Hreppstjórar
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Þetta frv. lætur lítið yfir sér eins og hér hefur komið fram. Ég vil taka undir þær athugasemdir sem komu fram í máli hv. 4. þm. Vesturl. Ég held að það sé eðlilegt að skoða hvort það þurfi ekki að vera einhver rök fyrir því þegar sýslumaður telur ekki ástæðu til að hafa hreppstjóra. Mér finnst því eðlilegt að nefndin skoði þetta og gerðar verði breytingar á frv. ef ástæða þykir til.