Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Kristín Halldórsdóttir):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 241 um frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Álitið hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Við dreifingu skattbyrða telja kvennalistakonur eðlilegt að horfa til hinna breiðu baka í þjóðfélaginu. Með tilliti til þess hafa þær stutt sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og einnig tillögur um hækkun hans. Sú afstaða styðst enn fremur við nauðsyn þess að hamla gegn offjárfestingu og þenslu í þessum greinum. Sú þörf var augljós þegar þessi skattur var síðast til meðferðar á Alþingi.
    Nú eru aðstæður að sönnu á margan hátt breyttar. Fjárfestingaræðið hefur rénað og samdráttur er víða hafinn. Ein er þó sú grein sem þessi skattur tekur til og stendur nú með sérstökum blóma, en það er starfsemi banka og annarra aðila á fjármagnsmarkaði, en þeir munu greiða verulegan hluta af þessum skatti.
    Á þessu ári nær álagning skatts á verslunar- og skrifstofuhúsnæði til 954 lögaðila og 1200 einstaklinga. Tæplega 90% af skattinum eru lögð á aðila á höfuðborgarsvæðinu þar sem meðalskattur á hvern gjaldanda er u.þ.b. þrefalt hærri en utan þess svæðis. Ótrúleg umsvif í þessum greinum á undanförnum árum, einkum á höfuðborgarsvæðinu, benda ekki til þess að þeim hafi verið íþyngt um of með álögum og þótt nú hafi þrengt að er það álit 2. minni hl. að þessi skattur skipti ekki sköpum um afkomu fyrirtækja. 2. minni hl. leggur því til að frv. verði samþykkt.``
    Undir þetta ritar Kristín Halldórsdóttir.
    Herra forseti. Við þetta er í sjálfu sér ekki miklu að bæta. Þetta er sú niðurstaða sem kvennalistakonur komust að eftir athugun málsins. Eins og hv. þm. e.t.v. muna lét ég í ljós efasemdir við 1. umr. um þetta mál. Ég sagðist vilja athuga hvort aðstæður væru e.t.v. svo breyttar nú að þessi hækkun væri óraunhæf, bæði með tilliti til gjaldþols greiðenda og frá sjónarmiði tekjuöflunar, þ.e. hvort skatturinn mundi skila þeim tekjum sem honum væri ætlað að skila.
    Hv. síðasti ræðumaður sagðist ekki þekkja dæmi um slíka aukningu sem hér væri lögð til, þ.e. tvöföldun gjalds. Ég man heldur ekki eftir öðru slíku dæmi um tvöföldun skatts, en hins vegar er mér enn í minni þegar mæðralaunin voru hækkuð, ef ég man rétt, 100% og leit auðvitað harla vel út ef menn létu vera að nefna töluna sem gengið var út frá.
    Þessi skattur kemur að sjálfsögðu misjafnlega niður eftir stærð og mati húsnæðis og að sjálfsögðu mótmæla forsvarsmenn kaupmanna þessum skatti harðlega. Við öðru var ekki að búast. Þeir fullyrtu að allar álögur á þessar greinar færu beint út í verðlagið og mér finnst menn gleypa slíkar fullyrðingar gersamlega hráar án þess einu sinni að velgja við þeim. Slíkar fullyrðingar eru mjög umhugsunarverðar og við þær er ýmislegt að athuga. Í fyrsta lagi er manni sagt að það sé verðstöðvun sem ekki megi rjúfa nema vegna erlendra kostnaðarhækkana og ekki

getur þessi skattur fallið undir það. Í öðru lagi er a.m.k. enn í gildi bann við hækkun húsaleigu svo að þeir sem hafa slíkt húsnæði á leigu undir rekstur sinn ættu ekki að þurfa að óttast hækkun leigunnar af þessum sökum. Í þriðja lagi eru menn svo með þessum fullyrðingum, þ.e. að skatturinn fari beint út í verðlagið, að segja að það sé hvergi borð fyrir báru, það sé hvergi unnt að spara eða hagræða í þessum rekstri til þess að mæta álögum af einu eða neinu tagi og því trúi ég einfaldlega ekki. Ég byggi það m.a. á samtölum við hina og þessa í rekstri af þessu tagi því að þó það þyki ekki góð röksemdafærsla að segja: Ég hitti mann sem sagði mér, eins og stundum hefur verið vitnað til, geta slíkar einkaathuganir og samtöl við fólk, sem ekki er undir þrýstingi af því að þurfa að standa við orð sín opinberlega eða gagnvart félögum í stéttinni, sagt manni a.m.k. jafnmikið og ályktanir og yfirlýsingar heildarsamtaka hagsmunaaðila. Þeir sem ég ræddi við á þennan hátt töldu ekki ástæðu til að ætla að hér væri um óbærilegar álögur að ræða þótt vitaskuld sækist enginn eftir því að fá þær yfir sig. En að athuguðu máli höfum við sem sagt ákveðið að styðja frv.
    Er hæstv. fjmrh. ekki viðstaddur? Ég ætlaði að beina einni spurningu til hans. ( Forseti: Hæstv. ráðherra var í hliðarsal rétt áðan og honum verður gert viðvart um að hans sé óskað.) Ég biðst afsökunar, herra forseti. Ég hafði ekki veitt því eftirtekt að hæstv. ráðherra var ekki viðstaddur. Annars hefði ég beðið um að honum yrði gert viðvart í upphafi máls míns.
    Herra forseti. Ég get þá lokið máli mínu með þessari síðustu athugasemd. Hún kann að þykja léttvæg, en hún er ekki léttvæg í mínum huga. Ég get ekki látið hjá líða að beina þessari fyrirspurn til hæstv. ráðherra þar sem tilefni gefst nú í þessari umræðu. Það fór fram nokkur umræða í nefndinni um einstök orð í þessu frv. sem menn skildu misjöfnum skilningi og svo fór að embættismenn ráðuneytisins gátu ekki skýrt fyrir okkur, en þegar það kom upp var það síðasti fundur nefndarinnar þar sem fjallað var um frv. og menn höfðu þá náð samkomulagi um afgreiðslu málsins svo að það gafst ekki tími til að ganga eftir skýringu áður en við gengum frá málinu. En mér finnst afleitt að standa að lagasetningu með óskiljanlegum orðum og því spyr ég hæstv. ráðherra
hvort hann geti ekki skýrt þingheimi frá því nákvæmlega hvað orðið ,,afgjaldskvaðarverðmæti`` í 3. gr. frv. þýðir.