Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Hæstv. forseti. Það gengur ekki, það gengur alls ekki að stórmál eins og hér er um að ræða verði afgreitt á skömmum tíma í takmörkuðum ræðutíma þingmanna. Það verður að ætla þessu máli svo mikið svigrúm á dagskrá þingsins að menn geti rætt það í rólegheitum, í jafnvægi án þess að vera í þeirri tímapressu sem hér er sett á.
    Ég vil benda á að fyrir nokkrum árum, það eru ekki mörg ár, það eru kannski innan við 15 ár, lagðist niður iðnaður hér við yfirbyggingar á almenningsvögnum. Strætisvagnar Reykjavíkur og langferðabifreiðar voru yfirbyggðar erlendis af nákvæmlega sömu ástæðum og íslensk skip fara til viðgerðar og nýsmíði til útlanda. ( Forseti: Má ég biðja þingmanninn að halda sig við umræður um þingsköp.) Ég er að tala um þingsköp. Ég er að tala um íslenskan iðnað og skipasmíðaiðnaðinn, á hvaða leið hann er. ( Forseti: Það er ekki umræða um þingsköp.) Það er dagskrármál. Það þarf að fá þessi mál á dagskrá. Ég er að benda á hvaða hætta er á ferð fyrir íslenskan iðnað. Ég vil taka það sem ábendingu frá virðulegum forseta að það sé ekki ætlast til þess að upplýst sé hvernig hefur farið fyrir iðnaðinum í landinu sem hefur verið á sömu braut og íslenskar skipasmíðastöðvar eru í dag. ( Forseti: Þingmaðurinn flytur það mál í umræðu um það mál sem hér er á dagskrá.) Ég er að tala um að málin fái að vera á dagskrá og gefa ástæður fyrir því. Ef forseti óskar eftir því að málið sé ekki rætt er sjálfsagt að ég fari úr ræðustól. ( Forseti: Má ég benda þingmanninum á að það er ekkert að honum komið.) Það er þá undirstrikun á því að íslenskur iðnaður er ekkert hér á dagskrá.