Skýrsla OECD um efnahagsástandið á Íslandi
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Í umræðum um skýrslur og álitsgerðir frá OECD, sem sumir hv. þm. Sjálfstfl. vilja greinilega að séu teknar mjög alvarlega í okkar þjóðfélagi og skal ég ekki lasta það, kemur fram að sérfræðingar OECD ráðleggja eindregið að hlutfall beinna skatta á Íslandi sé allverulega hækkað. Þeir færa fyrir því ýmis og sterk rök að eitt af vandamálum í efnahagsstjórn á Íslandi sé hvað hlutfall beinna skatta sé lágt og væri mjög fróðlegt fyrir forustu Sjálfstfl. að hugleiða og kynna sér þetta álit OECD.
    Jafnframt vil ég vekja athygli á því, eins og ég gerði í umræðum í gær, að hlutfall skatta af landsframleiðslu OECD-ríkjanna er á þann veg að Ísland sker sig þar úr ásamt vanþróuðustu löndum, Spáni, Tyrklandi og Portúgal, einfaldlega vegna þess að hin þróuðu lönd, sem hafa byggt upp velferðarríki, hafa komist að því að það er ekki hægt að leysa það verkefni nema með mun hærra hlutfalli beinna skatta.
    Hv. 1. þm. Suðurl. vék í gær að tilraunum ákveðinna sérfræðinga hér í landi til að hækka aðeins röð Íslands innan OECD-ríkjanna hvað þetta snertir og ég ætla ekki að ræða um þá útreikninga hér, en vekja þó athygli á því að þrátt fyrir að þar hafi verið teygt sig langt er engu að síður stór hluti OECD-ríkjanna og mörg þau athyglisverðustu ofar Íslandi á þeim lista.