Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Þessi brtt. er í og með flutt til að gefa þeim þingmönnum Alþfl. sem hafa talað gegn þessum skatti tækifæri til að standa við sannfæringu sína og koma til móts við stjórnarandstöðuna í þessu máli. Greiði þeir hins vegar atkvæði gegn skattinum eins og einn þeirra hefur þegar gert kemur í ljós að ræðuhöld þeirra gegn þessu máli og umhyggja þeirra fyrir þeim sem greiða þennan skatt og umtal þeirra um hversu ranglátur hann sé, allt þetta tal er þá ekkert að marka. Ég segi já.