Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég tek undir með flm. að ég vona sannarlega að það verði tekið á þessu máli því að það er full ástæða til að breyta því fyrirkomulagi sem hefur verið á um þessi mál. Það er álitamál hvernig á að skipa slíka nefnd. En ég ætla ekki að fjalla um það. Aðalmálið er, bæði fyrir þá sem þurfa að leita til hins opinbera með sína framfærslu með þessum hætti og fyrir tryggingayfirlækni líka, ég sé ekki annað en það sé töluvert mál fyrir hann, að þeir sem telja sig hafa fengið þann úrskurð, sem hann og þeir sem þekkja til telja vafasaman, geti látið fara ofan í það mál og meta það aftur.
Það hefur verið nokkur umfjöllun t.d. úti á landi um þessi mál. Tryggingalæknir eða nefnd sem staðsett er í Reykjavík þekkir ekki ástæður annrs staðar. Þess vegna er spurning hvort t.d. á ekki að fela héraðslækni á hverjum stað að meta örorkuna, félagslega aðstöðu þess einstaklings sem þarf á slíku að halda, og síðan að skjóta málinu blátt áfram til þessarar yfirnefndar en ekki til eins manns. Það er allt annað með þá sem eru á þessu svæði. Það hafa ýmsir leitað til mín, t.d. í mínu kjördæmi, varðandi þessi mál og ég hef rætt það við tryggingayfirlækni. Ég ber það að hann hefur alltaf tekið máli mínu ljúfmannlega, en ég hef orðið var við það í mörgum tilvikum að hann fær ekki þær upplýsingar frá heimilislækninum sem hefðu verið eðlilegar að mínu mati. Þess vegna hefur það verið rætt af félagsráðgjöfum, af sjúkraþjálfurum, við mig að þessu þyrfti að breyta.
Ég skora á heilbr.- og trn. að skoða þetta mál betur, hvort ekki er hægt að fá samstöðu um að breyta frv. sem hér er til umræðu í þá veru sem ég hef hér rætt um í samráði við hv. flm. Þessi mál eru það mikið til umfjöllunar og það mikil óánægja er með þau víða á landinu að ég tel að þetta sé eitt af þeim málum sem hv. Alþingi verði að taka til úrlausnar.
Þó að mér finnist að kannski sé stigið of skammt skref með þessu frv. styð ég það heils hugar en óska eftir því að það verði kannað hvort ekki er hægt að breyta því á þann veg að þeir sem þurfa á slíku mati að halda hafi það á tilfinningunni að allt sé gert til þess að reyna að fá réttlátan úrskurð í því máli. Og ég vil enn taka það fram að þarna er ég ekki að væna yfirtryggingalækni um neitt. Það er ekki þess vegna. Ég held, og hef talað við lækna um það, að þeir mundu margir hverjir ekki vilja vera í hans sporum og meta þetta einir og sér.