Vestmannaeyjaferja
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Það er heldur óviðkunnanlegt þegar hv. þm. koma upp í ræðustól til að gefa rangar upplýsingar jafnvel þó svo þeir hafi hlýtt á þær réttu fáum mínútum áður. Í þeirri heimildargrein sem hv. þm. Halldór Blöndal vitnaði til og rakin var áðan kom skýrlega fram að það þurfti atbeina þriggja aðila til þess að sú heimild yrði nýtt er varðar lántöku til smíði Vestmannaeyjaferju. Það varð til að koma heimild frá fjmrn., frá samgrn. og frá fjvn. Enginn þessara aðila var, eins og málin stóðu þegar þau voru fyrir þá lögð, reiðubúinn að veita slíka heimild vegna þess að málið var ekki komið á það stig að menn teldu rétt að gera það. Það var ekki aðeins Jón Baldvin Hannibalsson fjmrh. sem var þeirrar skoðunar heldur jafnframt þáv. samgrn. og samgrh. og fjvn. Menn eiga að hafa það sem sannara reynist, herra forseti.