Aðgerðir í efnahagsmálum
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Júlíus Sólnes:
    Herra forseti. Þessi brtt. frá okkur þingmönnum Borgfl. í Ed. er hluti af þeim brtt. sem við höfum gert um launa- og kjaragreinar þessa frv. Þó að fyrri brtt. okkar og þingmanna Kvennalistans hafi verið felldar teljum við nauðsynlegt og sjálfsagt að samþykkja þessa brtt., enda báru ummæli m.a. forseta Alþýðusambands Íslands með sér að hér væri um gróflega storkun að ræða við launþega í landinu. Ég segi já.