Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Það er í sjálfu sér ekki mikil þörf að lengja þessar umræður. Flestöll rök í þessu máli hafa komið hér fram. Hv. 3. þm. Norðurl. e., einn af þingmönnum stjórnarflokkanna, flutti þó mjög skilmerkilega ræðu og færði fram á afar einfaldan og skýran hátt öll þau rök sem mæla gegn þessari skattheimtu. Hann benti réttilega á að þessi skattur leggst misjafnlega á verslunar- og skrifstofustarfsemi í landinu. Þar sem eftirspurn er ríkjandi og umsvif í góðu lagi fer þessi skattur sjálfkrafa út í verðlagið. Þar sem samdráttur er, einkanlega úti á landsbyggðinni, verða þau fyrirtæki sem verst eru stödd að bera skattinn sjálf. Þannig er ekki alveg einhlítt að neytendur beri skattinn. Þar sem aðstæður atvinnufyrirtækjanna eru verstar leggst þetta ofan á þær byrðar sem fyrir eru og það er einkanlega á landsbyggðinni.
    Þetta voru og eru mjög skýr rök sem einn af þingmönnum stjórnarflokkanna teflir hér fram. Hann benti líka réttilega á að það er mjög algengt í leigusamningum að þar sé beinlínis tekið fram að þeir sem leigja húsnæði skuli greiða skattinn og þar með fer þessi hækkun út í leiguna þrátt fyrir að ríkisstjórnin hefur sett um það lagaákvæði að húsaleiga megi ekki hækka. Og það er athyglisvert að einmitt þingmaður Alþfl., sem fer með verðgæslumál, skuli á svo skýran hátt benda á þessa staðreynd hér í umræðunum.
    Það hefur áður verið dregið fram að þar sem aðstaða er fyrir hendi og eftirspurn er fyrir hendi fer þessi skattur út í verðlagið. Hv. 17. þm. Reykv. hefur með skýrum tölum sýnt fram á þá gífurlegu ávöxtunarkröfu sem ríkisstjórnin er að stefna að að eigendur verslunar- og skrifstofuhúsnæðis þurfi að hafa. Sú ávöxtunarkrafa gengur þvert gegn markmiðum ríkisstjórnarinnar og ég hygg allra flokka í þinginu að lækka vexti í þjóðfélaginu. En þessi gífurlega ávöxtun fer út í verðlagið smám saman. Hjá því verður ekki komist. Eigendur þessa húsnæðis verða að ávaxta sitt fjármagn eins og ríkisstjórnin stefnir að að þeir geri, segir þeim að gera og það gerist ekki nema þeir velti þeim kostnaði út í verðlagið. Það er mjög skýrt dæmi sem hér hefur áður verið minnt á sem lýtur að kaupfélögunum. Sumir hafa sagt: Þeir sem breiðu bökin hafa eiga að bera skattinn, hinir miklu stóreignamenn í landinu. En einmitt í kaupfélögunum kemur það mjög skýrt fram að það er reksturinn og neytendur þjónustunnar sem bera þetta. Hæstv. fjmrh. er meðlimur í kaupfélagi og hann hefur fyllilega með þögn sinni margítrekað staðfest að hann ætlar ekki fremur en aðrir eigendur kaupfélaganna að bera þennan skatt. Hann ætlar að láta sitt kaupfélag bera þennan skatt uppi í rekstrinum og velta honum yfir á neytendurna. Hann ætlar ekki fremur en aðrir eigendur Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis að bera þennan skatt sjálfur. Og ef samvinnufélögin velta þessu með þessum hætti út í reksturinn og til neytendanna --- ja, ætli það séu þá ekki líkur á því að þeir sem reka fyrirtækin með öðru

rekstrarformi geri það líka? Þannig liggja þessi rök afar skýr fyrir og þarf ekki að fara mörgum orðum um það.
    En hv. 3. þm. Norðurl. e., þingmaður Alþfl. sem mælti svo glögglega og skilmerkilega gegn frv., sagði að hann hefði verið þeirrar skoðunar að það hefði verið eðlilegt af ríkisstjórninni að koma til móts við þessi sjónarmið sem borin hafa verið fram í þinginu, einkum af þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna. M.ö.o.: það hefði verið rétt af ríkisstjórninni að semja um minni skattheimtu í formi þessa skatts. Þrátt fyrir andstöðu sína telur hann eðlilegt við núverandi aðstæður í ríkisfjármálum að innheimta þennan skatt en óeðlilegt að tvöfalda skattheimtuna og lagði á það áherslu að hans skoðun hefði verið sú. Ég dró þá ályktun af máli hans að ríkisstjórnin hefði beinlínis hafnað þessu sjónarmiði, að hann hafi borið það fram innan ríkisstjórnarliðsins en ríkisstjórnin hafnað því. Og þá kem ég hér að því atriði sem hv. 2. þm. Reykn. vakti máls á fyrr í þessari umræðu.
    Ekki alls fyrir löngu sagði hæstv. forsrh., sem að vísu er ekki viðstaddur þessa umræðu, í viðtali við Þjóðviljann að þau mál sem ríkisstjórnin ætlaði að ná fram fyrir jólaleyfi þingmanna væru mikil umfangs og viðkvæm. Það væri eðlilegt að semja um framgang þeirra við alla flokka í þinginu, líka stjórnarandstöðuflokkana, og að menn mættust á miðri leið. Hæstv. fjmrh. lýsti því svo yfir úr þessum ræðustól að það mætti ekki taka þessi ummæli hæstv. forsrh. bókstaflega --- og er það orðið býsna algengt að hver ráðherrann á fætur öðrum standi hér upp og lýsi því yfir að það megi ekki undir nokkrum kringumstæðum taka ummæli hæstv. forsrh. bókstaflega. Það þarf orðið að spyrja að því hvort eigi að taka ummæli hæstv. forsrh., því að ekki liggur hann nú á liði sínu að tala, eins og venjulega eða hvort eigi að taka mark á þeim. En þetta var mjög skýr yfirlýsing frá þeim ráðherra sem hefur með verkstjórn að gera í mótun efnahags-, atvinnu- og fjármálastefnu á vegum ríkisstjórnarinnar.
    Sá hæstv. ráðherra hefur lagt á það mikla áherslu að ríkisstjórnin sé í viðræðum við flokka stjórnarandstöðunnar og gerði lengi vel mikið mál úr því í fjölmiðlum, dró svo nokkuð í land þegar athygli var vakin á því að engar samningaviðræður hefðu farið fram, en sagðist hafa tekið alvarlega yfirlýsingar sjálfstæðismanna um það efni að slíkar viðræður gætu ekki hafist
fyrr en öll frv. ríkisstjórnarinnar væru komin fram. Þessi hæstv. ráðherra og aðrir talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa þráfaldlega lagt á það áherslu, þrátt fyrir þá ábyrgð sem þeir hafa tekið á sig, að þeir gætu ekki deilt einir þeirri ábyrgð að sitja í ríkisstjórn og bera ábyrgð á þeim málum sem ríkisstjórnin ber fram á Alþingi. Afl þeirra væri ekki meira en svo að þeir yrðu að fá sameiginlega ábyrgð allra þingflokkanna, líka þeirra sem ekki hafa komið að stefnumótuninni. Sjálfstfl. hefur fyrir sitt leyti sagt þetta: Hann getur ekki undir neinum kringumstæðum tekið ábyrgð á þeirri háskastefnu sem hæstv. fjmrh.

hefur knúið þessa ríkisstjórn til að fylgja og ég þykist vita að er í andstöðu við Framsfl. Sjálfstfl. getur undir engum kringumstæðum tekið ábyrgð á þeirri háskastefnu vegna þess að skyldur hans og ábyrgð eru gagnvart atvinnulífinu og fólkinu í landinu, en háskastefna hæstv. fjmrh. beinist gegn hagsmunum atvinnulífsins og fólksins í landinu. Sjálfstfl. er hins vegar reiðubúinn til þess, ef það er rétt að ríkisstjórnin teysti sér ekki til að bera ein ábyrgð á framgangi mála, að ræða þau öll í heild sinni, efnahagsstefnuna, gengisstefnuna, sem er forsenda fjárlagafrv., fjárlagafrv. í heild að breyttri efnahagsstefnu og þar af leiðandi skattalöggjöfina sem nauðsynlega þarf að fylgja fjárlögum. Til þessa er Sjálfstfl. að sjálfsögðu reiðubúinn. En ef ríkisstjórnin hefur meint eitthvað með yfirlýsingum sínum um að hún ein gæti ekki borið ábyrgðina og aðrir yrðu að hlaupa undir bagga hljóta allir að sjá að slíkar viðræður verða að hefjast áður en kemur að atkvæðagreiðslu um fyrsta skattamál ríkisstjórnarinnar sem nú á að afgreiða fyrir jólaleyfi þingmanna.
    Það hljóta allir að sjá að ef slíkar viðræður og sameiginleg ábyrgð, sem hlýtur þá að byggjast á breyttri efnahagsstefnu, á að vera eitthvert alvörutal þurfa menn að setjast niður og ræða í heild sinni þetta viðfangsefni. Eftir að fyrsta skattafrumvarpið hefur verið afgreitt með atkvæðagreiðslu er alveg augljóst að lítið gagn er að slíkum viðræðum. M.ö.o.: hæstv. ríkisstjórn hefur ekki óskað eftir slíkum viðræðum fyrir þá atkvæðagreiðslu sem fer fram við lok þessarar umræðu. Það þýðir skýrt og skilmerkilega að allt tal og allar óskir um sameiginlega ábyrgð voru markleysa ein, voru áróðursbrögð og skinhelgi ein og engin meining á bak við það og eins og hæstv. fjmrh. hefur sagt um ummæli hæstv. forsrh. ,,ástæðulaust að taka þau bókstaflega``.
    Sjálfstfl. ætlast ekkert til þess að ríkisstjórnin efni til slíkra viðræðna og er ekki með neinar óskir þar um, en það er nauðsynlegt að það liggi alveg skýrt fyrir áður en þessari umræðu er lokið að ríkisstjórnin hefur augljóslega ekkert meint með öllu þessu tali fyrir þá sök að hún hefur ekki óskað eftir heildarviðræðum um viðfangsefnið í heild sinni áður en gengið er til þessarar atkvæðagreiðslu.
    Ég harma að ríkisstjórnin skuli hafa stigið ofan á þingmenn sína sem ekki bara í þessu máli heldur í ýmsum öðrum hafa látið uppi efasemdir um réttmæti stjórnarstefnunnar og verið að óska eftir því, þingmenn stjórnarflokkanna, hefur komið fram í þessari umræðu, að ríkisstjórnin víki af þessari röngu leið, taki tillit til hagsmuna atvinnulífsins og fólksins í landinu, víki af þessari leið og efni til viðræðna við þá flokka sem vilja standa að breyttri stjórnarstefnu eins og fram kom hjá hv. þm. Alþfl. Árna Gunnarssyni fyrr í þessari umræðu. Auðvitað er það harmsefni að ríkisstjórnin skuli skella skollaeyrum við slíkum málflutningi sinna eigin þingmanna. En við því er auðvitað ekkert að gera, staðreyndirnar tala sínu máli. Það liggur fyrir að Framsfl. ætlar að sætta sig við þá efnahags- og atvinnustefnu sem hæstv. fjmrh.

hefur mótað og knúið hér fram og þá helstefnu sem skattafrv. hans bera með sér.