Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Ég vil mjög taka undir þær áhyggjur sem flm. þáltill. hefur af stöðu skipasmíðaiðnaðarins. Ég er alveg sannfærður um að það er rétt lýsing hjá honum að hundruð manna eru að missa atvinnu sína í þeirri atvinnugrein. Það er athyglisvert að þetta skuli koma frá einum af stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar og lýsir betur en margt annað þeim óróa sem er meðal almennra óbreyttra þingmanna sem enn styðja ríkisstjórnina yfir skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar um stöðu atvinnuveganna. Þetta er einhver svartasta lýsing sem ég hef heyrt hér í þingsölum enn um stöðu einnar atvinnugreinar og ef við berum saman skilyrði skipasmíðaiðnaðarins og færum yfir á aðrar útflutnings- og samkeppnisgreinar sjáum við . . . ( Forseti: Má ég biðja þingmanninn að halda sig við umræður um þingsköp.) Ég verð að segja, hæstv. forseti, að meðan hægt er að skrifa sig á mælendaskrá í þáltill. um skipasmíðaiðnaðinn má maður væntanlega tala um hana. En ég er bara að rökstyðja það sem hv. síðasti ræðumaður sagði. ( Forseti: Má ég benda hv. þm. á að ég hef frestað umræðu um málið.) Ég er að reyna að sannfæra hæstv. forseta um nauðsyn þess að við fáum aftur tækifæri til að ræða skipasmíðaiðnaðinn. ( Forseti: Forseti hefur löngu lýst því yfir að þeirri umræðu mun ljúka fyrir jólaleyfi þingmanna.)