Búminjasafn á Hvanneyri
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Jón Kristjánsson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í deilur um 9. dagskrármálið. Hins vegar vek ég athygli á því að þetta mál virðist hafa hér forgang. Þetta er 99. mál og er síðasta mál á dagskrá. Ég vil beina því til hæstv. forseta hvers vegna þetta mál er tekið fram yfir mörg önnur mál hér, m.a. 6. dagskrármál sem er 58. mál þingsins og ég er búinn að bíða mjög lengi eftir að tala fyrir og hefur verið frestað hvað eftir annað og m.a. með samkomulagi við forseta. Ég vil beina þessari fyrirspurn til hæstv. forseta.