Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Eins og hv. alþm. hljóta að skilja er mér ómögulegt að bíða eða hafa fundarhlé á þessum fundi um óákveðinn tíma og því hlýt ég að halda áfram eðlilegu fundarhaldi þrátt fyrir þetta. Ég harma að hæstv. forsrh. skuli ekki hafa getað verið hér, en við það ræð ég ekki. En ég vil biðja hv. þm. að skilja að ég verð að halda áfram eðlilegum þingstörfum.