Tekjuskattur og eignarskattur
Miðvikudaginn 14. desember 1988

     Stefán Valgeirsson:
    Herra forseti. Það er sami söngurinn. Síðasti ræðumaður var að tala um þessa skatta. Það er aldrei ánægjuefni að þurfa að leggja á skatta. En er það meining þeirra hv. þm. Sjálfstfl. að fjárlög verði afgreidd með miklum halla? Eða hefur t.d. hv. þm. Geir H. Haarde komið fram með sínar hugmyndir um aðra tekjuöflun? Ef það væri, þá væri hægt að taka mark á svona ræðuflutningi en annars ekki. ( GHH: Ég hlakka til að Stefánssjóður verði lagður niður.) Ég geri alveg ráð fyrir því að hv. þm. muni leggja til að Atvinnutryggingarsjóður verði lagður niður, en hann heitir það en ekki Stefánssjóður. Hv. þm. hefur talað um skussasjóð. Af hverju? Af því að hans flokkur stóð fyrir því að sjúga landsbyggðina þannig að það er ekkert eigið fé til í fyrirtækjunum.
    Ég held að hv. þm. og aðrir hv. sjálfstæðismenn ættu að athuga hvað hefur verið að gerast, hvernig hinir háu vextir hafa leikið bæði landsbyggðina og einstaklinga fyrst hv. þm. vill fara að rifja það upp. Ég hef fengið tvö fyrirtæki til þess að skoða það annars vegar hver vaxtagreiðslan hefði verið á þessu ári hjá þeim eða hefði verið eins og hún var áður en þeir lækkuðu og hins vegar hvernig það hefði verið ef vextirnir hefðu verið eins og þeir eru í desember. Ég vil taka það fram að fyrra fyrirtækið sem ég segi frá er með mjög góða eiginfjárstöðu. Vaxtagreiðslan hjá því mundi hafa orðið 100 millj. kr. meiri. Hvorki meira né minna. Og breyting á útkomunni mundi muna um 73 millj. kr. Ef skattarnir hefðu verið út árið eins og þeir voru áður en þeir lækkuðu, þá hefði hallinn verið fast að 40 millj. kr. en um 32--33 millj. kr. í hagnað ef vextirnir hefðu verið eins og þeir eru í desembermánuði.
    Ég hef einnig fengið útreikning á öðru fyrirtæki sem er minna. Eiginfjárstaðan er verri og hallinn á því hefði verið um 18 millj. kr. miðað við vextina eins og þeir voru, en það hefði snúist við þar einnig og verið í kringum 10 millj. kr. í tekjur. Hvað segir þetta okkur? Þetta segir okkur það að frjálshyggjan og hinir frjálsu vextir hafa leikið fólkið í landinu og fyrirtækin eins og komið er. Svo eru þessir menn að koma hér upp í ræðustól og tala um réttlæti! Hvaða réttlæti eru þeir að tala um? Réttlæti þeirra sem eiga peninga, sem eiga eignir, sem hafa háar tekjur? Það er réttlæti þeirra, ekki hinna. Og þess vegna vill hv. þm. Geir H. Haarde leggja niður Atvinnutryggingarsjóð en eftir reglum þess sjóðs er ekki hægt að hjálpa líklega upp undir þriðjungnum af þeim fyrirtækjum úti á landsbyggðinni. Hvað ætla hv. þm. Sjálfstfl. að leggja til í þeim efnum þar sem þetta er í mörgum tilfellum burðarásinn undir atvinnulíf í þessum stöðum? Það væri gaman að heyra tillögurnar um það.
    Ég varð fyrir ákaflega miklum vonbrigðum með breytinguna á tekjuskattinum, að hann skyldi verða aðeins 2% hækkun sem leiðir það af sér að persónuafsláttur verður minni en annars hefði verið og barnabætur verða minni en annars hefði verið eins og kom fram í greinilegri ræðu hæstv. fjmrh. Er það það réttlæti sem menn berjast hér fyrir á hv. Alþingi? Er

það? Mín samtök lögðu það til í stjórnarmyndunarviðræðunum að til viðbótar væru tvö skattþrep. Þeir sem hafa tekjur á annað borð eiga að borga skatta til þess að jafna á milli í þjóðfélaginu. Og ég vil spyrja enn að því: Hvað er það sem hv. þm. vilja leggja til í þessum efnum? Við getum talað um það hér, hvað væri æskilegt að borga í skatta og hvernig er farið að því. En við þurfum að afla teknanna. Það er málið. Með einhverjum hætti. ( Gripið fram í: Með fógetanum.) Með fógetanum? Ég hélt nú að hv. þm., sem kallaði hér fram í, væri það kunnugur úti á landi af því að hann er þaðan, að hann ætti að vita hvernig ástandið er. Fógetinn hefur verið að tala um að loka sumum fyrirtækjum. ( Gripið fram í: Á að hækka skatta á fyrirtækin?) Það þarf að afla tekna. Það er málið. Hvað leggur hv. þm. til í því efni?
    Ég skal ekkert segja um það t.d. með eignarskattinn hvernig það kemur út eins og það er. Við eigum eftir að vinna og athuga það allt í nefnd og það kann að vera að það sé eitthvað til í því sem hv. þm. Geir Haarde segir í því efni. En þegar hann og aðrir tala um að það eigi ekki að leggja skatt á fjármagnstekjur verð ég bara að segja að ég skil ekki svona málflutning. Það er verið að tala um að leggja skatt á raunverulegar tekjur þeirra sem eiga fjármagnið. Það er ekki verið að tala um annað. Það er auðvitað ekki sama hvernig það er gert. En á að skilja eftir sumar tekjur en hækka þá á aðrar tekjur?
    Ég vil segja það hreint út að ég er ekkert ánægður yfir því tekjuöflunarkerfi sem er hjá ríkinu í dag. Ég tel að þessi ríkisstjórn eigi að athuga á næstu mánuðum hvort ekki er hægt að breyta því til réttlætisáttar, t.d. að fella niður matarskattinn hinn illræmda. Og það er alveg rétt, sem hefur komið fram og kom fram hjá hæstv. fjmrh. og ég er búinn að fullvissa mig um það, að t.d. annað tekjuþrep verður ekki gert í einu vetfangi. Það tekur langan tíma af tæknilegum ástæðum að koma því í framkvæmd ef mönnum sýnist að athuguðu máli að það sé rétta leiðin. Ég ætla ekkert að fullyrða það. En mér sýnist að það sé sanngjörn leið.
    Í sambandi við að jafna aðstöðuna í þjóðfélaginu. Það er eitt sem kemur
fyllilega til greina við þessar aðstæður og það er að hafa misháan persónuafslátt eftir landsvæðum, sérstaklega þar sem orkukostnaður er jafnvel tvöfaldur á við það sem hann er á því svæði sem við erum á --- eða er það tal um réttlæti og allt það bara í munni á mönnum? Meina þeir ekkert með því? Ég vil ekki neitt segja um hvað það þarf mikið til að jafna þennan mun. En að sjá t.d. orkureikninga á hinum köldu svæðum er ógnvekjandi að horfa á. Menn eru að flýja burtu af þessum svæðum þó það sé nóg atvinna fyrst og fremst af því að orkukostnaðurinn er svo tilfinnanlegur.
    Ég held að það verði að krefjast þess af hv. þm. sem eiga sæti í þessari deild að þeir komi með tillögur um hvernig við eigum að fá það fjármagn sem þarf í ríkiskassann til að jafna á milli þegnanna

og til að reka ríkissjóð án halla. Ég auglýsi eftir þeim tillögum. Ef þær koma ekki fram er ekki mark á þessum ræðum takandi.
    Ég ætla ekki að tefja tímann. Ég ætla að láta þetta nægja að sinni. En allir þeir sem voru í síðustu ríkisstjórn og skildu við slóðann eins og hann er bera ekki litla ábyrgð á fjárlagaafgreiðslunni nú og á því að það sé tekið þannig á málum að atvinna haldist í byggðarlögunum og einhverju sé skilað aftur af því sem af þeim hefur verið tekið svo að fólk þurfi ekki að flýja heimili sín, sækja vinnu annars staðar og jafnvel að ganga frá eignum sínum af því að þar er ekki hægt að hafa sómasamlegt lífsviðurværi. Ef það er skynsamlega tekið á málum er ég sæmilega bjartsýnn. Ég er fyrst og fremst svartsýnn nú vegna þess að það vantar skilning og samstöðu um að taka á málum eins og þarf til að gera öllum í þjóðfélaginu lífið bærilegt. Þess vegna á að hækka meira núna tekjuskattinn til að geta hækkað persónufrádráttinn og barnabæturnar meira en er í þessu frv.