Raforkuverð til fyrirtækja
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég vildi eingöngu segja um síðustu orð hv. fyrirspyrjanda, 1. þm. Reykv., að ég heyri að hann hefur skilning á því að hér sé um erfitt vandamál úrlausnar að ræða. Það þekkir hann mætavel úr sínu fyrra starfi sem iðnrh. því allan þann tíma sem hann gegndi því starfi var þetta mál, sérstök lækkun á raforkuverði til fiskiðnaðarins, mjög oft til umræðu. Ég get fullvissað hann um að ég mun halda áfram því starfi sem hann hafði hafið í málinu og vona að ég hafi árangur af því sameiginlega erfiði okkar, mínu og hans.