Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég er með í höndunum frv. til fjárlaga fyrir árið 1986. Það frv. var lagt fram af þáv. hæstv. fjmrh., núv. hv. 5. þm. Reykv. Albert Guðmundssyni. Á bls. 330 í því frv. til og með bls. 334 eru birtir listar yfir útgefnar aukafjárveitingar, 1. jan. til 30. sept. 1985, sem sé til nákvæmlega sama tíma eins og listi er birtur í greinargerð fjárlagafrv. fyrir árið 1989. Og það sem meira er, herra forseti, þessar upplýsingar eru settar upp nákvæmlega eins og í frv. til fjárlaga fyrir árið 1989. M.ö.o., hæstv. núv. fjmrh. birtir nákvæmlega sams konar upplýsingar til nákvæmlega sama tíma og hæstv. þáv. fjmrh., núv. 5. þm. Reykv., gerði svo að ég ítreka það enn, hæstv. forseti, að það er mjög þarflegt að menn kynni sér prentuð þingskjöl sem dreift er á borð allra þm.