Fyrirspyrjandi (Jón Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svör hans. Ég vil aðeins í þessu sambandi leggja áherslu á það að af hálfu markaðsskrifstofunnar verði gerð gangskör að því að leita að fleiri kostum um iðnaðaruppbyggingu sem byggjast á sölu orku en þeim sem eru eingöngu bundnir við suðvesturhornið.
Ég vil sérstaklega undirstrika að það er nauðsynlegt að láta ekki þá miklu vinnu sem fór fram við kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði og undirbúning hennar fara forgörðum og fylgjast með þeirri þróun sem er í þeim efnum.
Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þegar hætt var á árinu 1986 að vinna að þeim málum með sama krafti og áður þá þótti þessi kostur ekki hagkvæmur en það er mikil nauðsyn að nýta þá vinnu sem þar fór fram og láta ekki athuganir niður falla. Þetta vil ég sérstaklega undirstrika og óska eftir því að að þessu verði hugað sérstaklega ásamt öðrum kostum sem fýsilegir kunna að þykja því það er mjög miður og hættulegt fyrir byggðaþróun í landinu ef uppbygging stórra iðnfyrirtækja á eingöngu að vera bundin við þetta landsvæði hér.