Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég vildi bara beina því til forseta að það hafa þegar tveir þingmenn óskað eftir því að þessu máli verði frestað og ef forseti kýs að úrskurða á annan veg og ganga í berhögg við þessar óskir er það að sjálfsögðu mál forseta og á valdi forseta.