Búminjasafn á Hvanneyri
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Mér þykir miður að hv. 1. þm. Vesturl. skuli ekki vera viðstaddur þessa umræðu og mundi mælast til að umræðunni væri frestað þangað til hann gæti verið viðstaddur vegna þess að hann er 1. flm. að frv. til l. um stofnun búminjasafns sem liggur fyrir Nd. og þess vegna er sú tillaga sem hér er til umræðu í rauninni óþörf og ónauðsynleg þar sem fyrir liggur lagafrv. um málið sem felur í sér beina ákvörðun. Hér eru bara tilmæli um að fela landbrh. að hefja undirbúning, en frv. sem liggur fyrir Nd. kveður skýrt og skilmerkilega á um stofnun búminjasafns. Þar sem 1. flm. þess, hv. 1. þm. Vesturl. Alexander Stefánsson, er fjarstaddur núna vegna starfa í fjvn. tel ég eðlilegt að þessu máli verði frestað og umræðunni verði frestað þangað til hann á þess kost að taka þátt í umræðunni.
    Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að gefa nokkra skýringu á því hvernig þetta mál er vaxið og hvers vegna aðeins þrír af þingmönnum Vesturlandskjördæmis flytja þetta mál. Það var þannig að á sl. hausti þegar þingmenn Vesturlands fóru um kjördæmið og heimsóttu hreppsnefndir, bæjarstjórnir og skóla brutu þeir Hvanneyringar upp á þessu máli, skólastjórinn á Hvanneyri og þeir fleiri sem þingmenn ræddu við. 1. þm. Vesturl. óskaði þá eftir greinargerð frá þeim um málið og það var vissulega ætlunin að þingmenn Vesturlands tækju saman höndum og stæðu saman að þessu máli.
    Svo gerist það að hv. þm. Ingi Björn Albertsson hleypur til og skrifar tillögu með grg., sem að vísu hefur verið lagfærð en sem í upphafi var, leyfi ég mér að segja, hrein hrákasmíð, illa unnin og óvönduð, nokkrar málsgreinar, og biður menn um að skrifa upp á þetta. Ég segi það alveg hreinskilnislega að ég sagði nei við því vegna þess að þessi vinnubrögð hafa ekki tíðkast í hópi þingmanna Vesturlands um sameiginleg mál af þessu tagi sem fyrst hefur borið á góma á fundum þingmanna með aðilum heima í héraði. Og það er auðvitað allt í lagi. Það verður hver þingmaður að kjósa sér vinnubrögð við hæfi og það hefur verið gert hér. En það skal fúslega viðurkennt að greinargerðin með tillögunni er allt önnur og miklu betri nú en var fyrst vegna þess að þá var hún um fimm mínútna hugsmíð sem menn geta sest niður og skrifað án umhugsunar nánast og slík vinnubrögð eru auðvitað ekki til fyrirmyndar, langur vegur frá.
    Eins og ég sagði áðan hafa hv. þm. Alexander Stefánsson og Friðjón Þórðarson flutt frv. í Nd. um að koma þessu máli fram og auðvitað er það miklu æskilegra að afgreiða slík mál í frumvarpsformi en sem einfalda viljayfirlýsingu þingsins. Ég átta mig hins vegar ekki á því hvers vegna hv. þm. Ingi Björn Albertsson gat ekki stutt það mál með því að vera flm. líka. Það er kannski vegna þess að hann hefur meiri áhuga á almennri viljayfirlýsingu um málið en ákvörðun um stofnun búminjasafns eins og felst í lögunum. Ég verð að segja það aftur og enn að þetta eru vinnubrögð sem við höfum ekki vanist í hópi þingmanna Vesturlands. Hv. þm. Ingi Björn

Albertsson verður auðvitað að vinna eins og honum þykir henta, en ég held hins vegar að þessi vinnubrögð séu hreint ekki vænleg til árangurs og ég ítreka, virðulegi forseti, tilmæli mín um að þessari umræðu verði nú frestað þangað til hv. 1. þm. Vesturl., sem er með sams konar mál fyrir Nd., sem gengur þó miklum mun lengra, getur verið viðstaddur umræðuna.