Lánstraust Íslands erlendis
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):
    Virðulegi forseti. Síðasti ræðumaður tók reyndar úr munni mér það sem ég vildi hér sagt hafa því að það var mótsögn í því sem fram kom í síðari ræðu ráðherra og þess sem hann sagði fyrst. Það má merkilegt heita að þeir skuli tveir standa hér upp, formaður þingflokks Framsfl. og hæstv. viðskrh., og leggjast í orðskýringar á ummælum forsrh. sem skýra sig sjálf.
    Auðvitað er það líka vitleysa ef menn vilja hártoga þessi ummæli og leggja alla áhersluna á orðið ,,nær``, ,,nær þjóðargjaldþroti en líklega nokkru sinni fyrr``. Það er líka vitleysa. Menn þurfa ekki annað en skoða tölur um erlendar skuldir og greiðslubyrði erlendra lána á árinu 1983 þegar hæstv. núv. fjmrh. og formaður Framsfl. núv. og formaður þingflokksins höfðu verið við völd í nokkur ár. Þá var ástandið mun alvarlegra gagnvart stöðu Íslands út á við en nú er þannig að þetta er líka fjarstæða að því er þetta varðar. (Gripið fram í.) Má ég biðja um kyrrð í salnum, forseti.
    En lánstraust Íslands í sjálfu sér er allt annað mál. Það hefur enginn dregið í efa að það er mikið og traust. Þar hafa margir góðir menn lagt hönd á plóg eins og hæstv. núv. viðskrh. í sínu fyrra starfi og núverandi og því er sem betur fer ekki spillt með blaðri af þessu tagi.