Efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Ég veit ekki betur en að ríkisstjórnin hafi þegar ákveðið að verja 75 millj. kr. til þessara hluta á þessu ári og ábyrgjast aðrar 75 millj. kr. strax í byrjun næsta árs. Í ljósi þess að stjórnarandstaðan leggst gegn öllum tekjuöflunaráformum ríkisstjórnarinnar þykir mér þetta vera heldur lítið merkileg sýndartillaga og því segi ég nei.