Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég skal ekki tefja þennan fund, enda er erindi mitt hingað upp eingöngu það að mæla fyrir þeim brtt. sem ég legg fram við þetta frv. og koma fram á þskj. 271 og 272 og eru brtt. við 4. gr.
Í fyrsta lagi 02-986 620 Bygging íþróttamannvirkja. Þar er tillaga um að hækka framlagið úr 45 millj. kr. eins og gert er ráð fyrir í frv. í 75 millj. kr. Þarna er farið fram á að fá hækkun til þess að áframhaldandi uppbygging á íþróttamannvirkjum geti átt sér stað. Uppbygging íþróttamannvirkja hefur gersamlega stöðvast undanfarin ár vegna skorts á fjárveitingu. Í frv. er eingöngu gert ráð fyrir fjármagni til að standa undir þeim skuldbindingum sem þingið þarf að standa við og er það í sjálfu sér vel, en það má engu að síður ekki stöðva þessa uppbyggingu og þess vegna er farið fram á þessa hækkun.
Í öðru lagi er brtt. við 02-988 117 Starfsemi KFUM og KFUK. Þar er farið fram á að framlagið verði 2 millj. kr. Mig undrar reyndar hversu lág upphæðin er til þessarar starfsemi sem sennilega er einhver sú albesta sem völ er á fyrir unglinga og börn í dag. Ekki veitir af að venja þá á góða og heilbrigða siði og get ég þar talað af eigin raun.
Í þriðja lagi er brtt. við 03-101 131 Kvikmyndir og myndbönd, landkynning. Þar er gert ráð fyrir að upphæðin verði 1,5 millj. kr. í staðinn fyrir 480 þús. kr. Eins og allir vita hefur ferðamönnum hér farið fækkandi því miður. Það sem á að vera blómleg tekjulind fyrir landið er núna að hverfa og við erum að missa ferðamennina úr greipum okkar. Ég tel það miður og vona reyndar að ég misskilji ekki þennan lið, en nafnið á honum gefur til kynna að hér eigi að kynna landið í formi kvikmynda og myndbanda og ég tel að það veiti ekki af. Það þarf náttúrlega ekkert að vera að leiða hugann að Greenpeace-málum eða öðru slíku í þessu sambandi.
Í fjórða lagi er brtt. við 08-399 195 Kynsjúkdómar, eyðni. Lækka á framlagið verulega í því frv. sem hér er lagt fram. Ég hreinlega skil ekki hvað þarna er á ferðinni, hvort menn eru virkilega að slaka á í baráttunni gagnvart þessum vágesti sem nú herjar á þjóðir heims. Ég tel að það megi alls ekki slaka á þarna og hvet því þingmenn til að skoða þetta vel.
Í fimmta lagi brtt. sem kann að vera einkennileg í hugum margra. Hún er við 09-999 190 Óviss útgjöld, sem er upp á 35 millj. kr. í frv. Þennan kafla vil ég hreinlega fella út þó að mönnum finnist það kannski furðulegt að leggja slíkt til. Ég tel að þessi kafli sé ekkert annað en sýndarmennska. Ef menn ætla að hafa lið upp á óviss útgjöld mega þeir gjöra svo vel að bæta þarna við annaðhvort einu eða tveimur núllum ef hann á að standa undir nafni. Þessi liður er ekkert annað en sýndarmnenska, hann mætir í rauninni engum óvissum útgjöldum. Reynslan sannar það auðvitað að menn stoppa ekkert við það þó að óviss útgjöld fari upp fyrir þessa tölu. Þó að tillagan sé einkennileg kem ég þó með niðurskurð á móti þessum litlu kröfum sem ég er að leggja hér fram. ( KSG: Það er mjög einkennilegt.) Það er mjög einkennilegt, hv.
þm. Karl Steinar. En það þekkist náttúrlega ekki í Alþfl. að skera niður, þar er allt á uppleið. Ég get nefnt ýmis dæmi þar um. ( KSG: Mikið meira?) Já, miklu meira.
Í sjötta lagi er hér árviss brtt. við 10-651 60 Ferðamál. Þar er farið fram á að framlagið hækki úr 25 millj. kr. í 45 millj. kr. og má beita sömu rökum og fyrir brtt. um kvikmyndir, myndbönd og landkynningu. Það veitir ekki af að eyða verulegu fjármagni til þess að selja landið, sem svo er kallað.
Á þskj. 271 er ég með brtt. við 04-501 Bændaskólinn á Hvanneyri. Þetta er nýr liður, 602 Til uppbyggingar búminjasafns, og til hans fari 5 millj. kr. Þetta er í beinu sambandi við þá þáltill. sem ég ásamt hv. þm. Skúla Alexanderssyni og Danfríði Skarphéðinsdóttur hef lagt hér fram á þingi. (Gripið fram í.) Allt of mikið heyrist hér frá sama þingmanni og greip fram í áðan. Það væri ágætt að fá hann upp í ræðustól og biðja hann að viðra sína skoðun á því hvað hér á að vera og hvað liðurinn eigi að hækka mikið. Hann hefur verið að koma inn á það að hér hafi liðir ekki verið hækkaðir nóg. Ef hann hefur ákveðnar skoðanir getur hann komið hér upp og bætt því við því mér skilst að mælendaskráin sé frekar stutt.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í umræðuna um frv. til fjárlaga á þessu stigi. Ég ætla aðeins að leggja fram þessar brtt. sem ég fer fram á að hv. fjvn. taki til gaumgæfilegrar skoðunar og við munum sjá hvað setur.