Búminjasafn á Hvanneyri
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Leyfist mér að blanda mér aðeins í þá umræðu sem hér hefur farið fram um þátttöku hv. þingmanna af Vesturlandi varðandi till. til þál. um stofnun búminjasafns á Hvanneyri. Þetta er að sjálfsögðu ekkert einkamál Vestlendinga enda ekki hugmynd flm. till. að svo sé. Það fæ ég ekki ráðið af því og mér finnst eðlilegt að við annars staðar að af landinu sýnum áhuga okkar á þessu máli eða segjum álit okkar á því. Sú umræða sem hér hefur farið fram hvatti til þess að ég bað um orðið og þau þingmál önnur sem tengjast þessu máli fyrir utan till. til þál. sem hér er rædd.
    Það er eins og kunnugt er komið fram í hv. Nd. sérstakt frv. til laga um búminjasafn og fyrir hv. Nd. liggur einnig frv. til þjóðminjalaga sem virðulegur forseti Sþ. er 1. flm. að og tekur í rauninni mjög skilmerkilega á þessu máli, þ.e. hvaða farveg eðlilegt er að marka fyrir söfn vítt um landið. Ég fagna því að þessi safnamál eru hér á dagskrá með þeim hætti sem fyrir liggur í framlögðum þingmálum og við skulum vona að sá áhugi verði til þess að efla þessa starfsemi í heild og á landinu öllu og koma henni í þann góða farveg sem vafalaust er hugur þeirra sem hér eru að flytja mál um þessi efni og að fjárveitingar fylgi að svo miklu leyti sem ríkisvaldinu er ætlað að koma hér við sögu eða réttara sagt fjárveitingavaldinu.
    Ég vek athygli á því að í fram komnu frv. til þjóðminjalaga er sérstakur kafli um Þjóðminjasafn Íslands og byggðasöfn og þar er gerð sú eðlilega breyting á að málefni þessara safna eru færð saman í löggjöfinni samkvæmt tillögum þessa frv. í einn kafla, Þjóðminjasafnið og byggðasöfn, og einmitt gert ráð fyrir því að á vegum Þjóðminjasafnsins geti starfað deildir og án þess að staðsetning sé ákveðin, bæði að deildir safnsins geti haft stöðu sérstakra safna og þá einnig að þær verði starfræktar annars staðar en innan veggja Þjóðminjasafns Íslands eins og við hugsum til þess nú.
    Þetta tel ég að snerti það mál sem hér er til umræðu mjög náið og hvort sem ríkisvaldið eða ríkið verður einn aðili og eigandi að búminjasafni sem hér er talað um að komi upp á Hvanneyri eða að það verði byggðasafn í skilningi gildandi laga og þess frv. sem fyrir liggur um breytingu á þjóðminjalöggjöfinni.
    Ég sé út af fyrir sig ekki að þörf verði á því, ef þetta frv. um Þjóðminjasafn Íslands verður að lögum, að setja sérstaka löggjöf um einstök söfn eða deildir safna heldur að mögulegt sé að koma því fyrir innan ramma þjóðminjalaganna hvort sem um er að ræða söfn rekin af ríkinu eingöngu eða byggðasöfn með þeirri þátttöku hins opinbera sem gert er ráð fyrir í gildandi lögum og fyrirliggjandi frv. Ég tel að sú till. sem hér er fram lögð sé mjög góðra gjalda verð og vel rökstudd í grg. og ég fagna þeim áhuga sem þar kemur fram.
    Ég gæti haft um þetta lengra mál, virðulegur forseti, og m.a. vikið að áhuga okkar austur á landi að koma upp búminjasafni sem hefur verið til umræðu að gæti vistast á Skriðuklaustri vegna reksturs

tilraunastöðvar þar um alllangan tíma. Það þarf að hyggja að þessum minjum um atvinnusögu þjóðarinnar og það er mjög brýnt í rauninni að búminjar verði þar ekki út undan og til þess að varðveita, ekki bara minjar um tækni liðinnar aldar og járnaldar sem okkur hefur verið mest í huga í sambandi við söfnun muna inn á byggðasöfnin, heldur einnig þær hraðfara tæknibreytingar sem við höfum lifað sem nú erum á miðjum aldri, allt frá orfinu, í gegnum hestaverkfærin og upp í vélmenninguna með dráttarvélum og tilheyrandi búnaði. Allt er þetta mikilsverður þáttur sögu sveitanna sem ber að horfa til og reyna að varðveita með þeim hætti sem nútímatækni leyfir í safnvörslu og heimildasöfnun, en einnig auðvitað þannig að það verði sem mest lifandi fyrir þá sem koma að skoða og fræðast.