Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég vænti þess að menn átti sig á því að hér eru að gerast sögulegir atburðir. Hv. 17. þm. Reykv. talaði fyrir minnihlutaáliti og teygði sig svo langt í samkomulagsátt við ríkisstjórnina að hann brýtur stefnuskrá Sjálfstfl., en eins og allir vita er það algjört bannorð samkvæmt stefnuskrá Sjálfstfl. að leggja til skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Þetta gera þeir nú af fúsum og frjálsum vilja, jafnvel þó að ríkisstjórnin hafi alls ekki gengið til þeirra heildarsamninga sem formaður Sjálfstfl., hv. 1. þm. Suðurl., hefur lagt til að yrði gert og ekkert nema gott um að segja. Ég tel að þessi sögulegi atburður á þessu sviði sé mjög merkur og það sem ágreiningurinn stendur um í dag er hæð þessarar prósentu, ekki hitt að það sé rétt að leggja skattinn á. Mér sýnist þetta lofa nokkru góðu um viðhorf Sjálfstfl. til þeirra skattafrv. sem liggja fyrir þinginu og þá stefnubreytingu sem er að vænta úr þeirra herbúðum og verð að segja eins og er að batnandi mönnum er best að lifa. Og mér sýnist að hv. 1. þm. Suðurl. hafi áttað sig á því að sú stefna sem hann hafði fylgt og leitt flokkinn fram undir skilaði ekki þeim árangri sem hann ætlaði sér.