Flm. (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka þeim hv. þm. sem hafa tekið til máls undir þessum lið, þó alveg sérstaklega hv. 3. þm. Vesturl. sem gaf þessu máli mikla vigt og kann ég honum miklar þakkir fyrir.
Um lýsingu hans á aðdraganda þessa máls ætla ég ekki að fjalla mikið hér. Hún var kolröng og kolvitlaus. Ég mun hins vegar fara nánar út í það þegar þetta ákveðna frv. þeirra neðrideildarmanna, þingmanna Vesturlands, kemur hér fram því að í því frv. er hreinlega farið með rangt mál, eins og hv. 5. þm. Reykv. kom lítillega inn á áðan. En það mun ég geyma mér.
Hv. 3. þm. Vesturl. furðaði sig á ummælum mínum héðan úr ræðustól áðan eftir að hann var nýkominn héðan úr stólnum notandi orð eins og hrákasmíði og önnur ljót lýsingarorð sem áttu að lýsa innri gerð eða manngerð flm. þessarar tillögu. Ég held að hv. 3. þm. Vesturl. væri nær að líta í eigin barm öðru hvoru. Hann er mjög gjarn á það að hlaupa upp í ræðustól hér eða í sinni deild, ausa einhverju úr skálum reiði sinnar og hlaupa síðan úr sal. Það lýsir honum og hans drengskap best.
Það var allt annað, það var eins og dagur og nótt, eins og svart og hvítt að hlusta á hv. 2. þm. Vesturl. tala hér. Þar er maður með heilbrigða afstöðu og rökrétta hugsun.
Ég þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir hans innlegg í umræðuna. Auðvitað er það rétt hjá honum að þjóðminjalög taka á þessu og gera það að verkum að það frv. sem þeir neðrideildarþingmenn, hv. Alexander Stefánsson og Friðjón Þórðarson, hafa lagt hér fram er með öllu óþarft. Það sem þarf til að koma þessu safni á laggirnar er viljayfirlýsing Alþingis og ekkert annað og þess vegna er lögð fram þáltill.
Hæstv. forseti. Ég sé að ég er kannski fullsnemma kominn í stólinn því að eftirsóknarverðasti þingmaður dagsins er kominn í þingsal, hv. þm. Alexander Stefánsson, en ég er því miður að tala formlega í annað sinn. Ég veit ekki hvað hann kemur til með að segja, en ég verð þá að geyma mér að svara honum þangað til þeirra afleita frv. kemur fram.
Ég vil benda hv. 3. þm. Vesturl. á að hann flutti tillögu um göng eða brú yfir Hvalfjörð. Það fór lítið fyrir kynningunni þar. Ég man hvernig það var kynnt fyrir mér. Það var hérna á hlaupum í ganginum með því fororði að annaðhvort skrifaði ég strax eða væri ekki með. Vinnubrögð! Líttu í eigin barm.
Ég skora á hv. þm. Alexander Stefánsson að koma upp og segja okkur hvenær hann ræddi við þingmenn Vesturlands um það að taka þetta mál upp. Hvenær ákváðu þingmenn Vesturlands að fara út í þetta mál? Það var aldrei. ,,Þingmenn Vesturlands hafa ákveðið að flytja þetta frv.``, stendur í greinargerð. Þetta er ósatt með öllu. Þingmenn Vesturlands þýðir allir þingmenn Vesturlands, ég meðtalinn, og ég tók aldrei þátt í slíkri ákvörðun. ,,Þingmenn Vesturlands í Ed. munu fylgja málinu áfram í þeirri deild``. Hv. þm. Skúli Alexandersson hefur lýst sinni skoðun á því. Við hann var ekki talað um það. Helber ósannindi.
Eru þetta, hv. þm. Eiður Guðnason, vinnubrögð að þínu skapi? Þetta er mál sem þú styður. Þetta eru vinnubrögðin þín.