Frsm. minni hl. fjvn. (Pálmi Jónsson):
Virðulegi forseti. Að mínum dómi og ég ætla flestra annarra eru fjárlög ríkisins alla jafna þýðingarmesta og viðamesta mál hvers Alþingis. Svo er einnig nú, enda þótt ég og við í minni hl. höfum ýmislegt við stöðu ríkisfjármála og fjárlagafrv. og meðferð þeirra mála eins og það liggur nú fyrir að athuga.
Eigi að síður rifjast þetta upp fyrir mér við umræðuna í dag þegar ég tek eftir því hversu fásótt er í þingsalnum, hversu lítinn gaum hv. alþm. gefa þessari umræðu og hversu óvenjulega illa mætt er hér af hálfu hæstv. ráðherra. Hæstv. fjmrh. er hér einn í salnum, en ég brýndi röddina í dag í ræðu minni þegar hann var ekki viðstaddur. Að sjálfsögðu kalla ýmis mál að ráðherrum, en það hefur ekki í mínu minni gerst að hæstv. fjmrh. væri ekki við 2. umr. fjárlaga. Þeir aðrir hæstv. ráðherrar sem hér hafa verið annað veifið í dag hafa sótt þessa umræðu næsta stopult.
Það sló að mér þeirri hugsun hvort svo væri komið á Alþingi Íslendinga að fjárlagaumræðan skipti ekki lengur eins miklu máli og fyrr og hvort svo væri komið að fjárlög ríkisins væru ekki eins merkilegt plagg í augum Alþingis og ég hef haldið og eins og fyrr var talið, að hæstv. ríkisstjórn, framkvæmdarvaldið hverju sinni, telji það nánast formsatriði að fá fjárlög afgreidd á Alþingi og hugsi sér síðan að ráðslaga um fjármál ríkisins í framkvæmdinni að eigin geðþótta. Ef svo væri er von að dragi úr virðingu Alþingis sjálfs fyrir fjárlagaumræðunni og það kynni að vera að það táknaði skeytingarleysi hæstv. ráðherra um það að vera við slíka umræðu eins og hér í dag.
Má vera að þessar hugleiðingar mínar hafi komist á kreik í mínum kolli og séu hér fluttar vegna þess að einn ræðumanna hér í dag, aðalmálsvari Framsfl. og fjárveitinganefndarmaður, hv. 1. þm. Vesturl. Alexander Stefánsson, sagði í sinni ræðu að hann væri ákaflega hissa á því að hér kæmu í ræðustól á Alþingi vanir menn og kvörtuðu undan því að ekki væri stefna í fjárlagafrv. Hann sagði að einn ræðumaður hefði kvartað yfir því sérstaklega að stefnu vantaði í atvinnumálum þjóðarinnar.
Ég er ekkert að leyna því að ég tók þessi orð til mín. Ég er þá heldur ekkert að leyna því að fyrra undrunarefni hv. þm. á ekki rætur að rekja til ræðu minnar. Ég kvartaði ekkert sérstaklega undan því að ekki væri stefna í fjárlagafrv. Ég kvartaði hins vegar undan því og gagnrýndi það harðlega að fjárlagafrv. byggðist ekki á stefnu í efnahagsmálum og ég vænti þess að hv. 1. þm. Vesturl. geti skilið muninn á þessu tvennu. Hæstv. ríkisstjórn hefur sem sé ekki tekið neina stefnu í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar og hefur ekki lagt grunn að því að ráðast til atlögu við þau vandamál sem við er að fást í þessum efnum í þjóðfélaginu. Og meðan svo er, þá er fjárlagafrv. á sandi byggt, þá er fjárlagafrv. ekki byggt á stefnu í efnahagsmálum. Það getur verið stefna í frv. sjálfu í vissum atriðum, svo sem eins og sú að ná jöfnuði í
ríkisfjármálum og annað slíkt, en það dugar skammt ef undirstaðan er engin, ef stefnuleysið er algjört, ef ekki er hægt að byggja upp fastan grunn undir fjárlagaafgreiðsluna sem gefur fjárlagafrv. og síðar fjárlögunum sjálfum forsendur sem geta verið sæmilega raunhæfar.
Ég hlýt að segja það að þennan kafla í ræðu hv. þm. Alexanders Stefánssonar undraðist ég, ekki síst fyrir þá sök að við höfum átt samstarf í fjvn. og hann er enginn nýgræðingur hér á hv. Alþingi. Þessi kafli ræðu hans gæti gefið til kynna að hann, sá vani maður, væri meira að segja farinn að tileinka sér þann hugsunarhátt að fjárlagafrv. þurfi ekki að byggjast á neinni stefnu til þess að fá afgreiðslu á Alþingi. Hv. þm. spurði: Hvernig var með fyrri fjárlagafrv.? Dugði stefnan í þeim?
Ég hlýt að segja það og ítreka að stefnuleysi í atvinnumálum og efnahagsmálum við þær aðstæður sem nú eru í þjóðfélaginu er auðvitað stórlega ámælisvert af hálfu hæstv. ríkisstjórnar vegna atvinnulífsins sjálfs. En slík stefna er einnig grundvöllur undir því og forsenda fyrir því að hægt sé að afgreiða fjárlög á Alþingi þannig að þau geti verið marktæk, ella eru fjárlögin á sandi byggð og marklaust plagg, sýndarplagg. Það er af þessum orsökum sem minni hl. fjvn. setur fram það skilyrði í niðurlagi á nál. sínu að áður en fjárlagafrv. gengur til 3. umr. hafi slík stefna verið mótuð af hæstv. ríkisstjórn og aðgerðir hafnar á grundvelli þeirrar stefnu.
Þá talaði hv. þm. Alexander Stefánsson um það að hér hefðu komið fram eins konar getsakir þess efnis að vandi atvinnuveganna sé að kenna ríkisstjórn sem setið hefur í tvo mánuði og hann spurði: Vantaði ekki stefnu hjá fyrri ríkisstjórn? Og hverjir í þeirri ríkisstjórn vildu ekki aðgerðir? Ég skal taka það fram að ég hef ekkert við það að athuga að þessar athugasemdir séu settar fram. Þær hljóta hins vegar að kalla á það að þær séu teknar nokkuð til athugunar.
Þá vil ég aðeins byrja á því sem ég nefndi síðar. Spurt var: Vantar ekki stefnu hjá fyrri ríkisstjórn og hverjir vildu ekki aðgerðir í þeirri ríkisstjórn? Sýnilega er þessi hv. þm. Framsfl. að beina þessum ásökunum til
Sjálfstfl. Sjálfstfl. hafði forystu í þeirri ríkisstjórn og það var mikið tjón fyrir þjóðina að sú ríkisstjórn skyldi ekki bera gæfu til þess að ná saman um aðgerðir í efnahagsmálum sem full þörf var á. Það vantaði ekki að settar væru fram tillögur í þeirri ríkisstjórn. Sjálfstfl. birti sínar tillögur en samstarfsflokkarnir tættu þær tillögur sundur í fjölmiðlum án þess að þær væru ræddar innan ríkisstjórnarinnar. Þeir höfnuðu slíkum tillögum í fjölmiðlum vegna þess að þeir voru búnir að ná samkomulagi um að þeir skyldu halda þannig á málum að ríkisstjórnarsamstarfið rofnaði, að Sjálfstfl. hyrfi út úr ríkisstjórninni svo að þeir ættu hægan leik að taka við völdunum sjálfir. Þetta tókst. Það var ekki fyrir það að tillögur vantaði frá Sjálfstfl. að þetta gerðist, heldur voru þetta samantekin ráð
samstarfsmanna Sjálfstfl. til þess að víkja honum til hliðar við stjórn landsins um stundarsakir.
Þegar þetta hafði tekist var Sjálfstfl. ekki fyrir þessum ágætu herrum sem nú fara með stjórn landsins. Þá gátu þeir sem nú standa við stjórnvölinn tekið af skarið og framkvæmt þær aðgerðir sem þeir töldu nauðsynlegar. Ég minnist þess að formaður Framsfl., hæstv. núv. forsrh., tók oft svo til máls að það mætti ekki lengur dragast að grípa til efnahagsaðgerða sem dygðu til þess að koma atvinnulífinu á réttan kjöl. Þetta voru vissulega orð að sönnu. Hæstv. núv. utanrrh., sem hér birtist áðan allt í einu í salnum eftir að hann hafði farið á eins konar valhoppi um veröldina á undanförnum vikum, sagði: Nú er ekki tími tillagna. Við höfum nógar tillögur. Okkur skortir ekki tillögur. Nú er tími aðgerða.
Svo gerist það að þessir stjórnmálaforingjar ná saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar, þeirrar er nú situr, og þá skyldu menn nú ætla að kominn væri tími aðgerða og liðinn tími tillagna. Þá var Sjálfstfl. ekki með sínar tillögur að hindra það að þessir flokkar gætu komið því fram sem þeir óskuðu, kæmu því fram sem þeir töldu duga til þess að rétta við hagsmuni atvinnulífsins. Mér dettur vitaskuld ekki í hug að kenna núv. hæstv. ríkisstjórn um þau vandamál sem við er að fást í atvinnuvegunum eða í efnahagsmálunum. Það dettur mér ekki í hug því sá vandi var ærinn þegar núv. ríkisstjórn tók til starfa. En síðan hefur það gerst að liðnir eru 2 1 / 2 mánuður og hæstv. ríkisstjórn hefur ekkert gert sem gagn er að til þess að leysa þessi mál.
Ég hlýt að minna á það að þegar hæstv. ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð lýsti hún yfir því í Málefnasamningi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að ríkisstjórn Framsfl., Alþfl. og Alþb. með aðild Samtaka um jafnrétti og félagshyggju, eins og það heitir á fínu máli, með leyfi forseta:
,,er mynduð til þess að leysa bráðan efnahagsvanda sem steðjar að þjóðinni. Höfuðverkefni hennar er að treysta grundvöll atvinnulífsins, stöðu landsbyggðarinnar og undirstöðu velferðarríkis á Íslandi.`` Enn segir: ,,Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða að því að treysta atvinnuöryggi í landinu, bæta afkomu atvinnuveganna og draga úr viðskiptahalla.``
Allt þetta átti nú að gera. Síðan segir hér enn í yfirlýsingu þessarar hæstv. ríkisstjórnar þegar hún tók við völdum, með leyfi hæstv. forseta:
,,Yfir vofir stöðvun margra útflutningsfyrirtækja sem valda mundi atvinnuleysi og tekjumissi hjá fjölda fólks um allt land. Viðskiptahalli við útlönd er mikill og fer vaxandi verði ekki tekið í taumana. Ágreiningur innan fráfarandi ríkisstjórnar olli óþolandi óvissu og úrræðaleysi og stefndi grundvelli atvinnulífsins í hættu.``
Nú linnti þessu ástandi, þessu óvissuástandi vegna ósamkomulags í fyrri ríkisstjórn var lokið. Þá ætluðust landsmenn til þess að gripið væri til þeirra aðgerða sem þessir flokkar vildu koma fram og mundu duga. En það hefur ekki verið gert. Ég sagði í ræðu minni í dag, og hafði það eftir Þjóðhagsstofnun, að á
tveimur mánuðum, frá því um stjórnarskipti og þangað til í nóvember, versnaði staða sjávarútvegsins úr 2,5% halla veiða og vinnslu í 4,5% halla. Á tæpum tveimur mánuðum. Ég ásaka þessa hæstv. ríkisstjórn fyrir það að hafa ekki á þessum tíma gripið til aðgerða til að leysa þessi vandamál, hafa ekki mótað stefnu og farið í aðgerðir á grundvelli þeirrar stefnu sem gagn er að í þessu þjóðfélagi. Það er þetta sem ég ásaka núv. hæstv. ríkisstjórn fyrir því að hún lét svo þegar hún var mynduð að það væri vandalaust að ráða við þessi verkefni. Hún lét svo að það skorti ekki tillögur. Hún lét svo að ósamkomulagi væri lokið og tími aðgerða runninn upp. En hún hefur ekkert gert sem gagn er að.
Þetta er það sem ég vildi segja við hv. þm. Alexander Stefánsson úr því að honum þótti það hlýða að gera þessi mál að umtalsefni í sinni ræðu í dag. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga að þessi seinni hluti sem ég hef tekið til meðferðar verði ræddur áfram og í allt kvöld.
Hið fyrra, um að það skipti engu máli hvort fjárlögin byggist á stefnu, gefur til kynna annað tveggja, skilningsleysi hv. þm. eða virðingarleysi hans fyrir afgreiðslu fjárlaga.
Ég vil svo þakka hv. þm. Alexander Stefánssyni fyrir það sem hann gaf í
skyn í sínu máli að á milli 2. og 3. umr. yrðu teknar upp alvarlegar umræður um þýðingarmikil mál er varða fjárlagaafgreiðsluna. Ég minntist á í minni frumræðu í dag og gaf í skyn að leyst mundi verða úr málefnum landbúnaðarins, framlögum til landbúnaðarins annars vegar og málefnum Vegagerðarinnar hins vegar. Ég vil þakka hv. þm. fyrir þessar yfirlýsingar og vænti að þeim fylgi að við getum staðið við eitthvað af þeim skuldbindingum sem lög kveða á um. Í fyrsta lagi varðandi framlög til landbúnaðar, til bændanna sjálfra og til félagasamtaka þeirra úti á landsbyggðinni. Í öðru lagi um vegagerðarframkvæmdir umfram það sem fjárlagafrv. og fyrirætlanir hæstv. ríkisstjórnar, samkvæmt því sem birtist í fylgiskjölum, bera vitni um. Ég vil sannarlega þakka hv. 1. þm. Vesturl. Alexander Stefánssyni fyrir þessa yfirlýsingu.
Í framsöguræðu sinni í dag sagði hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, formaður fjvn., er hann ræddi um einstakar brtt. er varða fjárfestingarliði, bæði að því er varðaði fjárfestingarliði í skólamálum og heilbrigðismálum, að starfað hefði verið eftir þeirri meginreglu samkvæmt ákvörðun stjórnarflokkanna og hæstv. ríkisstjórnar að ekki skyldi veitt framkvæmdafé til nýrra framkvæmda, þ.e. ekki til framkvæmda sem ekki væru hafnar enda þótt fengið hefðu framkvæmdafé áður. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, formaður fjvn., gerði sérstaklega að umtalsefni eitt mannvirki hvað þetta snertir. Það er Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi sem fær samkvæmt brtt. fjvn. 21 millj. kr. til viðbótar við það sem þar var áður ætlað. Sú fjárhæð er ætluð til framkvæmdar sem er þýðingarmikið verk, þ.e. mötuneyti við Fjölbrautaskólann, en það verk er ekki hafið. Þessi
fjárveiting brýtur þess vegna þá reglu sem hæstv. ríkisstjórn og hv. meiri hl. fjvn. hefur sett. Í bréfi frá yfirvöldum skólans, þ.e. frá skólameistara Fjölbrautaskólans og formanni skólanefndar, sem barst til fjvn. í haust segir að hönnun verksins sé langt á veg komin og unnt verði að hefja framkvæmdir með vorinu ef fjárveiting fáist. Þetta þýðir eins og allir sjá að verkið er ekki hafið, en hægt að hefja það í vor er fjárveiting er fengin. Vegna orða hv. formanns fjvn. um þetta tiltekna mannvirki og ítrekun hans á yfirlýsingum um þessar meginreglur sem meiri hl. fjvn. mótaði hlýt ég að láta þetta koma fram. Ef ekki hefði verið á það minnst hefði ég látið það liggja milli hluta. Hv. formaður fjvn. sagði að það hefði verið ákveðið í fyrra að fara í þetta verk á næsta ári. ( Gripið fram í: Það er rangt.) Það var ákveðið við afgreiðslu fjárlaga í fyrra að verja í þetta verk 5 millj. kr. og að verja misjafnlega háum fjárhæðum til ýmissa skólamannvirkja sem ekki eru hafnar framkvæmdir á í dag. Ég veit ekki til þess að nokkur þeirra framkvæmda hafi fengið framkvæmdafé samkvæmt þessum tillögum fjvn. nú nema mötuneyti Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi sem fékk 21 millj. kr.
Ég hlaut að láta þetta koma fram vegna orða hv. formanns nefndarinnar sem mér fannst vera með þeim hætti, úr því að hann hafði þau orð um, að hið sanna yrði að koma fram.
Hæstv. fjmrh. ( EgJ: Er hann hér?) sem er til hægri handar nú allt í einu og fer auðvitað ekkert illa á því, hefur með frammíköllum í dag borið brigður á það sem ég sagði í minni ræðu og hv. þm. Egill Jónsson tók fram einnig að skattalagafrumvörp ríkisstjórnarinnar sem eru til meðferðar á Alþingi feli í sér skattahækkanir upp á 6,7 milljarða kr. Hæstv. fjmrh. kallaði fram í og taldi þetta rangt. Hér væri um að ræða skattahækkanir upp á 4,3 milljarða kr. og munar þá 2,4 milljörðum kr. Nú þarf varla að endurtaka það fyrir hæstv. ráðherra og fyrir hv. þingheimi að talan 6,7 milljarðar kr. var gefin upp af starfsmanni Þjóðhagsstofnunar á fundi með fjvn. sem svar við fyrirspurn minni. Þar voru viðstaddir, eins og fram kom hjá hv. þm. Agli Jónssyni, ekki einungis þjóðhagsstjóri, þetta var ekki þjóðhagsstjóri sjálfur, heldur einnig hagsýslustjóri, ríkisendurskoðandi, forstöðumaður hagdeildar fjmrn. og nokkrir aðrir starfsmenn. ( Gripið fram í: Og formaður fjvn.) Og formaður fjvn. sem hér gengur um gólf og er hugsi. Enginn af þessum mönnum sem þarna voru viðstaddir báru til baka að skattafrumvörpin fælu í sér skattahækkanir um 6,7 milljarða kr. Enginn. Þessir starfsmenn, a.m.k. ýmsir hverjir, hlutu að vita hið sanna. Ef svo kynni að vera að hæstv. fjmrh. hefði rétt fyrir sér, og ég hef ekki lagt saman í þessum frumvörpum, hefur það í fyrsta lagi skeð að starfsmaður Þjóðhagsstofnunar hefur gefið upp ranga tölu og enginn af þeim starfsmönnum sem voru viðstaddir, þar á meðal undirmenn og starfsmenn hæstv. fjmrh., hefur séð ástæðu til að gera athugasemdir þar við. Þeir þögðu þá yfir því sem þeir
töldu réttara. Þetta mun auðvitað vera hægt að fá upplýst.
Nú hef ég tekið eftir því, eins og kom meðal annars fram í fréttum ríkisfjölmiðlanna í kvöld, að hæstv. fjmrh. hefur legið undir grun um að hann vilji leyna því hvað þær skattahækkanir sem hann er að berjast fyrir á hv. Alþingi séu miklar. Hæstv. fjmrh. neitaði því og taldi það fjarstæðu að hann væri nokkuð að leyna þessu, það væri fjarstæða. Einhvern veginn finnst mér að þetta frammíkall hæstv. ráðherra beri nú keim af því að hann hafi býsna ríka tilhneigingu til þess að segja þingheimi lægri tölur um skattahækkanirnar samkvæmt frumvörpum sínum heldur en raun er. Ég hygg til að mynda að inn í
tölu hæstv. fjmrh., 4,2 milljarða kr., vanti frestun á virðisaukaskattinum sem gefur ríkissjóði 1200 millj. kr. Og ætli það gæti ekki skeð að í þessum plöggum leyndust aðrar 1200 millj. sem hæstv. fjmrh. virðist ekki kæra sig neitt um að segja frá. Þetta verður allt saman upplýst og hæstv. ráðherra mun vafalaust tala hér í lokin og þá getur hann hugsað sig um eða kannski sett einhverja menn í það að leggja saman þessar tölur og reikna þetta út að nýju, ef hann vefengir og fullyrðir að starfsmenn opinberra stofnana, óháðra stofnana ríkiskerfisins, sem við fjárveitinganefndarmenn höfum yfir höfuð treyst, fari með rangt mál. Það mun verða hægt að fá úr því skorið.
Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu þó að auðvitað sé af nógu að taka til þess að ræða um það þýðingarmikla mál, eins og ég sagði í upphafi þessa máls míns, sem fjárlagafrv. og afgreiðsla fjárlaga er á hinu háa Alþingi. Það er umræðuefni sem getur enst langan tíma og meira en eina dagstund. Það er líka í mínum huga þýðingarmikið mál sem ekki á að tala um af þeirri léttúð að það skipti ekki máli hvort fjárlögin byggist á einhverri stefnu og séu þannig með raunhæfum forsendum eða ekki.