru í föstu starfi eða kvaddir lögreglunni til aðstoðar, eru opinberir starfsmenn og njóta sömu verndar og aðstöðu og þeir menn er gegna borgaralegri skyldu.
    Engan má ráða eða skipa lögreglumann eftir 1. janúar 1990 án þess að hann hafi lokið námi í Lögregluskóla ríkisins. Heimilt er að lausráða nema til reynslu til lögreglustarfa meðan á námi þeirra stendur í Lögregluskóla ríkisins. Reynsluráðning skal aldrei standa lengur en tvö ár. Heimilt er að ráða til lögreglustarfa menn án prófs frá Lögregluskóla ríkisins til afleysinga í sumarleyfum á tímabilinu 15. maí til 30. september ár hvert. Ákvæði varðandi próf frá Lögregluskóla ríkisins ná ekki til skipshafna á varðskipum, tollvarða, héraðslögreglumanna eða varalögreglumanna; þó skulu þeir sem lokið hafa prófi frá Lögregluskóla ríkisins ganga fyrir um þessi störf þar sem það á við.
    Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni lögreglustörfum. Brot gegn ákvæði þessu varðar sektum nema þyngri refsing liggi við að lögum og skal með mál út af brotum þessum fara að hætti opinberra mála.
    2. gr.: 2. mgr., er verður 4. mgr., 5. gr. laganna orðast svo:
    Ríkissjóður skal bæta lögreglumönnum meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns.
    3. gr.: Lög þessi öðlast þegar gildi.``
    Herra forseti. Í greinargerð með þessu frv. segir eftirfarandi:
    ,,Þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 56/1972, um lögreglumenn, er flutt til að ná fram tveimur mikilvægum breytingum.
    Í fyrsta lagi að tryggja það að eftir 1. janúar 1990 verði enginn ráðinn eða skipaður lögreglumaður nema hann hafi áður lokið námi í Lögregluskóla ríkisins. Þó er heimilt að lausráða menn til reynslu til lögreglustarfa meðan á námi þeirra stendur. Þessi breyting kemur heldur ekki í veg fyrir að unnt sé að

ráða menn án prófs frá Lögregluskólanum til afleysinga í sumarleyfum á tímabilinu 15. maí til 30. september ár hvert. Þá er ekki gert ráð fyrir að þetta ákvæði nái til skipshafna á varðskipum, tollvarða, héraðslögreglumanna né varalögreglumanna.
    Með þessari breytingu vilja flutningsmenn frumvarpsins að það verði gert að fastri reglu að lögreglumenn hefji starfsferil sinn með því að fá grunnmenntun í Lögregluskólanum.
    Þessu frumvarpi er ætlað að tryggja menntun lögreglumanna. Með því yrði ráðin bót á óviðunandi ástandi sem nú ríkir. Talsverður hluti af lögregluliði í stærstu lögregluumdæmum er án starfsmenntunar og lætur nærri að um einn þriðji hluti lögreglumanna, sem nú sinna útköllum í Reykjavík, sé án þessarar menntunar. Hlutfallið er enn lakara á Keflavíkurflugvelli.
    Nokkur hópur þeirra manna, sem starfa í Reykjavík, hefur aðeins notið kennslu á fárra daga námskeiði sem nægir ekki til annars en að kynna þeim um hvað starfið snýst. Hætt er við að þessir menn hafi litla eða enga þekkingu á þeim lögum og reglum sem þeir eiga að starfa eftir né heldur undirstöðuþekkingu í sálarfræði sem löggæslumönnum er nauðsynleg. Líkur eru á því að störf þeirra verði ófullnægjandi og umkvörtunarefni.
    Það er þó lakara að þeir menn, sem ekki hafa lokið námi frá Lögregluskólanum, hafa ekki þá þekkingu á lögum sem þarf til að tryggja grundvallarréttindi borgaranna, t.d. réttindi handtekinna manna. Aukinn fjöldi kærumála á hendur lögreglumönnum rökstyður þetta.
    Þetta ástand getur orðið til þess að hinn almenni borgari glatar því trausti sem hann hefur haft á lögreglunni og réttarríkinu. Það er skylda ríkisvaldsins á hverjum tíma að stuðla að því að í landinu starfi vel menntað og vel þjálfað lögreglulið. Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar að undanförnu til að efla starf Lögregluskóla Íslands og er það samdóma álit sérfróðra manna að skólinn geti nú veitt góða og nauðsynlega menntun sem geri lögreglumenn mun hæfari til að takast á við stöðugt flóknari og erfiðari verkefni í síbreytilegu þjóðfélagi.
    Í öðru lagi gerir frumvarp þetta ráð fyrir breytingum á bótaskyldu ríkissjóðs gagnvart lögreglumönnum sem slasast eða verða fyrir öðru tjóni vegna starfs síns. Á undanförnum árum hefur fjölgað þeim tilvikum að lögreglumenn hafa orðið fyrir alvarlegum áverkum vegna starfa sinna. Má þar nefna barsmíðar, spörk og hvers konar líkamsmeiðingar. Ofbeldi virðist fara vaxandi, svo og notkun ýmissa hættulegra vopna svo sem barefla og hnífa.
    Lögreglumenn, sem hafa orðið fyrir alvarlegum líkamsmeiðingum og hlotið örorku eða örkuml af, hafa orðið að sækja mál sín um skaðabætur á hendur þeim er meiðslunum hafa valdið. Málaferli hafa oft tekið langan tíma og oftar en ekki hefur niðurstaðan orðið sú að tjónvaldar hafa ekki reynst borgunarmenn. Þá fyrst kemur að bótaskyldu ríkissjóðs. Þetta hefur valdið mörgum lögreglumönnum miklum erfiðleikum,

fjárhagstjóni og röskun á heimilishögum.
    Með þessu frumvarpi er ríkissjóði gert að bæta lögreglumönnum meiðsli og tjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns. Ríkinu er þarna lögð sú skylda á herðar að bæta tjón samkvæmt mati og það getur síðan höfðað mál á hendur tjónvaldi.
    Nauðsynlegt er talið að skilgreina betur í lögunum ábyrgð ríkissjóðs, m.a. vegna dóma sem fallið hafa í skaðabótamálum.``
    Í athugasemdum við einstakar greinar, herra forseti, segir á þessa leið:
    Um 1. gr.: ,,Fyrsta málsgr. frumvarpsins er samhljóða 1. málsl. núverandi 1. mgr. 5. gr. laganna og 3. mgr. er samhljóða 2. og 3. málsl. Efnisbreyting frumvarpsins kemur því fram í 2. mgr. Þar verður sú breyting á frá núgildandi lögum að lögreglumenn verða ekki ráðnir til fastra starfa nema því aðeins að þeir hafi lokið námi í Lögregluskóla ríkisins. Þó er gerð undantekning með sumarafleysingamenn sem ráðnir eru til starfa á tímabilinu 15. maí til 30. september. Þá ná þessi ákvæði ekki til starfsmanna á varðskipum, tollvarða, héraðslögreglumanna eða varalögreglumanna. Héraðslögreglumenn eru þeir sem hafa lögreglustarf að aukastarfi. Eingöngu er þörf fyrir héraðslögreglumenn utan Reykjavíkur þar sem jafnan starfa fáir lögreglumenn. Héraðslögreglumenn eru kallaðir til aðstoðar fullgildum lögreglumönnum við sérstakar aðstæður, svo sem vegna dansleikja um helgar og útihátíða á sumrin. Héraðslögreglumenn eiga að hafa lokið sérstöku námskeiði við Lögregluskólann.``
    Um 2. gr. segir á þessa leið: ,,Hér er lögð til sú breyting frá núgildandi lögum að réttur lögreglumanna til bóta úr ríkissjóði vegna meiðsla eða tjóns, sem þeir verða fyrir vegna starfs síns, verður ótvíræður. Vegna túlkunar á greininni í núgildandi lögum hafa lögreglumenn orðið að stefna tjónvaldi fyrst, og ekki fyrr en dómur er fallinn í máli og í ljós hefur komið að greiðslugeta tjónvalds er engin kemur til kasta ríkissjóðs. Nauðsynlegt er að kveða fastar á um bótaskyldu ríkissjóðs.``
    Um 3. gr. segir að hún skýri sig sjálf.
    Herra forseti. Mig langar að fara örfáum orðum um starfsmenntun lögreglumanna og markmið sem menn hljóta að hafa þegar þeir vilja bæta menntun og þjálfun lögregluliðsins. Starfsmenntun lögreglumanna hlýtur að þurfa að vera slík að þeim verði starfið auðveldara og að samfélaginu nýtist starf lögreglumannsins betur. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir eðli lögreglustarfsins og skilgreina hvaða menntun menn þurfi til að mega leysa það vel af hendi. E.t.v. ætti því skilgreining á lögreglustarfinu heima í þessari umræðu. Slík skilgreining verður þó að samrýmast sem best nútímaaðstæðum. Af slíkri skilgreiningu hlýtur að ráðast hvers kyns starfsmenntunar er þörf.
    Skipan og starfssvið löggæslu í flestum Evrópulöndum er mótað af hefð fyrri tíma. Er nú svo komið að sum lögreglulið eiga við vanda að etja vegna þess að hlutverk þeirra er þröngt skilgreint sem

laganna varða og arms laganna. Þessi ímynd getur reynst lögreglunni erfið og varasöm. Í augum margra er hún hið sýnilega tákn opinbers valds og höfð sem syndahafur oft og tíðum þegar óánægja gýs upp vegna ráðslags ríkisvaldsins. Lögreglan er sá aðili sem hvað oftast er til kvaddur þegar mönnum er bráður vandi eða neyð á höndum. Við slíkar aðstæður getur hún unnið gott starf og ástæða til að gera henni slíkt starf sem hægast. Eiginleg félagsleg hjálparstarfsemi er utan verkahrings lögreglu, en hún er jafnan öðrum aðilum nærtækari til að sinna bráðum samfélagslegum slysavörnum.
    Í velferðarþjóðfélagi vorra daga aukast sífellt afskiptin af samfélagslegum vanda. Á sama tíma er áberandi að reynt er að þrengja hlutverk lögreglunnar í þessu efni. Gleymist þá oft að það er lögreglan sem fær afleiðingar vandans til umfjöllunar þegar allt annað þrýtur.
    Við lifum á tíð örari breytinga en áður hafa yfir gengið. Tímum breytinga fylgir margs kyns vandi og þar með ný fjölþættari verkefni lögreglu. Þróun þéttbýlisþjóðfélagsins, breytingar á eðli fjölskyldunnar, útivinna beggja foreldra, nýjar færsluleiðir fjármagns, tölvuvæðing og afleiðingar hennar, afnám á gjaldeyrishömlum, fíkniefnavandi og aukning auðgunarbrota honum tengdur --- allt þetta leiðir til aukinna og nýrra verkefna lögreglu. Í mörgum tilvikum er sérþekkingar þörf til að sinna verkefnum sem skyldi.
    Það er full ástæða til að spyrna við fótum og tryggja að lögreglan endi
ekki sem nátttröll í nútímaþjóðfélagi. Starfsvettvangur lögreglunnar verður að fara eftir nútímaaðstæðum og þörfum en ekki eftir gamalli hefð. Lögreglan er þáttur í almennri þjónustu sem stofnað er til í þeim tilgangi að halda uppi lögum og almannareglum. Enn fremur er lögreglan björgunar- og hjálparsveit í félagslegum efnum.
    Stefnuna í starfsmenntunarmálum lögreglu verður að móta með tilliti til starfsvettvangs hennar og hlutverks. Starfsmenntun lögreglumanna þarf að tryggja þeim sem besta, fjölþættasta og hagnýtasta fræðslu. Alla þætti námsskrár þarf að vega og meta með tilliti til hagnýts gildis þeirra. Hefðin má ekki ráða því hvað lögreglumönnum er ætlað að læra.
    Lögreglumenn þurfa að njóta reglubundinnar þjálfunar meðan þeir eru í starfi. Jafnt þarf að vera um líkamlega þjálfun að ræða, þjálfun á sérstökum vinnubrögðum og yfirferð og endurskoðun á almennum viðbrögðum, svo sem skýrslugerð sem verður æ flóknari í nútímasamfélagi.
    Í annan stað þarf að fara fram reglubundin upprifjun á námsefni Lögregluskólans og kynning á nýmælum. Þetta mætti jafnt gera með sérstökum reglubundnum námskeiðum og með óformlegra hætti á heimaslóðum.
    Í þriðja og síðasta lagi, herra forseti, þurfa lögreglumenn að eiga kost á framhaldsmenntun eftir því sem áhugi og hæfni bjóða upp á. Lögreglumenn þurfa að eiga almennan rétt til að leita eftir slíkri

framhaldsmenntun.
    Herra forseti. Því er þetta gert að umræðuefni í tengslum við þetta frv. að við flm. teljum að það þurfi að efla mjög alla menntun og starfsmenntun lögreglunnar til að gera hana hæfari til að starfa í sífellt flóknara samfélagi.
    Annar þáttur þessa frv. fjallar um skaðabótaskyldu ríkissjóðs gagnvart lögreglumönnum. Það er mikilvægt að breyta þeirri grein laganna sem fjallar um skaðabótaskylduna vegna þess að dómar í málum lögreglumanna sem hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum og hlotið jafnvel af mikla örorku hafa fallið löngu eftir að slysin og áföllin hafa orðið. Þeir hafa orðið að sæta því að fara langa dómstólaleið með mál sín og venjulega þegar upp er staðið og dómur er fallinn er sá sem tjóninu olli ekki borgunarmaður. Þá er fyrst komið að ríkissjóði að greiða lögreglumanninum sem fyrir áfallinu hefur orðið.
    Herra forseti. Ég hef hér í fórum mínum mörg dæmi um misþyrmingar á lögreglumönnum, lögreglumönnum sem hafa orðið fyrir mjög alvarlegum, líkamlegum áverkum og hafa orðið allt að 75% öryrkjar af. Ég hirði ekki um að rekja þau dæmi. Þau eru þess eðlis að það er ástæðulaust að gera það við þessa umræðu, en það geta allir þingmenn kynnt sér þessi mál og fengið upplýsingar um þau.
    Ég mun ekki hafa fleiri orð um þetta frv., herra forseti, en vænti þess að að umræðunni lokinni verði frv. vísað til hv. allshn. deildarinnar.