Halldór Blöndal:
    Það er nú komið í ljós, hæstv. forseti, að ástæða var til að reka á eftir því að þetta mál yrði tekið á dagskrá til að reyna að gera það áður en hæstv. forsrh. slyppi út. Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að ná í hæstv. forsrh. þannig að hann svari þessari fsp., en vil um leið spyrja hæstv. forseta í fyrsta lagi hvort hann búist við að þessi fsp. verði tekin á dagskrá síðar á þessum fundi og ef svo er ekki, þá væri fróðlegt að fá að vita hvenær næsti fyrirspurnatími verður og þá um leið, ef svo kynni að fara, hvort hæstv. forsrh. yrði þá í landinu.