Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi máls míns biðja hv. deildarmenn afsökunar á því að ég skyldi tefjast og ekki vera kominn hér til fundar strax í upphafi reglulegs fundartíma, en því miður var það vegna þess að fundur sem ákveðinn var með skyndingu kl. hálftvö reyndist taka lengri tíma en ég hafði ætlað. Ég var ásamt forsrh. og viðskrh. bundinn á þeim fundi, en það seinkaði m.a. för hæstv. forsrh. til efri deildar. Mér finnst hins vegar rétt, vegna þess að það er auðvitað ekki eðlilegt að virðuleg deild þessarar stofnunar skuli þurfa að bíða eftir slíkum fundum, að biðjast afsökunar á þeirri töf hér í upphafi.
    Ég mæli hér fyrir frv. um tekjuskatt og eignarskatt til breytingar á lögum nr. 75/1981. Eins og kunnugt er og oft hefur borið á góma við umræður hér í hv. deild og í Sþ. var gert ráð fyrir því í frv. til fjárlaga fyrir árið 1989 að tekju- og eignarskattur einstaklinga og fyrirtækja hækkaði frá því sem orðið hefði að óbreyttum lögum. Þessi hækkun tekju- og eignarskatts er liður í þeirri viðleitni að ná betra jafnvægi í ríkisfjármálunum á næsta ári en verið hefur á þessu ári og undanförnum árum.
    Frv. mótast af þeirri meginstefnumörkun að skattbyrði hinna tekjulægstu hækki ekki og að þeir sem hafa miklar tekjur eða eiga miklar eignir beri hlutfallslega stærri hluta aukinnar skattlagningar.
    Auk þess er í frv. að finna ýmiss konar ákvæði um breytta skattlagningu fyrirtækja sem að mínum dómi miða að því að gera hana réttlátari og sanngjarnari og loka ýmiss konar óeðlilegum undanfærsluákvæðum sem á undanförnum árum hafa haft það í för með sér að þrátt fyrir góðan hagnað hefur aðeins lítill hluti fyrirtækjanna greitt tekjuskatt. Má í því sambandi vekja athygli á því að þrátt fyrir mikið góðæri á árinu 1987 greiddi einungis um 1 / 3 fyrirtækjanna í landinu tekjuskatt. Ég vænti þess að það séu allir hv. alþm. sammála því viðhorfi að það sé fullkomlega óeðlilegt kerfi að í einhverju mesta góðæri skuli svo lítill hluti fyrirtækjanna greiða tekjuskatt.
    Á undanförnum árum hafa verið gerðar margvíslegar breytingar í nágrannalöndum okkar á skattlagningu fyrirtækja sem stefna í sömu átt og þær breytingar sem hér eru lagðar til. Að mörgu leyti tel ég þess vegna að þau ákvæði þessa frv. sem snúa að skattlagningu fyrirtækjanna séu þegar til lengdar horfir efnismeiri sem veigamikið spor í breyttri skattlagningarstefnu í landinu, þar sem aftur á móti varðandi skattlagningu einstaklinganna er fyrst og fremst um að ræða breytingar á ákveðnum tölulegum stærðum.
    Efni þessa frv. má í grófum dráttum skipta í þrjá meginflokka. Í fyrsta lagi er atriði sem snertir breytingar á tekjusköttum einstaklinga, persónuafslætti og barnabótum, í öðru lagi, eins og ég nefndi áðan, breytingar á tekjusköttum fyrirtækja og í þriðja lagi breytingar á eignarsköttum einstaklinga og fyrirtækja.
    Ég mun hér fyrst fjalla um þær breytingar sem gerðar eru á tekjuskatti einstaklinga og vil í upphafi víkja að þeim efnisatriðum sem reifuð voru í frv. til

fjárlaga.
    Í fyrsta lagi var þar lýst þeirri ætlun að skatthlutfallið sjálft yrði hækkað.
    Í öðru lagi að persónuafsláttur og barnabætur breyttust á þann veg að skattbyrði af lægri tekjum héldist óbreytt. Ég vil vekja athygli hv. alþm. á þeim eðliseiginleikum þessa skattkerfis sem við búum við í dag, að með samspili skattprósentunnar annars vegar og barnabóta og persónuafsláttar hins vegar er hægt að ná fram með ríkum hætti eiginleikum þess kerfis að létta skattana á fólki með lægri tekjur og lágar tekjur, en þyngja þá að sama skapi á fólki með hærri tekjur. Þannig segir í raun og veru breyting á prósentunni einni sér ósköp lítið ef ekki er einnig höfð hliðsjón af því hvað gert er með persónuafslátt og barnabætur.
    Í þriðja lagi var þegar fjárlagafrv. var kynnt lögð áhersla á að skattleggja launa- og fjármagnstekjur, raunvexti, arð og söluhagnað á þann veg að þessi skattlagning yrði samræmd.
    Þá er rétt einnig að víkja nokkuð að því, áður en ég kem að efnisatriðum frv. sjálfs, að eins og hv. alþm. er kunnugt og oft hefur borið á góma hér við umræður undanfarnar vikur taldi ég rétt að kanna sérstaklega kosti þess og galla að innleiða nýtt hátekjuþrep í tekjuskattinum. Ástæður þess að ég taldi nauðsynlegt að slíkt yrði kannað voru í fyrsta lagi þær að í röðum stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar var mikill áhugi á því máli, í öðru lagi meðal þingmanna sem eru utan ríkisstjórnar eða í stjórnarandstöðu er einnig verulegur áhugi á að láta kanna það mál og í þriðja lagi hafa ýmis félagssamtök, ég nefni t.d. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, ályktað sérstaklega um þann vilja sinn að tekið yrði upp sérstakt hátekjuþrep.
    Að undanförnu hefur þessi möguleiki þess vegna verið til skoðunar í fjmrn. Sú skoðun hefur leitt í ljós að innan ramma núverandi kerfis er vissulega mögulegt að breyta tekjuskattsbyrði mismunandi tekjuhópa umtalsvert með því að hagræða skattprósentu og persónuafslætti og láta þessa tvo þætti leika saman
með öðrum hætti en gert er í núgildandi skattalögum. Þannig er það vissulega rétt, eins og ýmsir stuðningsmenn núgildandi kerfis hafa haldið fram, að það felur í sér töluvert mikla möguleika til tekjujöfnunar þó að þeir möguleikar séu vissulega ekki óendanlegir. Vandinn er hins vegar sá að innan ramma núverandi kerfis er vart mögulegt að hækka skatta hinna tekjuhærri án þess að skattar flestra annarra breytist. Nýtt skattþrep hefði þess vegna þann kost að auka tekjuskatta þeirra sem hafa hærri tekjur án þess að breyta skattbyrði annarra. Það er e.t.v. það grundvallaratriði sem skilur eiginleika skattkerfis með fleiri en eitt skattþrep frá eiginleikum þess kerfis sem við búum við í dag. Á hitt er svo einnig að líta að ýmsir verulegir annmarkar eru einnig á því í okkar þjóðfélagi að taka upp nýtt skattþrep.
    Í fyrsta lagi að launafólk með sveiflukenndar tekjur innan ársins getur lent í hærra skattþrepi einstaka

mánuði án þess að meðaltekjur þess á árinu öllu gæfu tilefni til þess.
    Í öðru lagi að þeir sem fá laun frá mörgum atvinnurekendum kunna að sleppa undan hátekjuþrepinu, enda þótt tekjur þeirra gæfu ekki tilefni til þess.
    Í þriðja lagi að skattlagning hjóna getur, í ríkari mæli en nú er, orðið misjöfn, eftir því hvernig tekjurnar skiptast á milli þeirra.
    Þessi vandamál eru þó á engan hátt óyfirstíganleg. Við hinu fyrsta má bregðast með því að reikna staðgreiðsluna alltaf frá áramótum. Með því móti er hægt að tryggja fulla nýtingu á lægra skattþrepinu áður en einstaklingur fer í hærra skattþrepið. Annað vandamálið mætti leysa með því að gera einstaklingum skylt að standa sjálfir skil á staðgreiðslunni í hærra skattþrepinu, ef þeir vinna hjá fleiri en einum atvinnurekanda. Þriðja vandamálið, sem snertir skattlagningu hjóna, er hins vegar erfiðara úrlausnar, enda má segja að það sé með vissum hætti almennt vandamál í skattlagningu en ekki innheimtuvandamál eins og hin atriðin tvö. Hér er þó rétt að benda á að til greina gæti komið að miða efra skattþrepið við hærri tekjur en ella ef annað hjónanna er með litlar tekjur. Í þessu fælist viss samsköttun sem gæti lækkað tekjur af nýju skattþrepi.
    Ég hef kosið að reifa þessi atriði hér vegna þess að umræðan um annað skattþrep hefur verið mjög rík hér á þingi undanfarnar vikur og einnig í þjóðfélaginu. Ég vil í því sambandi geta þess að á nánast hverjum einasta fundi sem ég hef komið á, hvort sem það er stjórnmálafundur hjá félagssamtökum, áhugamannafélögum, klúbbum eða af hverju öðru tagi sem þeir fundir hafa verið, þá hefur ávallt einhver, oftast margir, sett fram þá spurningu hvers vegna væri ekki hægt að taka upp annað eða fleiri skattþrep í okkar skattkerfi --- og hafa sjálfir lagt til að svo yrði. Ég held þess vegna, og það er mitt mat sem kannski erfitt er að sanna en engu að síður mitt mat, að meðal þjóðarinnar ríki sá skilningur að eðlilegt sé í tekjuskattskerfi að það séu fleiri en eitt skattþrep og það þurfi þess vegna að vera ærnar ástæður fyrir löggjafann að hafa til lengdar við lýði í landinu kerfi sem ekki hefur þessa eiginleika. Ég held að vísu einnig að bæði þingheimur og skattyfirvöld hafi vanrækt að skýra út fyrir almenningi þá eiginleika til tekjujöfnunar sem núverandi kerfi hefur með samspili skattprósentu, persónuafsláttar og barnabóta.
    Þetta mál er þess vegna á engan hátt einfalt og ég hef því kosið að láta vinna í því máli áfram þannig að þingheimur allur, þingflokkarnir allir, samtök utan þings, sem vilja kynna sér og taka afstöðu til þessa máls, geti haft rækilegan tíma til þess á næsta ári.
    Ég hef hins vegar sannfærst um það af ítarlegum viðræðum mínum við stjórnendur og starfsfólk skattakerfisins í landinu að jafnvel þótt tekin væri ákvörðun um það hér og nú að breyta tekjuskattskerfinu á þann veg að nýtt skattþrep væri tekið upp, þá væri afar hæpið, ef ekki útilokað, að framkvæmd þess gæti tekist með svo stuttum fyrirvara

svo vel væri. Það er nokkurn veginn samdóma álit þeirra sem ég hef rætt við og starfa við framkvæmd skattakerfisins að lágmarksundirbúningstími séu 4--6 mánuðir frá því að ákvörðun er tekin þar til starfsmönnum skattakerfisins væri ætlað að framkvæma þessa breytingu.
    Það er rétt að ég skýri einnig frá því hér að starfsfólk skattakerfisins hefur mjög lýst því hvað það hafi haft miklar áhyggjur og í reynd búið við mikla erfiðleika við að tryggja örugga framkvæmd staðgreiðslunnar á þessu ári. Það hafi á engan hátt verið öruggt að það tækist. Breytingin hafi í reynd, eins og einn maður orðaði það, verið borin af starfsfólkinu frá einum mánuði til annars án þess að vissa væri hvort það tækist frá einum mánuði til annars að tryggja örugga framkvæmd. Mér finnst rétt að skýra frá þessu hér vegna þess að mín reynsla hefur a.m.k. verið á þann veg að hv. alþm. allir hugi kannski meira að efnisþáttum skattalaganna sjálfra og minna að erfiðleikum þess fólks sem síðan er ætlað, oft við erfiðar aðstæður og á skömmum tíma, að framkvæma þær ákvarðanir sem hér eru teknar.
    Þess vegna varð það mín niðurstaða að hvað sem liði afstöðu manna til tekjuskattskerfis með eitt eða fleiri skattþrep þá væri ógerlegt að taka með
svo skömmum fyrirvara sem við höfum nú ákvörðun um breytingar, einfaldlega af tæknilegum og framkvæmdalegum ástæðum. Þess vegna m.a. er það niðurstaðan að leggja fram það frv. sem hér er til umræðu en engu að síður halda áfram þeirri efnislegu og faglegu vinnu sem framkvæmd hefur verið varðandi þetta atriði svo allir geti snemma á næsta ári haft grundvöll til þess að skoða málið að nýju, bæði þeir sem eru með og hinir sem eru á móti skattkerfi með fleiri en eitt skattþrep. Þá hafa menn betri og efnislegri grundvöll, bæði þeir sem hafna því, til þess að færa rök fyrir sínu máli, og væntanlega einnig hinir sem eru með því til þess að sækja sér röksemdaforða í þær efnislegu greinargerðir sem fyrir verða lagðar.
    Ég vil að lokum í þessu efni láta í ljósi þá ályktun mína að í reynd sé um tvo möguleika að ræða ef sérstakt hátekjuþrep ætti að verða að veruleika á næstu árum. Í fyrsta lagi að nýju skattþrepi verði komið á í álagningu eftir á eingöngu og svo hins vegar að nýtt skattþrep verði tekið upp í staðgreiðslu síðar.
    Ég vil einnig árétta það hér sem ég hef lýst yfir nokkrum sinnum, bæði í umræðum um þingsköp hér í gær, í umræðum utan dagskrár og við önnur tilefni, að ákveðið hefur verið að leggja ekki fram nú frumvarp um skattlagningu raunvaxta. Ekki vegna þess að hæstv. ríkisstjórn telji það ekki vera efnislega rétt eða hafi í nokkru breytt þeirri ákvörðun sinni að samræma skattlagningu fjármagnstekna hér á Íslandi þeim reglum og lögum sem gilda um það efni í nær öllum nágrannalöndum okkar og þykir eðlilegt og sjálfsagt í flestum þróuðum ríkjum heims, heldur er ástæðan einfaldlega sú að við höfum viljað vanda vel þessa lagasetningu. Og eins og ég greindi frá í gær en

vil formlega endurtaka hér, þá hefur verið ákveðið að samstarfsnefnd fjmrh., viðskrh., forsrh. og Seðlabankans vinni drög að slíkri lagasetningu sem síðan verða kynnt ýmsum kunnáttumönnum og fagmönnum sem starfa í peningastofnunum landsins, bæði viðskiptabönkum og öðrum peningastofnunum, svo og öðrum áhugamönnum um þetta efni. Finnst mér vel koma til greina ef óskir eru um það frá þingflokkum bæði utan og innan stjórnar að þeir hafi möguleika til að fylgjast með þessari sérfræðilegu vinnu vegna þess að hún er flókin og þetta er mikilvægt viðfangsefni og nauðsynlegt að ég tel að um hana skapist jafnbreið samstaða hér á landi eins og hefur verið í nágrannalöndum okkar þar sem stjórnmálaflokkar, óháð því hvort þeir telja sig til hægri eða vinstri, hafa talið sjálfsagt og eðlilegt að raunvaxtatekjur séu skattlagðar líkt og vinnutekjur.
    Ég vil í þessu sambandi geta þess að á vegum fjmrn. hefur á undanförnum vikum verið sérstaklega unnið að því að afla gagna og fræðast um reynslu í þessum efnum frá Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum þar sem slíkar breytingar hafa verið við lýði um nokkurra ára bil.
    Hvað efnisþætti þess frv. sem hér er til umræðu snertir má segja að hvað tekjuskatta einstaklinga snertir þá feli breytingarnar í sér nokkur meginatriði.
    Í fyrsta lagi vil ég vekja athygli á því að almenna skatthlutfallið hækkar úr 28,5% í 30,5%. Verulegum hluta þeirrar hækkunar sem þessi prósentubreyting skilar í ríkissjóð er hins vegar varið til þess að hækka einnig persónuafslátt og barnabætur. Má í því sambandi taka það sem dæmi að skattar hjóna með tvö börn og allt að 130 þús. kr. í mánaðartekjur lækka eða standa í stað þrátt fyrir þessa hækkum skattahlutfallsins vegna þeirrar hækkunar á persónuafslætti og barnabótum sem hér er gerð tillaga um.
    Vegna þess að eðlilega hefur orðið nokkur umræða um það að aðrar prósentur hefðu komið til greina í þessum efnum, t.d. 2,5% eða 3%, vil ég vekja athygli hv. deildarmanna á því að með hærri skattprósentu hefði verið hægt að verja meira fjármagni til breytinga á persónuafslætti og barnabótum. Og hvað mig snertir og minn flokk, þá hefðum við í sjálfu sér verið tilbúnir til þess að hafa prósentuna hærri en verja að sama skapi meira fjármagni í breytingar á persónuafslætti og barnabótum. En niðurstaða stjórnarflokkanna varð hins vegar á þann veg sem fram kemur í frumvarpinu hér og nú.
    Mér finnst í öðru lagi rétt að vekja athygli á því sem ég hef orðið var við að mjög fáir gera sér grein fyrir: Sá þjóðfélagshópur sem mjög hefur oft áður verið til umræðu í sambandi við breytingar á tekjusköttum, þ.e. einstæðir foreldrar, eru þannig staddir í skattakerfinu þegar á heildina er litið bæði fyrir og ekki síður eftir þá breytingu sem hér er lögð til að einstæðir foreldrar hafa þá sérstöðu umfram aðra þjóðfélagshópa, sem oft eru nefndir í umræðu um skattamál, að þeir greiða að jafnaði enga tekjuskatta þegar á hópinn í heild er litið. Persónuafsláttur þeirra

og barnabætur duga til þess að greiða að fullu bæði tekjuskatt og útsvar og raunar gott betur, þannig að í heildina fá einstæðir foreldrar til sín nettó meira en þeir leggja fram í skattakerfið. Tel ég mjög mikilvægt að þeim eiginleika skattakerfisins sé haldið áfram. Þær breytingar sem hér eru lagðar til fela það í sér að skattar einstæðra foreldra með allt að 110 þús. kr. mánaðarlaun, ýmist lækka eða standa í stað.
    Í þriðja lagi vil ég vekja athygli á því að þrátt fyrir 2% hækkun á jaðarskatthlutfalli þá hækkar raunverulegt skatthlutfall einungis um 0,5%, úr 13% í 13,5% þegar á heildina er litið.
    Í fjórða lagi vil ég vekja athygli á því að heimilt verður að nýta persónuafslátt til greiðslu eignarskatts með sama hætti og hann gengur til greiðslu á tekjuskatti og útsvari. Ég held að þetta ákvæði sé sérstaklega mikilvægt þegar menn huga að skattlagningu ellilífeyrisþega með litlar tekjur.
    Mér finnst óþarfi hér að verja tíma deildarinnar til þess að endursegja tölur sem ýmist er að finna í frumvarpsgreinunum sjálfum í ítarlegra máli eða lýsa þeim dæmum sem fylgja frv. Sú yfirferð held ég að sé hagkvæmari hjá hverjum og einum fyrir sig þegar hann eða hún hefur ritaðan textann fyrir framan sig heldur en að fara yfir það í löngu máli munnlega hér úr ræðustól. Ég vil þó vekja athygli hv. alþm. á því að ef þeir skoða þær töflur sem frv. fylgja um breytingar á mánaðarlegum skattgreiðslum hinna ýmsu þjóðfélagshópa sem þar eru sýndir sem dæmi, þá er þar í reynd um mjög litlar upphæðir að ræða. Má í því sambandi t.d. nefna að í ákveðnum þjóðfélagshópum með mánaðartekjur sem nema 150 þús. kr. á mánuði felur breytingin einungis í sér 300 kr. hækkun á greiðslu á hverjum mánuði. Og það þarf að fara töluvert yfir 200 þús. og upp í 300 þús. til þess að breytingin nemi einu til þremur þúsundum í hverjum mánuði. Það eru þessar hlutfallstölur sem ég held að segi kannski skýrari sögu um breytingarnar en prósentur eða einhver heildaryfirlit sem stundum eru sett fram í þessum efnum.
    Ástæðan fyrir því að við höfum kosið að setja þetta fram m.a. í grg. frv. með þessum hætti er að í staðgreiðslukerfinu er fólk smátt og smátt að venjast því að hugsa um skattgreiðslur sína á mánaðargrundvelli og hver breytingin er miðað við mánaðartekjurnar hverju sinni, þar sem oft áður í gamla kerfinu beindist athygli manna að breytingum fyrir árið í heild. Við höfum engu að síður í grg. frv., í fskj. einnig sýnt breytingarnar fyrir árið í heild og ég held að þótt menn geti haft mismunandi skoðanir á eðli þessara breytinga sem hér eru þá geti flestir verið sammála því að hér er ekki um háar upphæðir að ræða fyrir allan þorra þess fólks sem er vinnandi í okkar landi, fyrir hluta þess um lækkun, fyrir hluta þess að það stendur í stað, en fyrir aðra óveruleg hækkun, og þá fyrst þegar komið er upp í verulega háar mánaðartekjur nemur hækkunin fáeinum þúsundum króna á mánuði.
    Virðulegi forseti. Ég sagði hér áðan að ef horft væri á efnisþætti frv. en ekki þær breytingar á

tölulegum stærðum sem gerðar eru þá kynni breytingin á tekjuskatti fyrirtækja að ýmsu leyti að vera athyglisverðari þegar til lengdar lætur en þær breytingar á tölulegum stærðum sem ég vék að áðan. Ég vil í því sambandi árétta það sem ég hef áður sagt að í flestum löndum í okkar heimshluta hefur æ meiri vinna verið í það lögð að breyta skattlagningu fyrirtækja á þann veg að fyrirtækin greiði með sanngjörnum hætti til þjóðfélagsins en geti ekki notað löglegar undansláttar- og undanfærsluleiðir til þess að draga allverulega úr framlagi sínu til hins sameiginlega sjóðs landsmanna. Í þessum efnum höfum við Íslendingar að hluta til verið á sömu braut. Ég nefni t.d. að fyrir nokkrum árum var ákveðið að bankarnir greiddu einnig tekjuskatt sem þeir höfðu ekki gert áður og á þessu þingi liggur fyrir frv. um að fleiri peningastofnanir gangi einnig þá braut. Ég vænti þess að hv. alþm. geti allir verið sammála um það að tekjuskattskerfi fyrirtækja, þar sem aðeins þriðjungur fyrirtækjanna greiðir tekjuskatt í einhverju mesta góðæri sem við höfum hér lifað, hljóti að vera í meira lagi óeðlilegt, óréttlátt og götugt kerfi.
    Í þessu frv. er í fyrsta lagi lagt til að fækka frádráttarliðum og þar með breikka sjálfan skattstofninn. Í öðru lagi að herða reglur um fyrningar og hlunnindi, t.d. vegna rekstrarkostnaðar fólksbifreiða í eigu fyrirtækja en það hefur löngum verið eitt af því sem tíðkast hefur mjög í okkar landi að fyrirtæki hafa látið eigendum fyrirtækjanna eða æðstu stjórnendum þeirra í té fólksbifreiðir til einkaafnota og það hefur ekki ríkt samræmi í skattlagningu þessara hlunninda samanborið við þær byrðar sem hvíla á venjulegum borgurum og bifreiðaeigendum landsins.
    Tekjuskattar fyrirtækja eru taldir geta skilað 2 milljörðum og 700 millj. kr. í ríkissjóð á næsta ári eða nokkru meira en gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. Þessi hækkun er afleiðing af endurskoðun sem fram hefur farið í fjmrn. í ljósi þeirra breytinga sem hér eru lagðar til. Þó er rétt að hafa fyrirvara á um þetta efni vegna þess að það er í sjálfu sér erfiðara af margvíslegum efnislegum og tæknilegum ástæðum að áætla skattgreiðslu fyrirtækja heldur en einstaklinga, einkum og sér í lagi þegar jafnmiklar breytingar eru gerðar eins og hér um ræðir.
    Um einstakar breytingar á skattgreiðslu fyrirtækjanna má eftirfarandi teljast einna mikilvægast:
    1. Reglur um fyrningu lausafjár eru þrengdar þannig að gjaldfærslan dreifist á allan notkunartímann en verður ekki að fullu nýtt á kaupárinu.
    2. Almennar fyrningar aðrar en á fasteignum, dreifast á lengri tíma en
hingað til. Með þessu er í reynd verið að færa afskriftahlutföllin í upprunalegt horf, þ.e. eins og þau voru ákveðin við heildarendurskoðun laganna 1980.
    3. Heimild til að ráðstafa hluta rekstrarhagnaðar í sérstakan fjárfestingarsjóð verði lækkuð úr 30% í 15%.
    4. Gjaldfærsla fyrirtækja, eins og ég gat um áðan, vegna rekstrarkostnaðar fólksbifreiða í þeirra eigu verði mjög takmörkuð. Með þessu er að því stefnt að

bifreiðahlunnindi séu talin fram til skatts í ríkara mæli en gert er í dag.
    5. Afnumin verði verðbreytingarfærsla hjá hlutafélögum vegna lána til eigenda og framkvæmdastjóra þeirra. Þetta er eitt af þeim atriðum sem einnig hafa skapað að okkar dómi óeðlilega mismunun og forréttindi innan núverandi kerfis.
    6. Heimild til yfirfærslu taps við kaup eða sameiningu fyrirtækja í óskyldum rekstri verði þrengd. Það hefur farið vaxandi --- og mun e.t.v. gera það miðað við erfiða stöðu og rekstrarstöðvun og gjaldþrot margra fyrirtækja --- að ýmis fyrirtæki önnur freistist til þess að kaupa tapfyrirtæki eða gjaldþrotafyrirtæki eingöngu í skattahagnaðarskyni. Slíkt teljum við mjög óeðlilegt, og hægt að færa fyrir því margvísleg rök, og viljum þess vegna koma í veg fyrir það að tap við kaup eða sameiningu fyrirtækja í óskyldum rekstri verði jafnrúm og verið hefur. Hins vegar verður áfram hægt, þegar um sameiningu eða samtengingu fyrirtækja í skyldum rekstri í hagræðingarskyni eða þegar um annan eðlilegan rekstrartilgang er að ræða, að yfirfæra tapið þá með sama hætti og áður.
    Að síðustu er svo rétt að vekja einnig athygli á því að skattahlutfall fyrirtækjanna hækkar um 2% til samræmis við hækkunina á tekjuskatti einstaklinga, úr 48% í 50%.
    Ég reikna með að þessar breytingar muni verða teknar til ítarlegrar skoðunar í hv. nefnd og vil að lokum árétta það sem ég gat um áðan að það skattakerfi sem við búum nú við, hvað fyrirtækin í landinu snertir, hafði það í för með sér að einungis þriðjungur skattskyldra fyrirtækja í landinu greiddi einhvern tekjuskatt vegna reksturs á síðasta ári, þ.e. á árinu 1987. Það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni þingsins að koma í veg fyrir að skattakerfi af því tagi haldist áfram óbreytt. Því þótt það sé nauðsynlegt og sjálfsagt að atvinnulífið í landinu og fyrirtækin hafi eðlilega stöðu til þess að vaxa og dafna, þá er það á sama hátt eðlilegt að þau greiði hluta af sínum eðlilega hagnaði til sameiginlegs sjóðs landsmanna líkt og einstaklingarnir gera í okkar landi.
    Virðulegi forseti. Þriðji og síðasti efnisþáttur þessa frv. snertir breytingar á eignarskatti einstaklinga og fyrirtækja. Í fyrsta lagi er þar um að ræða hækkun á lægra þrepinu í eignarskatti einstaklinga úr 0,95% af nettóeign, þ.e. skuldlausri eign yfir 250 þús. kr., í 1,2%. Þá er og lagt til að hækka eignarskatt fyrirtækja úr 0,95% af sams konar nettóeign í 1,2%. Þar með er eignarskattshlutfallið orðið jafnhátt og það var fyrir nokkrum árum síðan.
    Sú nýjung sem menn munu kannski fyrst og fremst horfa á snertir hins vegar þá breytingu að tekið er upp nýtt háeignaþrep í eignarskattinum, 1,5%, á skuldlausa eign yfir 6 millj. kr. hjá einstaklingi og 12 millj. kr. skuldlausa eign hjá hjónum. Áætlað hefur verið að það séu u.þ.b. 6 þúsund einstaklingar af 182 þúsundum framteljenda sem muni greiða þetta sérstaka háeignaþrep eða aðeins örfá prósent allra þeirra gjaldenda sem greiða eignarskatt í landinu. Hér er þess vegna ekki um það að ræða að hækka sérstaklega

með þessu háeignaþrepi eignarskattinn á öllum þorra, hvað þá heldur stórum hluta landsmanna, heldur eingöngu á þann minni hluta, þann litla hóp, ef öll heildin er skoðuð, sem hefur skuldlausa eign, hvað hjón snertir yfir 12 millj. kr. Til samanburðar má geta þess að menn þurfa að fara í einbýlishúsin í dýrustu hverfum höfuðborgarsvæðisins til þess að finna húseignir sem eru yfir þessum mörkum. Allar venjulegar húseignir, íbúðir, raðhús, lítil einbýlishús, eða þær húseignir sem allur þorri Íslendinga býr í, eru undir þessum mörkum.
    Eins og ég vék að áðan er einnig í þessu frv. lögð til sú breyting varðandi nýtingu á persónuafslætti að það er heimilt að nýta hann til greiðslu á eignarskatti sem ekki hefur verið til þessa. Sú breyting hefur það m.a. í för með sér að ellilífeyrisþegar með litlar sem engar tekjur munu ekki þurfa að greiða eignarskatt.
    Virðulegi forseti. Ég hef hér leitast við að reifa í stuttu máli þau meginatriði sem setja svip sinn á þetta frv. þótt vissulega væri tilefni til þess að fjalla um það ítarlega og lengi. Ég hef einnig talið nauðsynlegt að gera grein fyrir ýmsum atriðum sem sett hafa svip sinn á undirbúning frv. og áfram verður unnið að á vegum ráðuneytisins og full ástæða væri til að allir þingflokkar hefðu tækifæri til á næsta ári að fylgjast með.
    Ég vil svo mælast til þess að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.