Skýrsla OECD um efnahagsástandið á Íslandi
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Það spinnast æðimerkilegar umræður um þessa fsp. sem eðlilegt er. Hér kemur hæstv. fjmrh. og lýsir því yfir að í hugmyndum frá OECD sé bent á að hækka þurfi hlutfall beinna skatta og hæstv. forsrh. lýsir því yfir reyndar áður að þessi skýrsla og þá væntanlega annað sem frá þessari stofnun kemur um efnahagsmál sé beinar þýðingar frá íslenskum aðilum og gæti maður haldið að það séu þá þýðingar á hugmyndum hæstv. fjmrh. sem hann á við. Munurinn er samt sá að hæstv. forsrh. segir að þetta sé ekki stefna ríkisstjórnarinnar en hæstv. fjmrh. heldur því fram að þetta sé einmitt stefna ríkisstjórnarinnar. Þannig rekst allt hvað á annars horn í þessum málflutningi.
    Þessi umræða og það sem skiptir máli í henni er . . . Hvar er hæstv. forsrh.? ( Forseti: Hæstv. forsrh. hlýtur að vera alveg á næstu grösum.) ( HBl: Eigum við ekki að draga tímann frá hjá þingmanninum.) Ég vil fá forsrh. í salinn. Það er ekki svo oft sem við njótum þeirrar virðingar að hafa hann hér. ( Forseti: Þess mun verða freistað að fá forsrh. í salinn.) ( PP: Hann var sóttur í símann.) Ég er í ræðustól.
    Jæja, nú kemur hæstv. forsrh. í salinn. Það er ekki mjög oft sem maður hefur tækifæri til að ávarpa hann úr þessum ræðustól sem þekkt er. Þessi umræða snýst um hvort á að taka mark á íslenska forsrh. Hún snýst um það að átta sig á því að ummæli hæstv. forsrh. eru þýdd á erlend tungumál af fréttastofum, hvort sem það er hvalamál, hvort sem það er OECD, hvort sem sagt er að gengið sé rangt skráð eða það þurfi ekki að lagfæra það eða hvort þjóðargjaldþrot blasir við.
    Virðulegi forseti. Ég var truflaður þannig í ræðu minni að ég ætla að segja eitt orð í viðbót ef ég má.
    Það er þetta sem verið er að vekja athygli á og ég held að það sé kominn tími til að a.m.k. hv. alþm. geri þá kröfu til forsrh. landsins að það sé hægt að átta sig á því hvenær á að taka mark á ummælum hans og hvenær ekki. Þessar umræður og þau ummæli sem hafa fallið hjá öðrum hæstv. ráðherrum benda til þess að samráðherrar hæstv. forsrh. geri a.m.k. ekki það sem maður ætti von á að flestir þegnar þessa lands gerðu og það er að taka mark á hæstv. forsrh.