Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég þakka þær undirtektir sem frv. fær í hv. deild. Ég get tekið undir það með hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni að nauðsynlegt er að það gæti íhaldssemi á þessu sviði. Þar get ég verið honum sammála, þótt það gildi e.t.v. ekki um öll svið samfélagsins að við séum sammála um að nota það orð. Hér er um svo mikilvægan málaflokk að ræða að það dugar að sjálfsögðu ekki að þar eigi sér stað byltingarkenndar breytingar í einni svipan sem eru lítt grundaðar og undirbúnar, enda hafa slíkar breytingar aldrei átt upp á pallborðið í okkar þjóðfélagi. ( KP: Hæstv. ráðherra, er þetta ekki stjórnarfrv.?) Jú, ráðherrann er að mæla fyrir stjórnarfrv. ( Gripið fram í: Ráðherrann talar fyrir hönd stjórnarinnar.) Það er rétt, og talar væntanlega fyrir hönd stjórnarinnar í þessu máli.
Hitt er svo annað mál að það er e.t.v. fullmikil íhaldssemi að taka heila öld til að ákveða hvaða breytingar eigi að framkvæma á okkar dómstólaskipan og ætti að vera mögulegt að ígrunda það nægilega vel á heilli öld. En eins og ég gat um var það rætt í fullri alvöru á Alþingi á árunum 1914--1916.
Nú hafa orðið byltingarkenndar breytingar í okkar þjóðfélagi á sviði samgangna og allt aðrir möguleikar en áður eru til að aðskilja dómsvald og framkvæmdarvald eins og kemur fram í Reykjavík. Sá aðskilnaður hefur orðið til þess að dómsmál eru að mjög verulegu leyti flutt í Reykjavík en ekki út um land eins og gert var í meira mæli áður. Þetta sýnir að mínu mati það að við höfum ekki notfært okkur þær miklu breytingar sem hafa orðið í samgöngum og annarri tækni. Nú eru komnar aðstæður, sem ekki voru fyrir hendi áður, til þess að byggja upp dómstóla í hverjum landsfjórðungi.
Ég tek undir það með hv. þm. að nauðsynlegt er að undirbúa þetta mál vel og auðvitað er það ekki aðalatriði að málinu ljúki á þessu þingi, þó að það sé mjög æskilegt og mikilvægt til þess að hægt sé að undirbúa það sem best. Umræðan hefur staðið það lengi að mikilvægt er að eyða þeirri óvissu sem uppi er í málinu og allir sjá nauðsyn þess að skýrar komi fram hvert skuli stefna í þessum efnum. Menn hafa komist niður á málamiðlun sem mér sýnist geta farið vel á, þótt það sé eins með mig og hv. þm. Eyjólf Konráð Jónsson að auðvitað hef ég ekki kynnt mér þetta mál nægilega vel til þess að geta fullyrt um það í einu og öllu. Ég tek hins vegar eftir því að ályktanir og samþykktir þeirra sem best þekkja til þessara mála eru mjög í eina átt og mun meira í eina átt en nokkru sinni fyrr. Mér sýnist því að nú sé kominn sá jarðvegur til breytinga sem hefur verið undirbúinn í 70 ár og vænti ég þess að ég og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson getum orðið sammála um að í þessu máli sé það hæfileg íhaldssemi.
Hv. 11. þm. Reykv. Guðmundur Ágústsson spurðist fyrir um hvað yrði með þá fulltrúa sem nú starfa hjá embættinu. Ég vildi aðeins benda á það sem segir í athugasemd við 4. gr., með leyfi hæstv. forseta:
,,Þá munu löglærðir fulltrúar starfa við
héraðsdómstólana og sýslumannsembættin en ekki er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í heild sökum ákvæða laganna heldur munu þeir flytjast milli embætta.`` Með þessu er ótvírætt gefið í skyn að þeir muni áfram starfa við embættin. --- Ég var að svara fyrirspurn þinni, hv. þm. Guðmundur Ágústsson, þar sem ég vildi benda á það sem stendur í athugasemd við 4. gr., en þar segir: ,,Þá munu löglærðir fulltrúar starfa við héraðsdómstólana og sýslumannsembættin en ekki er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í heild sökum ákvæða laganna heldur muni þeir flytjast milli embætta.`` Ég lít svo á að með þessu sé gefið í skyn að þessir fulltrúar starfi áfram á þessum vettvangi en munu e.t.v., eins og þarna kemur fram, flytjast á milli embætta.
Ég vildi einnig taka undir það sem hv. þm. Guðmundur Ágústsson sagði um gjaldheimturnar. Ég held að það hafi verið ein af þessum breytingum sem voru lítt undirbúnar eins og stundum vill verða. Slíkar breytingar verða til þess að veikja sýslumannsembættin og draga þar af leiðandi úr þeirri þjónustu sem er við almenning. Það hafa einnig komið upp hugmyndir um að færa ýmis önnur verkefni frá sýslumönnunum og ef slíkt hefði áfram átt að ganga hefði það að sjálfsögðu endað með því að embættin hefðu lítil verkefni haft og ekki getað sinnt þjónustuhlutverki sínu gagnvart almenningi. Það hefur sem betur fer verið dregið í land í þessum efnum og ekki er gert ráð fyrir því að halda áfram í þessa átt, enda hefur illa gengið hjá sveitarstjórnarmönnum á ýmsum svæðum að koma sér saman um hvar gjaldheimtur skuli staðsettar og því held ég að best fari á því að sýslumannsembættin sinni þessu hlutverki áfram eins og hv. þm. tók fram.
Ég vildi svo að lokum þakka þessa umræðu og vænti þess að hv. allshn. sjái sér fært að flýta þessu máli sem frekast er unnt því að nú tel ég vera lag til að koma fram þessum breytingum sem svo lengi hafa verið undirbúnar.