Stjórnsýslulöggjöf
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Á þskj. 97 legg ég fram fsp. til hæstv. forsrh. um setningu almennrar stjórnsýslulöggjafar.
    Þann 20. júní 1985 var samþykkt svohljóðandi þáltill. hér á Alþingi: ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til að semja frv. að almennum stjórnsýslulögum og leggja það fyrir Alþingi svo fljótt sem verða má.`` 1. flm. þessarar þáltill. var Gunnar G. Schram.
    Hinn 19. nóv. 1985 var lögð fram fsp. til hæstv. forsrh. um hvað liði þessari tillögu og hvenær búast mætti við framlagningu frv. á grundvelli hennar. Af svari hæstv. forsrh. Steingríms Hermannssonar mátti ráða að drög að frv. þessa efnis yrðu tilbúin í desembermánuði það ár og vonaðist forsrh. eftir að leggja fram frv. á næsta þingi þar á eftir, þ.e. þinginu 1986--1987. Ekkert bólar á þessu frv. enn og því er þessi fsp. lögð fram.
    Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um hve brýnt það er fyrir réttaröryggið í landinu að til séu almennar og skýrar reglur á sviði stjórnsýslunnar. Nú á tímum þegar ríkisvaldið er að teygja anga sína um allt og jafnvel farið að stýra háttsemi manna og ráða velferð fólks er borgurunum ekkert eins nauðsynlegt og vitneskjan um að stjórnsýslan starfi samkvæmt almennum reglum og allir sem til hennar þurfi að leita sitji við sama borð. Án almennra reglna er sú hætta fyrir hendi að borgurunum sé mismunað og í stað faglegra sjónarmiða ráði ákvörðun geðþótti eða jafnvel pólitísk sjónarmið. Það er ekki aðeins áríðandi að slíkar reglur gildi fyrir heill borgaranna heldur ekki síður fyrir stjórnsýsluna sjálfa, að henni séu markaðar ákveðnar og skýrar reglur til að starfa eftir. Oft og tíðum koma upp mál sem aðilar innan stjórnsýslunnar vita ekki hvernig taka á og hvaða reglur gilda um. Mætti ég nefna dæmi eins og: Hvenær er stjórnsýsluaðili svo tengdur máli að hann telst vanhæfur til að afgreiða það? Hvenær ber að rökstyðja synjun um t.d. leyfi sem farið er fram á að verði veitt? Hvenær hefur ákveðið stjórnvald farið út fyrir verksvið sitt? Hvenær þarf að leita umsagnar og þá til hvaða aðila? Hvernig skal háttað meðferð mála? Á að kalla menn fyrir eða ekki? Um fleira má spyrja, t.d. hvaða hæfniskröfur almennar og sérstakar skuli gera til aðila í stjórnsýslunni sem tekur ákvörðun í máli.
    Mikilvægt er að löggjöf á þessu sviði verði sett nú þegar búið er að setja á stofn embætti umboðsmanns Alþingis. Eigi hann að vera virkur og geta sinnt sínu starfi og farið ofan í saumana á ákvörðunum teknum af stjórnvöldum verður hann máli sínu til stuðnings að geta vísað til öruggra réttarheimilda.