Búminjasafn á Hvanneyri
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Eiður Guðnason:
    Virðulegur forseti. Ég vildi aðeins greina frá því að ég óskaði eftir frestun vegna þess að hvorugur flm. frv. um sama efni var viðstaddur hér í deildinni. Það hefur verið reynt að ná í 1. þm. Vesturl. en ekki tekist, en hv. 2. þm. Vesturl. Friðjón Þórðarson, sem er meðflm. að málinu, er kominn hér til fundarins og þá sé ég auðvitað ekkert því til fyrirstöðu að umræðan geti haldið áfram.