Hreppstjórar
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég get tekið undir það með hv. þm. Skúla Alexanderssyni að ástæðulaust er að ætla sér að fækka hreppstjórum. Þeir eru mikilvægir fulltrúar sýslumanns í hverju sveitarfélagi. Ég tel ekki þurfa að fara um það mikið fleiri orðum. Þeir sinna störfum í umboði hans og eru mikilvægir trúnaðarmenn í sérhverju sveitarfélagi. Hins vegar er sú skipan í dag að hreppstjórar eru jafnframt í þeim sveitarfélögum þar sem sýslumaður situr og ég býst við því að allir geti verið um það sammála að þar sé um að ræða óþarfa skipan mála.
    Ég vil taka undir með hv. þm. að það þurfa að vera gildar ástæður til þess að ekki sé hreppstjóri í hverju sveitarfélagi. Ég nefndi að sveitarfélög geta verið það lítil og í það mikilli nálægð hvert við annað að það eigi ekki að valda neinum vandræðum. Hins vegar getur líka verið um lítið sveitarfélag að ræða þar sem nauðsynlegt er vegna samgangna að hafa hreppstjóra. Ég tel sjálfsagt að kveða nánar á um hvernig slíkar undantekningar skuli gerðar og mætti það gjarnan koma fram í hv. nefnd eða í nefndaráliti. Aðalreglan er sú að hreppstjóri skuli vera í sérhverju sveitarfélagi utan aðseturs sýslumanns nema sýslumaður telji þess ekki þörf. Ég vænti þess að ekki sé hætta á því að sýslumenn ákveði annað í neinni skyndingu og um það þyrfti sýslumaður að hafa samráð við viðkomandi sveitarfélög. Auðvitað starfa sýslumenn í nánu sambandi við þau sveitarfélög sem þeir þjóna en ekkert mælir því mót að taka það fram nánar eftir því sem nefndin telur nauðsynlegt. Ég vildi bara ítreka þá skoðun mína að meginreglan er sú að hreppstjóri skuli vera í sérhverju sveitarfélagi.