Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Kristín Halldórsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að halda uppi löngum umræðum um þetta þingmál. Ég hef þegar gert grein fyrir afstöðu okkar kvennalistakvenna í tiltölulega fáum og vonandi sæmilega skýrum orðum. Okkur hv. 3. þm. Reykv. greinir á um túlkun á því hvaða bök geti talist breið og hver ekki nú um þessar mundir. Ég tel ekki vafa leika á því með tilliti til óhóflegrar fjárfestingar og umsvifa í verslun og þjónustu af því tagi sem hér er til umræðu að þar hafa verið fjárráð í lagi eða þá er e.t.v. einhver skortur á fyrirhyggju, ég skal ekki segja. En í þessum greinum kom góðærið fyrst og fremst fram og blómaskeiðið er ekkert í fjarlægri fortíð án þess að ég sé á nokkurn einasta hátt að gera lítið úr undanhaldi þess blómaskeiðs.
Hún minnti á það að hér væri um að ræða þann hluta atvinnulífsins sem hefur að gera með þjónustu borgaranna, eins og hún orðaði það. En ég vil benda á það aftur að stærstan hluta þessa skatts greiða bankar og fjármagnsaðilar. Inn í þann fríða flokk má taka aðila eins og aðalverktaka og fleiri og fleiri.
Ég lýsti því áðan og get endurtekið að við kvennalistakonur teljum þennan skatt ekki óbærilegan fyrir gjaldendur hans og í því áliti felst að mínu mati síður en svo fjandskapur við þá aðila, miklu fremur traust og ég bið menn að skilja það.
Ég get tekið undir ýmislegt sem hv. 3. þm. Reykv. sagði og vissulega vildum við báðar efalaust vera alveg lausar við að leggja skatt á nokkurn einasta mann eða aðila. Það er einfaldast og auðveldast að vera bara á móti öllum tekjuöflunarleiðum. Það er líka mjög freistandi fyrir stjórnarandstæðinga vegna þess að þeir bera ekki nákvæmlega sömu ábyrgð á fjármáladæminu, á ríkisbúskapnum og þingmenn stjórnarflokkanna. En hvað sem hv. þm. finnst um vinnubrögð okkar kvennalistakvenna, eins og henni varð tíðrætt um, gerum við út um þau í okkar eigin þingflokki án áhrifa eða ráðlegginga frá sjálfstæðismönnum né nokkrum öðrum þingflokkum.
Hvað varðar ræðu hv. 5. þm. Reykv., þá er augljóst að okkur greinir einnig nokkuð á, t.d. um hvað sé eðlileg þróun í útþenslu fyrirtækja, skrifstofuhúsnæðis o.s.frv. Hann virðist telja að húsnæði t.d. banka, aðalverktaka, kringluhúsnæði og fleira af því tagi sé eðlileg þróun. Ég skal ekki deila um það nú, en við kvennalistakonur erum ekki einar um þá skoðun að í þessum efnum hafi verið um þenslu og offjárfestingu að ræða. Hann minntist á að hann hefði fundið nákvæmlega sams konar hús úti um landið, en ég minni á það að þrátt fyrir það eru nú aðeins 10% af þessum skatti innheimt þar. En borgaraflokksmenn og sjálfstæðismenn hafa ekkert síður en við kvennalistakonur samsinnt því að ríkissjóður væri í vanda staddur og þá verða þeir að svara því hvernig þeir telja rétt að afla tekna. Það er okkar mat að sá skattur sem hér um ræðir komi ekki illa við þá lægst launuðu.