Efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Herra forseti. Í þessum umræðum hefur kennt ýmissa grasa. Mér kom það kynlega fyrir sjónir að stjórnarliðar skuli telja sig hafa efni á að gagnrýna Sjálfstfl. fyrir stefnuleysi eins og fram kom í ræðu hv. 3. þm. Vesturl. og einkum og sér í lagi hjá hæstv. menntmrh. Mál málanna í dag er að skapa atvinnurekstrinum í landinu rekstrargrundvöll. Sjálfstfl. hefur skýra afstöðu í því máli. Eins og nú er komið telur flokkurinn mestu varða að leiðrétta gengið strax. Er það ekki skýr afstaða?
    En svo gott sem það er að stjórnarandstaðan hafi stefnu mætti ætla að það varðaði nokkru hvaða stefnu ríkisstjórnin hefði í þessu máli málanna.
    Ekki má missa sjónar af því að bráðabirgðalögin gátu aldrei verið til annars en að veita svigrúm til langtímaráðstafana og tíminn yrði notaður til markvissra og skipulegra aðgerða. En í vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar hefur eitt rekið sig á annars horn þannig að við blasir ráðleysi á alvörutímum. Ég ætla að almennt hafi fólk þetta á tilfinningunni í raun og veru hvar í flokki sem það stendur. Þetta viðhorf er fremur mótað áhyggjum en ásökunum. Allir eru í sama báti og allt er í húfi fyrir alla.
    Atburðarásin er hröð og tíðindi gerast váleg. Hæstv. forsrh. talar ýmist um þjóðargjaldþrot eða gjaldþrot sjávarútvegsins. Það sem heitast brennur á er sjávarútvegurinn, fiskiðnaðurinn. Það sem skiptir í raun og veru máli í þessu efni er að frystihúsin hafi rekstrargrundvöll. Það sem er á valdi stjórnvalda til að skapa rekstrargrundvöll er aðallega tvennt: Annaðhvort er um að ræða að lækka reksturskostnaðinn eða leiðrétta gengið nema hvort tveggja sé.
    Þetta mátti vita þegar bráðabirgðalögin voru sett í september sl. En bráðabirgðalögin gátu aldrei tryggt frystihúsunum rekstrargrundvöll. Í besta falli gátu þau gefið frest til að vinna það verk. Atvinnutryggingarsjóðnum var ekki ætlað að létta byrðar og bæta eiginfjárstöðu fyrirtækjanna heldur að veita þeim ný lán, auka skuldir þeirra og þannig lengja hengingarólina sem þau eru í ef ekkert kæmi meira til.
    Ákvæði bráðabirgðalaganna um verðlags- og kjaramál voru í eðli sínu bráðabirgðaráðstafanir sem gátu ekki þjónað öðrum tilgangi en að gefa ríkisstjórninni svigrúm til langtímaráðstafana þar sem stefnt væri að því að ryðja úr vegi orsökum þess vanda sem við er að glíma. Ef ríkisstjórnin notaði ekki tímann til raunhæfra aðgerða voru þessi ákvæði bráðabirgðalaganna einskis nýt. Og nú stöndum við einmitt frammi fyrir þeim gráa veruleika að fyrir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar er þessi orðin raunin á.
    Þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar setti bráðabirgðalögin í maí sl. þótti óhjákvæmilegt að banna verkbönn og verkföll, þar með taldar samúðarvinnustöðvanir. Þetta var talið nauðsynlegt til að hafa tímabundinn hemil á launakostnaði fyrirtækjanna meðan verið væri að skapa þeim heilbrigðan rekstrargrundvöll. Nú þykir það ekki nauðsyn lengur. Ekki er það vegna þess að nú sé búið

að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækjanna. Það kemur víst engum til hugar. Þvert á móti er nú svo komið stöðu fyrirtækjanna að ekki þykir þurfa lengur að hafa þann vara á að banna verkföll.
    Þegar horfir til almennrar rekstrarstöðvunar og gjaldþrota fyrirtækjanna er samningsstaða launþega ekki sterk og verkföll harla lítið inni í myndinni. Yfirlýsingu hæstv. forsrh. í þessum umræðum í gærkvöld um að fella niður bann við verkföllum verður að skoða í þessu ljósi. Svo grátt hefur aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar leikið atvinnulífið í landinu og stöðu launþega. Í stað þess að launþegar þurfi að þola tímabundið bann við verkföllum meðan þeim er tryggt atvinnuöryggi með heilbrigðum rekstrargrundvelli fyrirtækjanna er þeim fengið í hendur vopn verkfallsréttarins í baráttu gegn atvinnuleysisvofunni. Og svo greinir menn á um hvort yfirlýsing hæstv. forsrh. hafi efnislega þýðingu eða táknræna.
    Það er tvískinnungur ríkisstjórnarinnar sem illu heilli setur svipmót sitt á ástandið um þessar mundir. Það er þóst vera að gera eitthvað, jafnvel að koma við samdrætti í ríkisbúskapnum, en í verki er stefnt í öfuga átt. Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sker úr í þessu efni. Hæstv. fjmrh. heldur því á loft að hann sé að draga úr útgjöldum ríkisins þó að staðreyndin sé að heildarútgjöldin hækki að raungildi og frumvarpið sé þenslufrumvarp en ekki hið gagnstæða. Í verki verður svo hæstv. ráðherra að sjálfsögðu að viðurkenna staðreyndir með því að drita út skattafrumvörpum sínum síðustu daga sem boða meiri skattaálögur en áður. Í stað þess að koma rekstrargrundvelli undir atvinnulífið í landinu, svo sem ríkisstjórnin þykist vera að gera, er hún önnum kafin að bjarga ríkissjóðnum. Það er gripið til allra ráða og þá ekki síst til að leggja auknar álögur á atvinnufyrirtækin sem ekki hafa rekstrargrundvöll fyrir. Ríkisstjórnin vill bjarga eigin skinni, afla fjár til að halda ríkisrekstrinum gangandi, en skilur eftir úti á köldum klaka það sem bjarga þurfti, atvinnureksturinn í landinu.
    Við 1. umr. þess frumvarps sem við nú ræðum upplýsti hæstv. forsrh. að fjöldi frystihúsa myndi verða að þola rekstrarstöðvun ef ekkert kæmi til vegna þess að raungengið væri 15% of hátt. Og hvað átti þá að koma til bjargar?
Hæstv. ráðherra sagðist reikna með kostnaðarlækkun samhliða minnkandi þenslu og lækkun vaxta sem leiddi af efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar. En hvað sem þessu líður: Ef einhver hefur talið í byrjun þings að yfirlýsingar hæstv. forsrh. um áhrif bráðabirgðalaganna væru raunsæjar ættu allir að geta nú verið sammála um að því sé ekki fyrir að fara.
    Hér þarf ekki vitnanna við. Staðreyndirnar blasa við. Hraðfrystihúsin loka hvert af öðru. Þau þola ekki lengur rekstrartapið. Eigið fé er upp urið. Ekki verður lengra gengið í skuldasöfnun. Engin úrræði eru lengur fyrir hendi. Rekstrarstöðvun og gjaldþrot taka við. Þetta hefur verið rás viðburðanna að undanförnu. En verra stendur til.

    Ef frystihúsin fá ekki rekstrargrundvöll strax, sem gerir mögulegt að halda áfram starfseminni, blasa við almenn þrot og stöðvun í þessum undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar snemma á næsta ári. Sömu sögu er að segja af samkeppnisiðnaðinum, útflutningsgreinarnar eru á heljarþröm. Áhrifin segja til sín. Dauðans hönd læsir sig um allt atvinnulíf landsmanna. Atvinnuleysisvofan er komin á kreik.
    En hver eru þá viðbrögð stjórnvalda við þessum ótíðindum? Þau eru nokkuð óljós og jafnvel illskiljanleg ef um lífsmark er þá að ræða. Hvílíkt látæði á hættunnar stund. Helst er í frásögur færandi að ríkisstjórnin og hver ráðherra um sig keppast við að lýsa því yfir við hvert hugsanlegt tækifæri að eitt sé víst, að eitt sé nauðsynlegt: ekki komi til mála að leiðrétta gengið. Eftir því sem augljósara verður að gengislækkun er óhjákvæmileg þegar í stað eru þeir staðráðnari í því að til þess megi ekki koma.
    Kenning ríkisstjórnarinnar er sú að atvinnureksturinn, sjávarútvegurinn, þoli ekki að gengið sé leiðrétt. Sjávarútvegurinn hafi þurft að steypa sér í svo miklar erlendar skuldir vegna rekstrartaps að ekki sé hægt að létta rekstrartapinu af með gengislækkun því að þá bætist enn við hina erlendu skuldabyrði. Gerist nú málið vandasamt þegar það á að vera skárri kosturinn að sitja uppi með orsök vandans fremur en fjarlægja hana. Má þessu helst líkja við dauðvona sjúkling. Vitað er um orsök veikinnar. Sjúkdómseinkennin eru greinileg. Eina leiðin er uppskurður. En sjúklingurinn er svo langt leiddur að honum er ekki treyst að ganga undir aðgerð. Hans bíður því að deyja drottni sínum.
    En sannleikurinn lætur ekki að sér hæða og kenningar ríkisstjórnarinnar eru ekki þess megnugar að breyta neinu þar um. Gengislækkun eykur ekki erlendu skuldirnar, aðeins þarf fleiri íslenskar krónur til að greiða skuldirnar og gengislækkunin fær fyrirtækjunum rekstrargrundvöll og þar með fleiri krónur og möguleika til að standa undir skuldabyrðinni. Þannig verður bjargað þeim fyrirtækjum sem er við bjargandi. Svo einfalt er málið ef menn vilja skilja það.
    En hinu er ekki að neita að böggull fylgir skammrifi. Það stoðar ekki gengislækkun og halda jafnframt áfram að eyða meiru en aflað er. Þá sækir strax í sama horfið. Þess vegna verður ekki komist hjá kjaraskerðingu. En kjaraskerðing skelfir og það er vonlegt, einkum fyrir þá sem lökust hafa kjörin, og það er skiljanlegt. Það verður ekki gengið fram hjá því að öllu varðar að fólk finni að byrðum sé réttlátlega skipt. Þess vegna þarf að verja þá sem verst eru settir og til þess eru leiðir. Það er ekki nægilegt að draga úr einkaneyslunni þar sem því verður komið við. Það er umfram allt þörf að draga úr samneyslunni. Til þess er aðeins ein leið og hún er niðurfærsluleiðin, draga úr útgjöldum ríkissjóðs.
    Samdráttur í ríkisútgjöldum dregur úr þörfinni á skattlagningu og skapar jafnframt möguleika til lækkunar neysluskatta til að vega á móti áhrifum gengislækkunar sem nauðsyn krefur vegna þeirra sem

búa við lökust kjörin. Þannig má lækka söluskatt til að mæta verðhækkunum sem annars mundu óhjákvæmilega fylgja gengislækkun og leiða af sér launahækkanir.
    Eitt er nauðsynlegt. Við 1. umr. fjárlaga gaf ég hæstv. fjmrh. það hollræði að gefa sér tíma til að fást við vandamálið. Ég benti á vinnubrögð viðreisnarstjórnarinnar þegar hún kom til og fjárlög ársins 1960 voru ekki afgreidd á Alþingi fyrr en komið var nokkuð fram á það ár. Ég heyrði ekki betur en hv. 3. þm. Vesturl. væri í umræðunni nú á sömu skoðun að vanda þyrfti betur til fjárlagagerðarinnar með því að gefa sér betri tíma.
    Hæstv. fjmrh. skellti skollaeyrum við þessum ráðum. Hann meinti ekkert með hástemmdum yfirlýsingum um að nú skyldi brotið í blað og horfið frá útþenslu ríkisútgjalda. Það var aðeins fjölmiðlafár, ætlað til að skýla ráðleysisfálmi því sem frv. ber með sér, aðferð til að stinga höfðinu í sandinn, flótti frá veruleikanum.
    Hæstv. fjmrh. hefur aldrei haft neitt annað í huga en að koma þenslufrumvarpi sínu gegnum þingið. En allt var komið undir því að nú væri tekið á ríkisfjármálunum á þann veg að hægt væri að mæta vanda atvinnulífsins. En gengið er í þveröfuga átt.
    Þó að ekki sé við hæfi að tala um þjóðargjaldþrot kemur nú engum til hugar að ofmælt sé að nefna þjóðarvoða. Vandamál getur alltaf borið að, jafnvel svo
að vá sé fyrir dyrum. En þá veltur allt á því að á málum sé tekið til úrlausnar vandanum. Ýmis dæmi koma upp í hugann um hin mestu vandamál sem við hefur verið að glíma á hinum ýmsu tímum. Nærtækasta dæmið að mikilvægi og eðli samanborið við í dag er efnahagsvandinn og úrlausn hans árið 1968. Þá hafði þjóðarbúskapur okkar Íslendinga orðið fyrir meira og skyndilegra áfalli en talið var nokkru sinni fyrr á þessari öld. Verðlag útflutningsafurða hafði lækkað mjög mikið og afli brugðist. Af þessu leiddi að verðmæti útflutningsframleiðslunnar hafði minnkað um allt að 45% milli áranna 1966 og 1968. Þjóðartekjur á mann voru árið 1968 um 15% lægri en á árinu 1966. Greiðsluhalli var við útlönd og gjaldeyrisvarasjóðurinn genginn til þurrðar. Atvinnuöryggið var í beinni hættu og atvinnuleysisvofan farin að bæra á sér.
    Sjá menn ekki einhverja líkingu milli vandamálsins 1968 og þess vanda sem okkur er nú á höndum? Og það var þá eins og nú að mestu varðar að mönnum fallist ekki hendur á hættunnar stund. Og það skeði ekki 1968. Þá var brugðist við vandanum með 35% gengislækkun. Þannig var lagður nauðsynlegur grundvöllur að alhliða uppbyggingu atvinnulífsins og sköpuð skilyrði til hallaleysis í greiðsluviðskiptunum við útlönd. Þannig var haldið á málum að vörn var snúið upp í sókn til þjóðarheilla. Og þarf frekar vitnanna við?
    Stjórnvöld þurfa nú eins og 1968 að láta hendur standa fram úr ermum. En það er ekki gert. Samt þolir það enga bið. Það verður að gera nú þegar. Það

verður að gera það eina sem völ er á eins og nú er komið. Það verður að leiðrétta gengið strax. Jafnframt má ekki afgreiða fjárlög strax. Það verður að gefa sér tíma fram á næsta ár til að endurskoða fjárlagafrv. með það fyrir augum að gera gengislækkun færa leið og raunhæfa til að skapa atvinnulífinu rekstrargrundvöll.
    Þetta er þyrnum stráð leið. Á því leikur enginn vafi. Það er ekki góðra kosta völ. En þetta er fær leið og raunar eina færa leiðin að mínu viti. Ekki verður komist hjá að þjóðin taki á sig í bili réttlátlega skipt byrðum. En bót er í máli að það skilar árangri í bættum hag til frambúðar. Og raunar er það skilyrði þess að fólk uni því. En mikið er í húfi, atvinnuöryggi landsmanna og fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar.
    En hvað dvelur orminn langa? Hvers vegna aðhefst ríkisstjórnin ekkert nema þá helst til hins verra? Það ætti naumast að vera vegna fáfræði. Og ekki verður þeim frýjað vits. Ég gæti helst látið mér til hugar koma að skýringin væri hræðsla. En ef svo væri er það ekkert spaug. Einn af helstu stjórnmálajöfrum þessarar aldar sagði eitt sinn að hættulegasti veikleiki stjórnmálamanns væri hræðsla. Það er sama hvað maðurinn er gáfaður, hvað hann er menntaður og hvað hann hefur mikla reynslu. Ef hann er hræddur er dómgreindin ekki í lagi og hann getur alltaf verið að gera vitleysur. Þetta voru ummæli hins merka stjórnmálamanns. Í mínum huga er það velviljaðasta skýringin á framferði ríkisstjórnarinnar ef þar væru hræddir menn á ferðinni.
    Og við hvað gætu menn hugsanlega verið hræddir? Það kann að geta verið ýmislegt. Það fer nú ekki milli mála að í stjórnarflokkunum öllum ríða húsum ýmsir fordómar sem eru skeinuhættir skynsamlegum viðbrögðum í þeim vanda sem við er að glíma. Yfirlýsingar ráðherranna sjálfra í tíma og ótíma um gengismálin hafa komið þeim í sjálfheldu með því að vekja upp þann draug í almenningsálitinu sem þeir kveða ekki niður aftur. Það er og alltaf svo að þegar eitthvað skal gera má benda á annað sem ekki ætti að vera vangert. Í öllum málum þarf að taka af skarið. En ef menn eru hræddir er ekkert að vita hvað þeir gera. Þeir vita ef til vill ekki við hvað þeir eru hræddir.
    Ég hef tjáð mig um þann vanda, herra forseti, sem við nú stöndum frammi fyrir. Ég geri ráð fyrir að allir hv. þm. geri sér grein fyrir alvöru málsins og ekki síst hæstv. forsrh. sjálfur sem ég vil ekki ætla að hræðsla villi sýn.
    Við 1. umr. um frv. það sem við nú fjöllum um tjáði ég mig um hinar svokölluðu efnahagsaðgerðir bráðabirgðalaganna. Ég lýsti þá skoðun minni. Ef raunverulegar efnahagsaðgerðir litu ekki dagsins ljós yrðu skammtímaaðgerðir þessa frv. aðeins til að tefja fyrir að málin yrðu tekin föstum tökum, aðeins til að tefja fyrir. En það væri ekki undankomu auðið. Við yrðum að sjá fótum okkar forráð í efnahagsmálunum. Þar við lægi fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Ég lagði áherslu á að ráðstafanir, sem þetta frv. gerði ráð

fyrir, gætu aldrei gert annað og meira en að skapa eitthvert svigrúm til undirbúnings efnahagsaðgerða til að treysta rekstrargrundvöll útflutningsgreina atvinnulífsins. Allt væri komið undir framhaldinu. Þetta var sagt fyrir nær tveim mánuðum hér á þessum stað. Og nú vitum við hvað framhaldið hefur verið eða raunar að framhaldið vantar.
    Það er með tilliti til þeirrar vitneskju sem ég legg nú áherslu á nauðsyn gengislækkunar nú strax til að treysta rekstrargrundvöll útflutningsgreina atvinnulífsins og frestað verði afgreiðslu fjárlagafrv. fram á næsta ár svo að komið verði við endurskoðun þess í þeim tilgangi að gengislækkun geti orðið fær leið og raunhæf við úrlausn þess efnahagsvanda sem við nú glímum við.
    Herra forseti. Nú er vá fyrir dyrum. Röng gengisstefna hefur ekki einungis komið frystihúsunum á vonarvöl heldur einnig iðnaðinum, útflutningsgreinunum
öllum, efnahagslífinu í heild. Afleiðingarnar blasa við í geigvænlegum greiðsluhalla við útlönd, erlendri skuldasöfnun og byggðaröskun. Atvinnuöryggi landsmanna er brostið og atvinnuleysisvofan farin að sýna sig.
    Enginn hefur lýst þessu ástandi með sterkari orðum en einmitt hæstv. forsrh. Þjóðargjaldþrot er stórt orð og raunar of stórt. Orðaleikjum verður nú að linna. Athafna er þörf. Þjóðarheill krefst aðgerða.
    Ég vil segja hæstv. forsrh.: Það er tími kominn til að taka af skarið.