Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Á þskj. 230 liggur fyrir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. til dagskrármálsins. Nefndin hefur athugað málið og leggur meiri hl. nefndarinnar til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það liggur fyrir á þskj. 169. Stefán Valgeirsson sat fundi nefndarinnar og er samþykkur afgreiðslu þessari.
    Undir þetta rita Páll Pétursson, Árni Gunnarsson, Ragnar Arnalds, Guðmundur G. Þórarinsson og Kristín Halldórsdóttir.