Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Hér hefur hv. 2. þm. Norðurl. e. borið fram ekki aðeins hógværa ósk heldur mjög eðlilega ósk um að hæstv. forsrh. gegni þingskyldum sínum hér og svari fsp. sem eru á dagskrá. Hvernig má það vera að það sé athugasemdalaust að hæstv. forsrh. bindi sig við önnur störf á fundartíma sameinaðs Alþingis þar sem á dagskrá eru fyrirspurnir sem til hans er beint og honum ber samkvæmt embættisskyldu að svara? Það gegnir mikilli furðu að það skuli upplýst hér að hæstv. forsrh. hafi með þessum hætti bundið sig til þess að vera annars staðar og gegna öðrum skyldum en hann samkvæmt embættishlutverki sínu á að hafa á löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Hvaða skyldur eru það sem eru æðri og meiri þannig að hæstv. forsrh. geti bundið sig annars staðar en að gegna skyldum sínum á löggjafarsamkomunni? Það væri fróðlegt að fá það upplýst. En ég ítreka þá ósk, sem hér hefur verið borin fram af hv. 2. þm. Norðurl. e., að þessum fundi ljúki ekki fyrr en hæstv. forsrh. hefur svarað þeirri fsp. sem hér liggur fyrir.
Þess er líka að gæta að hæstv. ríkisstjórn hefur lagt á það ríka áherslu að koma ýmsum málum fram fyrir jólaleyfi þingmanna og það ekki smáum og óskað eftir góðri samstöðu þingmanna allra um það efni. Það er minnsta krafa sem unnt er að gera á móti af hálfu þingmanna að sá maður sem telst vera í forsvari fyrir hæstv. ríkisstjórn gegni þá þingskyldum sínum.