Albert Guðmundsson:
Virðulegur forseti. Þær aukafjárveitingar sem hv. formaður fjvn., 5. þm. Vestf., benti á og las upp dagsetningar á, útgefnar fjárheimildir frá 1. jan. til 30. sept. 1988 sem allir þm. hafa að sjálfsögðu kynnt sér, ná ekki yfir það tímabil sem ég skildi að hæstv. fjmrh. ætlaði að kynna fyrir fjvn. Ég hélt að það væru nýjar aukafjárveitingar sem hefðu átt sér stað í tíð þessarar ríkisstjórnar því að þessi ríkisstjórn tekur við akkúrat um það bil sem --- 28. sept. held ég. Er það rétt munað? ( Fjmrh.: Jú, það er rétt.) Það er rétt, já, þannig að þessar fjárveitingar í fjárlagafrv. sem virðulegur formaður fjvn. benti mér á, og átti að vera svona til að sýna hvað ég hefði lesið þetta illa og kynni nú mínar lexíur illa, eru bara alls ekki það tímabil sem ég gerði ráð fyrir að núv. hæstv. fjmrh. ætlaði að kynna fjvn. Ef það er því rétt skilið, ef það er rétt sem hæstv. fjmrh. sagði hér úr ræðustól og varð til þess að ég stóð upp, ég hafði nú alls ekki ætlað mér að gera það, og hann ætlar að kynna fjvn. samkvæmt eigin orðum aukafjárveitingar, þá sínar aukafjárveitingar, óska ég eftir því að þær komi fyrir þingmenn almennt en ekki bara fjvn. Ef aftur á móti hæstv. ráðherra hefur verið að tala um þær aukafjárveitingar sem eru í frv. til fjárlaga þarf ég ekki hans aðstoð. Þá er ég með þær hér á milli handanna.